20.12.1985
Sameinað þing: 34. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 2047 í B-deild Alþingistíðinda. (1744)
1. mál, fjárlög 1986
Kristín S. Kvaran:
Hæstvirtur forseti. Þetta frv. er eins og ég gerði að umtalsefni við 1. og 2. umr. ekki í neinum aðalatriðum frábrugðið fyrri frumvörpum um fjárlög. Það er í engu brugðið út af sjálfvirkninni og ekki í neinu reynt að brjóta upp og endurskoða upp á nýtt. Fara nú fyrir lítið, eins og reyndar hefur oftlega áður sannast í tíð hæstv. núverandi ríkisstjórnar, orð fyrrv. hæstv. fjmrh. sem hann lét falla er hann fylgdi sínu fyrsta fjárlagafrv. úr garði, en hann sagði, með leyfi herra forseta:
„Ég vil taka það fram í upphafi að út fyrir þann ramma sem útgjöldum ríkisins hefur verið settur með fjárlagafrv. fyrir 1984 og lánsfjáráætlun verður ekki farið. Þm., sem hafa vafalaust margir uppi góðviljuð áform um útgjaldaaukningu, verða strax að gera sér grein fyrir því að hvorki er hægt að auka við erlendar skuldir né yfirdrátt í Seðlabankanum. Það kemur ekki til greina að auka álögur á landsmenn við núverandi aðstæður. Eina færa leiðin er að draga saman seglin, eins og ráðgert er með þessu frv.“
Það hefur auðvitað komið í ljós fyrir löngu hvað þessar fullyrðingar varðar að það er greinilega ekki sama hvort um er að ræða Jón eða séra Jón. Séra Jón eða fyrrverandi hæstv. fjmrh. hefur greinilega ekki tekið eigin orð alvarlega þar sem hann sagði að þm. með góðviljuð áform um útgjaldaaukningu skyldu ekki reyna neitt slíkt. Hann, eins og menn muna, jós þó út úr ríkiskassanum og þá sérdeilis á síðustu dögum embættis síns. Þó ekki væri nema þess vegna finnst mér hreint út sagt ekki nokkurn hlut að marka það sem menn eru að reyna að tína fram sem rök fyrir niðurskurði á ýmsum sérlega mikilvægum liðum eins og t.d. til félagsmála. Ég ætla þess vegna ekki að hafa uppi langt mál um þetta frv. Mér sýnist það vera tilgangslaust. Því miður er sýnt að það verður afgreitt í þinginu þrátt fyrir hve meingallað það er. Réttast hefði verið að fresta afgreiðslu þess fram yfir áramót og taka það til gagngerrar endurskoðunar, eins og tillaga minni hl. fjvn. hljóðaði upp á, á þeim tíma þar til þing kemur saman aftur að loknu jólaleyfi.
Ég hef reynt að rétta af með brtt. nokkra liði í frv., en ég álít að með því mundi þrátt fyrir allt verða örlítið rétt af sú skekkja sem margir liðir í frv. eru óhjákvæmilega haldnir. Þessar brtt. er að finna á þskj. 278. Það eru sem sagt mín góðviljuðu áform um útgjaldaaukningu, eins og hæstv. fyrrv. fjmrh. kemst svo skemmtilega að orði.
Herra forseti. Ég vil taka til við að rekja þær í örstuttu máli.
Fyrsta brtt. fjallar um það að hækka nokkuð upp liðinn 02-803 í 4. gr. sem nefnist Dagvistarheimili, stofnkostnaður. Það er auðvitað alveg óþolandi að þessi liður skuli ekki vera hærri en raun ber vitni á fjárlögum. Skyldi það geta átt sér stað að nokkrum heilvita manni detti í hug að þær 40 millj. kr., sem til hans eru ætlaðar, dugi til þess að halda áfram uppbyggingu dagvistarheimila? Það gera ekki nema um 1000 kr. á hvert barn sem er á dagvistarheimilisaldri, en þau börn eru rúmlega 30 000. Það hefur á undanförnum árum stöðugt hallað undan fæti hvað þessa uppbyggingu varðar. Til þess að halda raungildi sínu frá í fyrra þyrfti upphæðin að vera 47 millj. kr., aðeins til að halda í við þá upphæð sem auðvitað var allt of lág.
