24.10.1985
Efri deild: 8. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 227 í B-deild Alþingistíðinda. (176)
70. mál, kjaradómur í deilu Flugfreyjufélags Íslands og Flugleiða hf.
Karl Steinar Guðnason:
Virðulegi forseti. Nú þegar þetta frv. er að verða að lögum læt ég enn á ný í ljós ósk mína um að kjaradómur komist að sanngjarnri niðurstöðu og réttlátri og vil minnast á að það voru ný tíðindi fyrir mig að heyra áðan að í einkasamtölum við hv. 3. þm. Suðurl. hafi flugfreyjur lýst því yfir að þær hafi óskað eftir þessum lögum eða kjaradómi. Ef það er rétt liggja málin öðruvísi fyrir en áður var. Ég vænti þess að allir aðilar geti unað við sitt ef þetta reynist rétt vera.