20.12.1985
Sameinað þing: 34. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 2045 í B-deild Alþingistíðinda. (1743)

1. mál, fjárlög 1986

Helgi Seljan:

Herra forseti. Þau fjárlög sem við höfum fyrir framan okkur væru vissulega tilefni langra umræðna Frv. ber dapurleg merki þeirrar ríkisstjórnar sem sker niður brýnustu útgjöld, þörfustu framkvæmdir, en hefur afsalað sér tekjum af milliliðum og fjármagnseigendum og telur þá framkvæmd forgangsverkefni að byggja flugstöðvarhöfn með kananum og fyrir þá í Keflavík, ríkisstjórnar sem leggur til atlögu við þær framkvæmdir helst og mest sem sköpum skipta fyrir byggðarlögin á landsbyggðinni, aðstöðu fólksins þar til hinnar margvíslegustu þjónustu. Um þetta ætla ég ekki hér og nú að hafa mörg orð. Hv. 5. þm. Reykn. Geir Gunnarsson, sem allir hér virða fyrir glöggskyggni sína á þessi mál, hefur tætt þessa fjárlagagerð þannig sundur lið fyrir lið, vinnubrögð öll hjá hæstv. ríkisstj., áhersluatriði hennar annars vegar og vanrækt verkefni hins vegar, að betur verður það ekki gert. Slíka dul ætla ég mér a.m.k. ekki.

Margt undarlegt getur að líta í þeim tillögum sem á borð okkar berast. Ein sú frumlegasta varðar forfalla- og afleysingaþjónustu bænda sem nú fellur brott. Þessi félagslegi ávinningur bændastéttarinnar, sem samfélagið tók að sér á sínum tíma, var í raun uppbót á ákveðna kjaraskerðingu sem bændur tóku á sig á sínum tíma ásamt öðrum launþegum. Menn fengu í staðinn einn hinna margfrægu félagsmálapakka sem hafa reynst býsna notadrjúgir vinnandi fólki, ekki síst í kjaraskerðingunni í tíð núverandi ríkisstjórnar. En nú er þessu vísað á Stofnlánadeild landbúnaðarins, lánasjóð landbúnaðarins, og veldur meiri furðu en svo að um þurfi að hafa mörg orð. Til Stofnlánadeildar landbúnaðarins renna að vísu ákveðin sjóðagjöld,framleiðendagjald, sem bændur greiða sjálfir, á móti ákveðnu neytendagjaldi, og þessi sjóðagjöld hafa verið nýtt til þess að koma Stofnlánadeild landbúnaðarins á réttan kjöl og greiða niður vexti fyrir bændur sem lán taka nú við hin erfiðu verðtryggðu kjör. Nú hlýtur ætlunin að vera sú að láta bændur greiða þessa þjónustu, þennan félagslega ávinning sem samfélagið tók á sig á sínum tíma. Þetta sjónarmið kemur manni á óvart frá þeim sem ævinlega hafa það í munni sér að þeir séu bestu vinir bændanna og beri hag þeirra sérstaklega fyrir brjósti. Og lítil þykja mér geð guma að taka þennan þátt af bændum, einn fárra félagslegra ávinninga þeirra á síðustu árum, með þessum hætti. Bændavinirnir eru sem sagt að sýna hug sinn og er það vel.

Í ágætri ræðu hv. þm. Geirs Gunnarssonar við 2. umr. kenndi hann hæstv. ráðherrum, forsætis- og menntmrh., sem ræddu við ungt fólk í sjónvarpi þá skömmu áður, ágæta lexíu varðandi jöfnun námskostnaðar sem er óbreytt upphæð í frv. þessu nú miðað við fjárlög þessa árs. Á sama tíma eru hernaðarútgjöld, sem ég kalla svo, og útgjöld til hermála, eins og hv. þm. nefndi það, aukin í utanrrn. sem sérstakt forgangsverkefni. Þetta nefndi Geir Gunnarsson í samanburði hernaðarmálanna og jöfnunar námskostnaðar og það er rifjað hér upp stuttlega, með leyfi virðulegs forseta. Hann hafði rifjað upp hinn nýlega sjónvarpsþátt þar sem yfirskriftin var: Hvað bíður okkar? Í þættinum var mikið rætt um jafnrétti til náms og þegar unga fólkinu þótti ekki nógu vel tryggður framgangur þess svaraði forsrh.: „Aðalatriðið er að þoka þessu í rétta átt á hverju ári.“