Þegar svo er komið að það er yfirlýst stefna stjórnvalda að í það minnsta tvo þurfi til að framfleyta heimili er alveg sérstaklega forkastanlegt hve lítið er ætlað til þessa málaflokks. Stjórnvöld verða hins vegar að gera sér grein fyrir því að um leið og slíkri stjórnarstefnu er framfylgt verður jafnframt að vera í þeirri stjórnarstefnu gert ráð fyrir því hvar börnin eigi að vera. Hvar er gert ráð fyrir þeim? Hvergi samkvæmt þessu. Þess sér hvergi stað.
Það er e.t.v. verið að stefna að enn frekari fjölgun slysa á börnum í umferðinni, en ég þarf ekki að hafa um það mörg orð að við Íslendingar eigum nú þegar það vafasama met að vera með alhæstu tíðni þessara óhugnanlegu slysa. Í frv. er greinilegt að stjórnarliðar hafa ekki gert sér neina grein fyrir að um er að ræða rökræna tengingu milli aukinnar tíðni umferðarslysa og þess að skortur er mjög mikill á dagvistarrými. Þar fyrir utan þarf auðvitað ekki að rekja það hvernig þær ómögulegu aðstæður, sem börnum þessa lands eru búnar, fara með foreldra þeirra. Þeim er gert að vinna utan heimilis á sama tíma og enginn staður er ætlaður fyrir börn þeirra. Þetta er hreint út sagt alveg hroðaleg staðreynd.
Árið 1985 stöndum við frammi fyrir þeirri staðreynd að skilningur yfirvalda á þörfum þessara þjóðfélagsþegna, sem auðvitað geta á engan hátt borið hönd fyrir höfuð sér, er alls enginn. Við Íslendingar eigum enn sem komið er ekki heils dags dagvistarpláss fyrir nema u.þ.b. 9% barna í þessum aldursflokki. Það fyrirfinnast sem sagt aðeins 2212 heils dags pláss fyrir börn í þessum aldursflokki, en börnin eru 30 182. Það gerir 9% sem er auðvitað allt of lítið. Til þess að bæta örlítið úr þessari brýnu þörf legg ég til að liðurinn hækki um helming eða í 80 millj. kr.
Í öðru lagi legg ég fram brtt. við lið nr. 06-238 í 4. gr. sem er Dómstóll og rannsóknadeild í ávana- og fíkniefnamálum. Þetta geri ég vegna þess að við verðum að horfast í augu við þá staðreynd að við eigum því miður við að etja stóraukið vandamál á þessu sviði. Þetta er vandamál sem við verðum að taka á og af þeim myndarskap sem okkur sæmir og gæti orðið til þess að við getum vonast til þess að vinna okkur út úr vandanum á næstu árum.
Ef við erum að vinna okkur út úr vandanum getum við betur en ella gert okkur grein fyrir hinu mikla tjóni sem aðallega unglingar hafa orðið fyrir andlega og líkamlega fram að þessu, og sífellt fjölgar þeim. Þetta tjón er á allan hátt svo átakanlegt og óbærilegt að horfa upp á að við hljótum að þurfa að taka okkur tak og gera það sem unnt er til þess að byrgja brunninn. Þess vegna hef ég lagt til að þessi liður verði hækkaður lítillega í frv. eða úr 3 millj. 228 kr. í 41/2 millj. kr.
