21.12.1985
Sameinað þing: 35. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 2092 í B-deild Alþingistíðinda. (1758)
1. mál, fjárlög 1986
Jón Baldvin Hannibalsson:
Herra forseti. Þessi till. felur í sér þann ásetning stjórnarliða og meiri hluta hér á hinu háa Alþingi að falla frá yfirlýstri samþykkt Alþingis um að fella niður tekjuskatt í áföngum. Því segi ég nei.