21.12.1985
Sameinað þing: 35. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 2096 í B-deild Alþingistíðinda. (1776)

1. mál, fjárlög 1986

Sighvatur Björgvinsson:

Herra forseti. Ég vel þessa leið til að verða við tilmælum hæstv. forseta um að hraða afgreiðslu og til þess að komast hjá því að biðja um nafnakall til að gera grein fyrir því sem ég ætla að mælast til við hæstv. forseta í sambandi við að ég er að bera upp þessa till.

Í þessari till. eru fólgin tvö stefnumarkandi atriði. (Forseti: Ég vil vekja athygli hv. þm. á því að til þess að fá leyfi til að tala um þingsköp þarf að ræða um þingsköp en ekki efnisatriði málsins.) Ég ætla að bera fram óskir við hæstv. forseta um hvernig bornar verða upp til atkvæða ákveðnar tillögur sem mun auðvelda og stytta allan afgreiðslutíma á þeim tillögum sem eftir eru. Hér er um að ræða tvö efnisatriði, annars vegar þá breytingu að fella niður Búnaðarfélag Íslands og Fiskifélag sem ríkisstofnanir og hins vegar að gera hagnýtar rannsóknarstofnanir atvinnuveganna að sjálfseignarstofnunum. Ég leit svo á að með því að afgreiða tölul. 25 og 27 á þskj. 377 séu menn að afgreiða þessi stefnuatriði. Hvort ég kalla til baka þær tillögur sem síðar verða bornar upp um þessi atriði eða ekki fer eftir niðurstöðum þeirrar atkvæðagreiðslu. Þess vegna bið ég hæstv. forseta að bera sérstaklega upp lið 25 og sérstaklega upp lið 27.