27.01.1986
Sameinað þing: 36. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 2118 í B-deild Alþingistíðinda. (1848)

Tilkynning frá forsætisráðherra um breytingar á ríkisstjórninni

Svavar Gestsson:

Herra forseti. Nú þegar hafa nokkrir þingmenn kvatt sér hljóðs. Það er bersýnilegt að verið hefði full ástæða til að hafa strax í dag, á fyrsta degi þingsins, almenna stjórnmálaumræðu. En eins og fram kom áðan fellst ég á að hún fari fram á morgun fyrir mitt leyti. Ég óska eftir því að forseti ákveði tíma fyrir umræðuna í samkomulagi við formenn þingflokkanna, svo sem venja hefur verið, þannig að hægt verði að ganga frá því þegar í dag og miða annað í þinghaldinu við það.

Ég vil láta koma fram að það eru ýmis mál sem við höfum óskað eftir að ræða fyrir utan hið almenna stjórnmálaástand. M.a. hef ég óskað eftir því við hæstv. menntmrh. að hér fari fram sérstök utandagskrárumræða um Lánasjóð ísl. námsmanna. Ég bar þá ósk fram við hæstv. ráðh. fyrir hönd þingflokks Alþb. fyrir nokkrum dögum og einnig við forseta sameinaðs þings. Það varð að samkomulagi á milli okkar að sú umræða færi fram n.k. fimmtudag þar sem hæstv. menntmrh. er fjarri eins og er. En þetta mál og fleiri, Þróunarfélagið, Seðlabankinn og fleira og fleira, kallar á umræðu strax í upphafi þings. Ég held að þessi umræða hafi nú þegar haft þann árangur í för með sér að menn muni tala saman og skiptast á skoðunum um hlutina á morgun.