21.12.1985
Sameinað þing: 35. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 2104 í B-deild Alþingistíðinda. (1802)

Kosning í bankaráð Búnaðarbanka Íslands

Guðrún Helgadóttir:

Herra forseti. Ég vil láta það koma fram hér, eins og ég hef raunar gert áður, að kosning í bankaráð ríkisbankanna er mér með öllu óviðkomandi. Ég hef mótmælt henni og mun ekki taka neinn þátt í slíkum kosningum. Verði hér ekki atkvæðagreiðsla vil ég að þetta sé þingheimi ljóst.