21.12.1985
Sameinað þing: 35. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 2103 í B-deild Alþingistíðinda. (1797)
1. mál, fjárlög 1986
Svavar Gestsson:
Herra forseti. Í það fjárlagafrv. sem hér er verið að afgreiða vantar mjög veigamiklar forsendur. Það er augljóst að um er að ræða vanda upp á hundruð milljóna á næsta ári sem er óleystur umfram það sem þegar liggur fyrir í tölum frv. Vegna þess og vegna þess að forsendur eru óljósar greiðum við ekki atkvæði, Alþýðubandalagsmenn, við þessa atkvæðagreiðslu.
Ég vil enn fremur benda á, herra forseti, að þær brtt. sem hafa komið fram til tekjuöflunar hafa verið með þeim hætti að við höfum ekki treyst okkur til að greiða þeim atkvæði eða jafnvel greitt atkvæði gegn þeim. Þannig er t.d. um að ræða till. um að hækka söluskatt um marga milljarða kr. sem bersýnilega kemur á matvæli og lendir þannig á þeim fjölskyldum sem minnst hafa efnin í landinu. Þess vegna er ljóst að eðlilegt væri í framhaldi af þessari atkvæðagreiðslu, herra forseti, og tillöguflutningi að áhrif tillagna þeirra sem fluttar hafa verið, þó felldar hafi verið, verði könnuð mjög rækilega, bæði útgjöld og tekjur.
Í framhaldi af þessu, herra forseti, lýsi ég því yfir að ég greiði ekki atkvæði.
Frv. afgr. sem lög frá Alþingi (þskj. 430). - [Fundarhlé].