Í þriðja lagi legg ég til breytingar á lið 07-701 í 4. gr. sem varðar málefni fatlaðra. Þar er um að ræða tvö atriði til hækkunar á liðum sem fyrir eru í frv. og svo þrír nýir liðir. Þessa sömu tillögu er reyndar að finna á þskj. 297 og er hún flutt af Jóhönnu Sigurðardóttur, Kristínu S. Kvaran, Guðrúnu Helgadóttur, Ellert B. Schram, Haraldi Ólafssyni, Sigríði Dúnu Kristmundsdóttur, Jóni Baldvini Hannibalssyni, Svavari Gestssyni, Guðrúnu Agnarsdóttur og Guðmundi J. Guðmundssyni. Um er að ræða tvö atriði til hækkunar á liðum sem fyrir eru í frv. og svo þrír nýir liðir. Þetta eru þeir fimm liðir sem svæðisstjórn fatlaðra í Reykjavík telur að ekki verði hjá komist að veita fé í þrátt fyrir að svæðisstjórnin hafi lagt sig fram um að hafa upphæðirnar í lágmarki. Öll ósköpin hljóða upp á að rétta hlut fatlaðra um rétt rúmar 5 millj. kr. Þessar 5 millj. kr. munu þó nýtast svo mörgum að með ólíkindum er. Þetta tel ég að muni létta stjórnarliðum að styðja þessa tillögu og vonast ég til þess að svo verði, en þar með er verið að byrja á því að leggja grunn að vernduðum vinnustað fyrir fatlaða á vegum Sjálfsbjargar. Ég mun ekki tíunda þessa tillögu nánar. Ég reikna með því að hún lýsi sér í raun og veru sjálf.
Í fjórða lagi legg ég til að í nýjan lið, 1.92, Rannsóknir á HTLV3 veiru og upplýsingar- og fræðslustarfsemi, sem fellur undir 08-399 í 4. gr., Heilbrigðismál, ýmis starfsemi, verði veitt 1 millj. og 900 þús. kr.
Ég rakti mjög ítarlega í máli mínu á miðvikudag við umræður um frv. um breytingar á lögum um varnir gegn kynsjúkdómum þau rök sem liggja að baki þessari tillögu. Ónæmistæring er óhugnanlegur raunveruleiki.
Það er til marks um hve aðilar þessarar ríkisstjórnar hafa skert raunveruleikaskyn að ekki skuli í þessu frv. til fjárlaga vera gert ráð fyrir svo mikið sem einni einustu krónu til þessa brýna verkefnis, hvorki til aukinna rannsókna né til fræðslu- og upplýsingastarfsemi.
Það ber auðvitað bráða nauðsyn til þess, og það fremur fyrr en seinna, að hleypa af stokkunum öflugri fræðslu- og upplýsingaherferð. Athuganir, sem gerðar hafa verið í Bandaríkjunum um gildi slíkrar herferðar, sýna að þær hafa borið afar mikinn árangur og virðist þetta vera affarasælasta leiðin sem farin hefur verið á Vesturlöndum til þess að reyna að hefta útbreiðslu þessa voðalega sjúkdóms. En án þess að svo verði gert verður varla skemmtileg framtíð í vændum.
Í fimmta og síðasta lagi legg ég til að nýr liður bætist við 6. gr. er orðist svo:
„Að fella niður eða endurgreiða aðflutningsgjöld og sölugjald af öryggisbeltum og barnavögnum og hlutum í þá og af öryggissætum fyrir börn í ökutæki.“
Ég talaði í vor fyrir frv. til breytingar á tollskrá sem fól í sér samhljóða breytingu. Þá minnti ég á nauðsyn þess að tollskráin í heild yrði endurskoðuð þannig að um yrði að ræða réttláta og skynsamlega álagningu á þá vöru sem flutt er til landsins. Með þeirri tillögu sem hér er flutt er m.a. verið að gera foreldrum og aðstandendum ungra barna auðveldara að verja börn sín gegn slysum í umferðinni. Miklum áróðri og þrýstingi hefur verið beitt til að fá foreldra til þess að nota öryggistæki fyrir börn sín í bíla. En hvað gagnar nú slíkur áróður og þrýstingur ef þessi öryggistæki eru svo dýr að fólk hikar við að festa kaup á þeim? Hvað mikið ætli það spari ekki ríkissjóði í reynd að fella niður aðflutningsgjöldin af þessum vörutegundum? Með því eykst möguleikinn á því að slysum á þessum ungu þjóðfélagsþegnum fækki og þar að auki möguleikinn á að hægt sé draga úr þjáningum og harmi. Það sparar auðvitað ríkissjóði ómældar fjárhæðir í sjúkrakostnað og endurhæfingu þeirra barna sem lifa af þessi voðalegu slys.
