20.12.1985
Sameinað þing: 34. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 2089 í B-deild Alþingistíðinda. (1753)
1. mál, fjárlög 1986
Utanrrh. (Geir Hallgrímsson):
Herra forseti. Hv. þm. Steingrímur Sigfússon óskaði eftir nærveru minni og spurði mig um ákveðin málefni, en ég sé ekki hv. þm. í sal eins og stendur þannig að spurningin er hvort ég eigi að halda áfram máli mínu eða láta staðar numið og hverfa úr ræðustól. (Forseti: Það verða þegar í stað gerðar ráðstafanir til þess að gera hv. 4. þm. Norðurl. e. aðvart og ég vænti þess að hann komi þegar í stað.) Herra forseti. Ég vil taka fram að ég óska ekki eftir nærveru hans, en ef hann vill fá svar við spurningu sinni hlýtur hann að vilja vera nærstaddur og það legg ég á vald forseta. (Forseti: Já, forseti hefur þegar tekið sína ákvörðun um að gera ráðstafanir til að fá hv. þm. í salinn.) Þá hlýt ég að bíða í ræðustól. (Forseti: Hv. 4. þm. Norðurl. e. gengur nú í þingsal.)
Herra forseti. Ég vil gjarnan svara þeim athugasemdum eða ábendingum sem hv. 4. þm. Norðurl. e. hefur beint til mín og ég skildi sem svo að væru þess efnis hvort ég mundi vilja beita mér fyrir því að upprunaleg samþykkt utanrmn. héldi gildi sinu í framtíðinni þrátt fyrir þá afgreiðslu sem útlit væri fyrir að yrði á framlögum til þróunaraðstoðar. Ég get svarað þeirri spurningu mjög auðveldlega játandi.
Ég þarf ekki að upplýsa hv. þm. um sögu þessa máls frá því að utanrmn. gerði sína samþykkt. Þá var um það talað í ríkisstj. og í utanrmn. hvort ekki væri skynsamlegra að ætla sér lengri tíma til að ná því marki sem Sameinuðu þjóðirnar hefðu sett sér að þessu leyti. Utanrmn. ákvað að marka þetta átak innan sjö ára. Ríkisstj. taldi það heppilegra innan tíu ára. En út af fyrir sig skiptir þetta ekki höfuðmáli vegna þess að hvorugt markið er í sjónmáli miðað við þau fjárframlög sem nú er útlit fyrir.
Hins vegar verðum við að játa að við höfum verið í erfiðri aðstöðu. Fjárlagafrv. gerði ráð fyrir 91 millj. kr. í heild til þeirra þátta sem við teljum heyra undir þróunaraðstoð. Þessar 91 millj. lækkuðu um 7 millj. kr. með atbeina og fyrir frumkvæði hæstv. fjmrh. Á þessu stigi málsins hefur málið verið fært í upprunalegt horf. Ég tel ekki raunsætt að ætla okkur stærri áfanga að þessu sinni, en vænti þess að við getum hafið nýja sókn að þessu leyti.
Hinu skulum við alveg gera okkur grein fyrir, að við náum ekki fram hækkunum í fjárframlögum til þessa máls nema við séum reiðubúnir, Íslendingar, að neita okkur sjálfum um fjárframlög til ýmissa þarfra mála. Ég sé það í brtt. að hv. þm. Alþb., sem út af fyrir sig er ekkert við að athuga, flytja fjölmargar brtt. um hækkanir til mjög þarfra mála sem út af fyrir sig væri ástæða til að styðja ef almennt ástand væri ekki þess eðlis að við þyrftum að beita aðhaldi. Því er það sem ég vil segja á þessu stigi málsins að þessi till. hæstv. fjmrh. er sú sem við getum best og helst vænst, en á hinn bóginn ber okkur í framtíðinni að huga að aðstoð við þróunarlöndin betur en við höfum gert. Við getum svo rætt um það í betra tómi og þegar fleiri áheyrendur eru til staðar hvernig slíkri aðstoð yrði best varið. Það má vel vera að við þurfum á stefnubreytingu í þeim efnum að halda.
Með þessu þykist ég hafa svarað fsp. eða ábendingu hv. 4. þm. Norðurl. e.