21.12.1985
Sameinað þing: 35. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 2101 í B-deild Alþingistíðinda. (1790)

1. mál, fjárlög 1986

Menntmrh. (Sverrir Hermannsson):

Herra forseti. Forseti vor hefur nú sem mest að vinna og gengur skelegglega fram í atkvæðagreiðslunni. En ég vil aðeins, af því sem hann hefur ekki ráðrúm kannske til þess að sökka sér ofan í öll smáatriðin, benda á að eins og nú er komið málum er til meðferðar þskj. 391 frá meiri hl. fjvn. og allar tillögur sem trufla þá afgreiðslu aftur að bls. 46 þar sem hv. þm. Ragnar Arnalds bað um sérstaka atkvæðagreiðslu undir samgrn., fjármunahreyfingar út, 32. liður þar. Þar af leiðir, ef forseti vor vill svo við hafa, að þetta er greiðasta leiðin, sýnist mér, og svo framhaldið því allar hinar tillögurnar hafa verið dregnar til baka. Að vísu er till. á þskj. 366 sem truflar þennan framgang.