Þar fyrir utan legg ég til að aðflutningsgjöld af barnavögnum verði felld niður. Það vill svo til að það verður 100% hækkun á þeim frá innkaupsverði eins og nú er háttað. Það er þá í formi þess að tollur er 50%. Auk þess er reiknað 24% vörugjald og svo auðvitað söluskattur. Það þýðir auðvitað ekkert að vera alltaf að tauta um það að gera verði aðstæður fólks þannig úr garði að því sé gert kleift að eignast börn eða eins og ég tók til orða þegar ég talaði fyrir þessu máli á sínum tíma, með leyfi herra forseta:
„Það er alltaf verið að tala svo fjálglega um að gera þurfi félagslegar aðstæður þannig úr garði að fólki sé gert það kleift og mögulegt - og ekki hvað síst fýsilegt - að eignast börn.“
Það verður að gera þær kröfur að fólk sem talar þannig við hátíðleg tækifæri sýni viljann í verki og felli þennan toll niður.
Herra forseti. Ég vil einnig taka fram að ég er meðflutningsmaður að nokkrum öðrum tillögum þar sem aðrir eru 1. flm. og læt ég þeim að sjálfsögðu eftir að skýra ástæður og rök fyrir þeim. Ég vonast auðvitað eftir því að þessar tillögur, sem ég hef gert hér að umræðuefni, hljóti samþykki hv. þm.
Svo vill til að ég var að renna augunum yfir umræðu um fjárlagafrv. fyrir árið 1983 og þá komst ég ekki hjá því að reka augun í afar sérstæðar setningar sem eiga mjög vel við í dag þó svo að alveg hafi verið skipt um formerki fyrir því hverjir það eru sem standa að ríkisstjórninni og hverjir það eru sem ekki styðja hana. Þar segir hv. þm. Matthías Á. Mathiesen, með leyfi herra forseta:
„Á meðan við völd situr ríkisstjórn þar sem ráðherrarnir tala í sína áttina hver og engin samstaða er fyrir hendi, sem nauðsynleg er til þess að þjóðin verði leyst úr þessum fjötrum, getum við ekki búist við að hér verði breytingar á. Hvað er til ráða?"
Og mér er spurn: Hvað er til ráða? Ég fæ ekki betur séð en að þessi orð, sem notuð voru við fjárlagaumræðu árið 1982 af hv. þm. Matthíasi Á. Mathiesen, eigi alfarið við til þess að lýsa ástandinu sem er ríkjandi í dag. Þó svo að e.t.v. megi deila um hvort ekki hafi einnig verið full þörf á að sú ríkisstjórn færi frá sem þá var við völd er ég þess fullviss að sú þörf er einnig fyrir hendi í dag.
Ég get ekki séð að neitt hafi breyst nema þá einungis til hins verra. Afkoma fólksins í landinu er bágborin svo sem raun ber vitni og húsnæðismálin í algjörum ólestri. Auðvitað er alveg nóg að nefna þessa tvo þætti sem rökstuðning fyrir því að nú er nóg komið og við þurfum á því að halda að fá stjórn sem stendur við það sem lagt hefur verið fyrir þjóðina í kosningum. Það gengur ekki lengur að fólkið í landinu, kjósendur, viti ekki frá degi til dags á hverju það á von. Þetta verður að breytast. Þá á ég ekki við það að ræðurnar þurfi endilega að breytast sem fluttar eru á hv. Alþingi við fjárlagaumræður. Það nægir ekki ef ekki fylgir í kjölfarið að þeim sé fylgt eftir og haldið fast við þá stjórnarstefnu sem lögð hefur verið fyrir þjóðina. Það er það sem er mikilvægt. Þess vegna er það að ef vel ætti að vera væri afgreiðslu þessa frv. frestað þannig að gera mætti á því gagngera endurskoðun svo að hugsanlega gæti orðið eitthvert vit í því.