29.01.1986
Neðri deild: 44. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 2185 í B-deild Alþingistíðinda. (1883)
91. mál, varnir gegn kynsjúkdómum
Guðrún Agnarsdóttir:
Herra forseti. Aðeins nokkur orð til að svara máli hæstv. ráðherra.
Ég er sammála hæstv. ráðherra að það hlýtur að vera meginmarkmið að hefta útbreiðslu sjúkdómsins. Ég margsagði það í mínu máli, það er ekki ágreiningsatriði. Ágreiningsatriðið er fyrst og fremst hvernig. Aðalmarkmið er að vísu að verja hina heilbrigðu, þó ég mundi ekki taka svo til orða, en það er þó ekki síður, og getur ekki verið síður, jafnframt að sinna þeim smituðu, að hjálpa þeim sjúku. Lögin hljóta að vera í þeim tilgangi líka.
Hæstv. ráðh. talaði um að erfitt væri að berjast gegn sjúkdómnum, og vitnaði í Alþjóðaheilbrigðismálastofnunina m.a., ef ekki liggja fyrir upplýsingar um útbreiðsluna. Það er alveg rétt hjá henni, en það er hægt að gera slíkt án þess að á nokkurn hátt sé gengið á persónuhelgi manna. Og til þess þarf í raun og veru ekki einu sinni að setja lög. Það er hægt að fylgjast með sjúkdómnum því það eru mörg lönd sem ekki hafa sett lög en gefa sínar upplýsingar til Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar.
Hæstv. ráðh. gat þess að dregið hefur úr aðsókn eftir lagasetningu t.d. í Svíþjóð. Hæstv. ráðherra minntist líka á að talsvert umtal hefði orðið hérlendis sem e.t.v. hefði haft þau áhrif að draga úr aðsókn. Það er þó kannske fyrst og fremst ótti manna við það að þessi lög verði sett og að þau muni verða á einhvern hátt afturvirk sem dregið hefur úr aðsókn. Menn óttast það sumir að upplýsingar um þá sem þegar liggja fyrir áður en verður af lagasetningu verði gefnar upp eftir að lögin taka gildi. Þá muni nöfn þeirra koma í ljós, þó svo að þeir hafi komið til mælingar áður en lögin verða gild, að lögin verði þannig á óbeinan hátt afturvirk vegna þess að nöfn þeirra liggja fyrir. Ég veit að slíkt hefur valdið ótta einstaklinga.
Í sambandi við umtal þá vil ég vekja athygli ráðherra á því að t.d. í Svíþjóð og einnig í öðrum löndum hefur umtalið aldrei orðið meira heldur en eftir að lögin voru sett. Það hefur orðið óhjákvæmilegt umtal í sambandi við lagasetninguna og undanfara hennar en þó allra mest eftir að lögin vorn sett. Og það er ekki hægt að komast hjá því, hæstv. ráðh., vegna þess að þetta er mál sem varðar ekki bara örfáa alþingismenn inni í gráu steinhúsi við Austurvöllinn og örfáa lækna sem koma til með að sinna ákveðnum áhættuhópum, það varðar alla sem búa í þjóðfélaginu. Þess vegna er ekki hægt að komast hjá umtali.
Og ef dregur úr aðsókn t.d. eins og í Svíþjóð - ég var í morgun að tala við lækni sem heitir Erik Sandström og vinnur við Södrasjukhuset í Stokkhólmi, hefur verið kynsjúkdómalæknir þar um nokkurra ára skeið, og hann sagði mér hvernig hefði dregið úr aðsókninni eftir að lögin voru sett. Ef slíkt verður einnig hérlendis þá skiptir engu máli hvaða skoðun hæstv. ráðh. hefur á því, hvaða skoðun ég hef á því, hvaða skoðun einhverjir læknar hafa á því hvað sé skynsamlegast fyrir fólk að gera. Ef menn koma ekki í skoðun þá er ekki hægt að ná til þeirra af því að enginn veit að þeir tilheyra áhættuhópi. Ef þeir kjósa að koma ekki í skoðun, hvað svo sem ræður gerðum þeirra, hvor.t það er ótti þeirra sem er yfirsterkari þeirri ábyrgðarkennd sem þeir hafa gagnvart vinum sínum eða fjölskyldu, ef sá ótti er yfirsterkari og ræður gerðum þeirra þá skiptir engu máli hvaða skoðun hæstv. ráðh. hefur eða hvaða skoðun ég hef. Það breytir engu um ákvörðun þessara manna hvort þeir koma eða ekki.
