21.12.1985
Sameinað þing: 35. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 2095 í B-deild Alþingistíðinda. (1769)

1. mál, fjárlög 1986

Eyjólfur Konráð Jónsson:

Herra forseti. Okkur er fjár vant, en það er ekki vansalaust að ljúka ekki við þjóðarbókhlöðuna mjög skjótlega. Eyjólfur kann að hressast og úrræðið er augljóst. Það á að selja útvarpshúsið. Það á ekki að neyða það góða fólk sem vinnur við þá ágætu menningarstofnun til að fara inn í þau ósköp, sem ég legg nú til að allir þm. skoði, heldur selja það hús en klára þjóðarbókhlöðuna. En ég segi nei við þessari tillögu.