Geir benti á að í fjárlagafrv. fyrir næsta ár eru framlög til jöfnunar á námskostnaði, þ.e. húsnæðis- og fæðisstyrkir nemenda, óbreytt að krónutölu eða 20 millj. kr. Geir spurði: „Skyldi þetta þokast í rétta átt á næsta ári með óbreyttu framlagi í 30% verðbólgu?" Hann sagði útilokað að afsaka þennan niðurskurð með því að lítið fé væri til ráðstöfunar og benti á að framlög til varnarmálaskrifstofu utanrrn. hækka um 86,8% milli ára. Og orðrétt sagði hann, með leyfi hæstv. forseta:

„Ef þróun fjárveitinga til þessara tveggja liða er borin saman í stjórnartíð hæstv. forsrh., sem vill þoka jafnrétti til náms í rétta átt á hverju ári, og fjárveitingar árið 1983 eru settar 100 hefur verðgildi framlaga til þessara tveggja liða breyst með þessum hætti:

1984: Varnarmálaskrifstofan 168, Jöfnun námskostnaðar 114; 1985: Varnarmálaskrifstofan 188, Jöfnun, námskostnaðar 86; Fjárlagafrv. 1986: Varnarmálaskrifstofan [hermálaskrifstofa hæstv. utanrrh.] 269, Jöfnun námskostnaðar 66.“

Geir segir að lokum orðrétt, með leyfi forseta: „Yfirskrift þessa þáttar sem hæstv. ráðherrar áttu með unga fólkinu var: Hvað bíður okkar? Það virðist nokkuð ljóst hvað bíður liðarins Jöfnun námskostnaðar ef skilningur hæstv. forsrh. á því hvað það er að þoka jafnréttinu í rétta átt á hverju ári fær að njóta sín með sama hætti framvegis og í stjórnartíð hans til þessa.“

Nú vil ég gefa hv. stjórnarliðum og alveg sér í lagi hæstv. ráðherrum gullið tækifæri til að efna fögur orð sín við unga fólkið á dögunum með því a.m.k. að láta upphæðina fylgja raungildi og hógvær tillaga okkar félaga um 30% hækkun, raungildishækkun eina milli ára, er eða ætti að vera sanngjörn og líkleg til samþykktar.

Á sama þingskjali hef ég vakið athygli á þeirri áhugastarfsemi sem hér blómstrar nú sem aldrei fyrr, leiklistarstarfsemi áhugafólks. Rétt er það að sú upphæð hefur hækkað nokkuð milli ára. Hvað snertir 70-80 leikfélög með á annað hundrað verkefna á leikárinu, þar sem verkefnaval er orðið eins og best gerist en kostnaður eftir því meiri, er síst of í lagt þó öll til samans hljóti þau 2 millj. kr. eins og tillaga okkar er um. Ég vek á því sérstaka athygli að erlendis er virkilega tekið eftir þessari starfsemi og á vettvangi leiklistar, bæði á Norðurlöndum og reyndar í alþjóðasamtökum ekki síður, höfum við Íslendingar gert okkur mjög gildandi. Nefni ég þar t.d. að Jónas Árnason rithöfundur og fyrrum alþm. átti sæti í Alþjóðaleiklistarráðinu á sinni tíð, hafði þar forustu, og enn er hróður borinn út fyrir landsteinana af þessu fólki. Þar að auki leggjum við flm. á það áherslu að hér er um líflegasta og best rækta menningarþáttinn vítt um land að ræða sem verðugt er til umbunar. Báðar þessar tillögur eru fluttar af þeim hv. þm. Skúla Alexanderssyni og Steingrími J. Sigfússyni ásamt mér.