Og hvað ætlar hæstv. ráðh. að taka til bragðs og heilbrigðisyfirvöld ef lagasetningin veldur því að einstaklingarnir úr áhættuhópunum mæta ekki? Þá eru heilbrigðisyfirvöld á vissan hátt að grafa sína eigin gröf að því leyti að þau auka á heilbrigðisvandann og kostnaðinn við rekstur heilbrigðisþjónustunnar vegna allrar þeirrar aðgátar sem þarf að viðhafa til þess að bægja smiti frá fólki utan áhættuhópanna og jafnvel að það breiðist ekki út innan áhættuhópanna.
Í sambandi við það að líðan manna batni ef þeir koma til læknis þá vil ég enn og aftur vekja athygli á því að 80% einstaklinganna, enn sem komið er, hafa engin einkenni. Þeim líður jafnvel og hæstv. ráðh. og mér. Þeir hafa engin einkenni og þess vegna enga ástæðu til þess að líða neitt betur. Það er meginmál. Bætt líðan eða von um bata er enginn hvati fyrir þá til þess að koma til mælinga. Og ég vil endurtaka eða árétta það sem ég sagði áðan. Ég ræddi við faraldsfræðing ríkisins í Svíþjóð, prófessor Margaretu Böttiger, og ég hef ástæðu til þess að halda að hún telji að lagasetningin í Svíþjóð hafi gert verulegan óleik. Ég á von á skriflegu erindi frá henni um þetta mál, en ég hef ástæðu til að ætla því að hún telji að lagasetningin hafi verið hindrun.
Hæstv. ráðh. minnti á að kynsjúkdómalögin hefðu reynst gagnleg og ég er viss um að það er alveg hárrétt. En eins og ég tók skýrt fram áðan, þó að þessi sjúkdómur megi sannarlega flokkast á læknisfræðilegan hátt sem kynsjúkdómur vegna þess að hann berst fyrst og fremst með kynmökum, þá er hann samt svo frábrugðinn að mörgu leyti öðrum kynsjúkdómum að hann er ekki fyllilega sambærilegur, sérstaklega hvað varðar félagslegt öryggi smitaðra einstaklinga.
Hæstv. ráðh. minntist á að það væri óeðlilegt að til væri lagasetning um ýmsa hópa. Ég er ekki lögfræðingur en þó er tilfinning mín sú, eftir að hafa unnið hér um þriggja ára skeið, að það sé einmitt oft verið að setja lög um ákveðna hópa sem hafa einhverjar sérþarfir og það sé þess vegna kannske ekki óeðlilegt að slíkt sé gert út af fyrir sig. En ég er sammála hæstv. ráðh. að því leyti til að það geti þurft að grípa til einhverra aðgerða gagnvart einstaklingum sem hafa skerta ábyrgðarkennd, t.d. eiturlyfjasjúklingum. Og ég vil ítreka enn og aftur hversu gerólíkar þarfir þeirra áhættuhópa eru, þar sem annars vegar eru eiturlyfjasjúklingar, sem eru lítill hluti í flestum löndum af þeim sem smitast, og hins vegar langsamlega stærsti hópurinn, samkynhneigðir. Þarfir þessara tveggja hópa eru svo gerólíkar að sama lagasetningin getur tæplega náð til þeirra í raun og veru.
Og í sambandi við það að fjöldi tilfella hefði aukist frá því að fyrsta tilfellið greindist í Svíþjóð og þangað til að lögin voru sett, hæstv. ráðh., er ég sannfærð um það að lög hefta ekki útbreiðslu þessa sjúkdóms. Það er fræðsla og öryggi og skilningur á vandamálum þeirra sem við þennan sjúkdóm fyrst og fremst þurfa að etja. Lögin sem slík eru máttlaus bókstafur sem býr í bókum eða blöðum uppi í hillum inni í húsum. Þau geta ekki sem slík komið í veg fyrir að þessi sjúkdómur breiðist út. Það er fyrst og fremst fræðsla sem að gagni kemur og það að fólk komi óþvingað í fullkomnu trausti til þess að láta mæla sig og fái síðan leiðbeiningar um það hvernig það getur breytt hegðun sinni, sem getur haft áhrif til að draga úr útbreiðslu.