21.12.1985
Sameinað þing: 35. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 2094 í B-deild Alþingistíðinda. (1763)
1. mál, fjárlög 1986
Ellert B. Schram:
Herra forseti. Ég segi það alveg eins og er að mér ofbýður að horfa upp á að þurfa að hækka þennan lið um 400 millj. samkvæmt þessari till., en á hinn bóginn er mér ómögulegt að sjá hvernig lánasjóðurinn á að standa undir skuldbindingum sínum miðað við þá fjárveitingu sem gert er ráð fyrir og þá fjárþörf sem fyrir hendi er. Ég get þess vegna hvorki varið það fyrir samvisku minni að segja já né nei og greiði því ekki atkvæði.