Á þskj. 382 hef ég leyft mér að vekja athygli á brýnu máli eystra sem í raun þolir enga bið. Framhaldsskólinn í Neskaupstað, verkmenntaskólinn þar, er nú sóttur af nemendum úr 19 sveitarfélögum utan Neskaupstaðar. Yfir 50 nemendur þurfa þar á aðstoð og heimavist að halda en hún er engin fyrir hendi. Þessi verkmenntaskóli er lýsandi dæmi um samstarf og samhug Austfirðinga sem einhuga hafa sameinast um þennan skóla og munu í framtíðinni leggja honum lið fjárhagslega að sínum hluta þó hlutur Neskaupstaðar sé þar eðlilega langstærstur. Ég hélt satt best að segja að það hefði verið loforð um það að viss viðurkenningarfjárveiting ætti að fást nú, orð hæstv. menntmrh. væru fyrir því. Ég geri mér ljóst að þessi tillaga verður felld af þeim sem sjá þröng í hverju skoti, en ég hlaut að vekja verðuga athygli á þessu og hef því lagt til eina litla milljón til undirbúnings heimavistarbyggingar við verkmenntaskólann í Neskaupstað.

Að lokum mæli ég hér fyrir tillögu á þskj. 404 um tölvumiðstöð fatlaðra. Meðflm. mínir eru hv. þm. Jóhanna Sigurðardóttir, Guðrún Agnarsdóttir og Kristín S. Kvaran. Mér barst í gær svohljóðandi beiðni í símskeyti sem ég leyfi mér að lesa, með leyfi hæstv. forseta:

„Nýstofnuð tölvumiðstöð fatlaðra þarf hálfa milljón til rekstrar á næsta ári, sbr. gögn sem send voru fjvn. 15. nóvember. Vinsamlegast leggðu málinu lið.

Arnþór Helgason.“

Arnþór Helgason er sá aðili sem hefur hvað mest starfað að stofnun þessarar tölvumiðstöðvar ásamt Hrafni Sæmundssyni félagsmálafulltrúa í Kópavogi. Ég held að það hljóti að vera svo að í fjvn., í þeim miklu önnum og því mikla flóði beiðna sem fjvn. fær, hafi þessi beiðni einhvern veginn lent niður á milli í bunkanum og þar af leiðandi ekki verið tekin til þeirrar æskilegu meðferðar og sjálfsögðu sem ég trúi vart öðru en fjvn. hefði haft á þessari tillögu ef hún hefði á annað borð fjallað um hana, en mér er sagt að það muni ekki hafa verið.

Tölvumiðstöð fatlaðra er stórmerkilegt framtak þar sem tölvan er tekin í þjónustu fatlaðra sem atvinnutæki, sem þjálfunartæki og sem hjálpartæki. Hér er um að ræða framtak fatlaðra sjálfra og starfshóps á þeirra vegum sem ber að styðja og styrkja sem best. Í umræddu skeyti er farið fram á hálfa milljón króna, en í hógværð okkar flm. leggjum við til aðeins 300 þús. til þess að með einhverjum hætti verði kleift að koma þessari tölvumiðstöð á og reka hana með skaplegum hætti á næsta ári. Með því erum við að gera hv. stjórnarþingmönnum auðveldara fyrir að samþykkja þessa hógværu en brýnu tillögu alveg sérstaklega í ljósi þess að í fjvn. mun ekki hafa verið fjallað um þetta erindi og ég hef fyrir því orð margra hv. nm. í fjvn. að gjarnan hefðu þeir viljað styðja að framgangi framlags til tölvumiðstöðvar fatlaðra ef það hefði komið beinlínis til afgreiðslu þar inni.