21.12.1985
Sameinað þing: 35. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 2092 í B-deild Alþingistíðinda. (1759)
1. mál, fjárlög 1986
Gunnar G. Schram:
Herra forseti. Fyrir liggur yfirlýsing fjmrh. fyrir hönd ríkisstj. um að hér er einvörðungu um að ræða frestun á niðurfellingu tekjuskattsins, sem um hefur verið rætt og yfirlýsingar gefnar um af hálfu ríkisstj., til næsta fjárlagaárs. Þar sem hér er aðeins um frestun að ræða en ekki niðurfellingu segi ég já.