30.01.1986
Sameinað þing: 39. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 2189 í B-deild Alþingistíðinda. (1887)
104. mál, endurskoðun gjaldþrotalaga
Flm. (Sighvatur Björgvinsson):
Herra forseti. Eins og fram kemur í till. er markmið hennar að leysa vandamál þeirra húsbyggjenda sem eiga nú við greiðsluerfiðleika að stríða með skjótum hætti og án þess að þurfi til að koma lagabreytingar eða tafsamar afgreiðslur Alþingis.
Lykilatriðið í þessari till. er að nú þegar yrði sett á stofn sérstök ráðgjafardeild við Húsnæðisstofnun ríkisins sem hæstv. félmrh. hefur raunar þegar afgreitt og afgreiddi eftir að þessi till. var fram komin þannig að lykilatriðið fyrir afgreiðslu málsins með þeim hætti sem tillaga er gerð um í þessari þáltill. er þegar til staðar. Till. gerir síðan ráð fyrir því að þessi ráðgjafardeild fylgist með kröfum og auglýsingum um nauðungaruppboð á íbúðarhúsnæði og taki frumkvæði ef talið verði að nauðungaruppboði verði vart forðað og bjóði íbúðareiganda ráðgjöf. Þiggi íbúðareigandi ráðgjöf, hvort sem hann leitar sjálfur til ráðgjafarþjónustunnar við slíkar aðstæður eða hún hafi frumkvæði að því að bjóða ráðgjöfina og boðið er þegið, er lagt til f tillgr. að húsbyggjandanum verði bent á eða reynt að tryggja að forsendum sé fullnægt fyrir því að veita megi greiðslustöðvun skv. II. kafla gjaldþrotalaga nr. 6 frá 5. maí 1978. Þessi ákvæði hafa ítrekað verið notuð ef um er að ræða fyrirtæki sem hefur lent í greiðsluerfiðleikum og þarf að fá greiðslustöðvun með því sem því fylgir. Þetta hefur hins vegar eiginlega aldrei verið notað ef einstaklingur á í hlut, en einstaklingar hafa að sjálfsögðu sama rétt til að grípa til þessa ákvæðis og fyrirtæki.
Í þessum lögum segir orðrétt:
„Sá sem á í verulegum fjárhagserfiðleikum eða vill freista þess að koma nýrri skipan á fjármál sín með aðstoð lögmanns eða löggilts endurskoðanda, sem hann hefur til þess ráðið, getur óskað þess að skiptaráðandi heimili honum greiðslustöðvun í allt að þrjá mánuði með þeim réttarverkunum sem í 8. gr. segir.“
Sá atbeini sem rætt er um að ráðgjafardeildin veiti er að sjá til þess að íbúðareigandanum sé fengin sú aðstoð lögmanns eða löggilts endurskoðanda sem samkvæmt greininni er forsenda þess að heimild til greiðslustöðvunar sé veitt og uppboði frestað. Þær réttarverkanir sem slík stöðvun hefur í för með sér eru: 1. Óheimilt er að taka bú skuldarans til gjaldþrotaskipta. 2. Óheimilt er að gera fjárnám eða fógetagerð í eigum hans. 3. Óheimilt er að selja eigur hans á uppboði. 4. Óheimilt er að gjaldfella á hann skuld vegna vanefnda á greiðslum eða riftunar á veði.
Með þessum gerningi er íbúðareigandanum sem sé ekki bara veittur uppboðsfrestur heldur gefin grið fyrir skuldheimtumönnum, fógetaaðgerðum og uppboðshótunum og honum um leið séð fyrir sérfræðingsráðgjöf um hvernig best sé fyrir hann að halda á sínum málum. Þetta er sú leið sem flestöll fyrirtæki velja með greiðslustöðvun þegar þau eiga í greiðsluerfiðleikum og dæmi eru um það frá síðustu mánuðum að mörg þeirra hafi bjargað mjög erfiðri stöðu eftir að hafa fengið slíka heimild. Það er að sjálfsögðu rétt að einstaklingar, sem við slíkar aðstæður eiga að búa, njóti sömu heimildar og sé bent á það og sé hjálpað til að verða sér úti um þá ráðgjöf sem þeir þurfa til þess að greiðslustöðvun geti gengið fram.
Komi í ljós að staða skuldarans sé þannig að með eðlilegum lánafyrirgreiðslum megi ætla, lánalengingum o.fl., að hann geti staðið undir skuldum vegna íbúðar sinnar er lagt til í þessari grein að farin verði leið sem er í gildandi lögum, 6. tölul. laga nr. 60 1. júní 1984, um Húsnæðisstofnun ríkisins, en lagagreinin hljóðar svo, með leyfi forseta:
„Úr Byggingarsjóði ríkisins er heimilt að veita lán skv. tölul. 1-9, enda hafi verið gert ráð fyrir þessum lánaflokkum í fjárhagsáætlun sjóðsins fyrir það ár sem veiting láns fer fram.“
6. tölul. sem heimilt er að veita lán samkvæmt er eins og stendur í lögunum „sérstök lán til einstaklinga með sérþarfir“. Húsnæðisstofnun hefur túlkað þetta ákvæði nokkuð frjálst, enda var það upphaflega sett inn í lögin til þess að veita lagalega stoð þeim afgreiðslum Húsnæðisstofnunar að veita lán utan lánaflokka til að aðstoða sérstaklega fólk sem ætti við erfiðleika að etja af félagslegum eða öðrum ástæðum. Það eru í lögunum einnig ákvæði um hvaða lán þetta séu, en samkvæmt lögunum um Húsnæðisstofnun ríkisins eru lán þessi, sem hér er um rætt, til 16 ára, verðtryggð en með aðeins 1% ársvöxtum og eru því tvímælalaust mjög hagstæð. Þessi lán má, eins og segir í lögunum, veita til viðbótar öðrum lánum stofnunarinnar.
Herra forseti. Við flm. þessarar till. höfum hér bent á leið sem hægt er að nýta til að leysa vanda þeirra íbúðaeigenda sem horfast í augu við eignamissi og uppgjöf með neyðaraðstoð á grundvelli gildandi laga þannig að úrlausnir þurfi ekki að bíða, t.d. eftir lagabreytingum eða afgreiðslum Alþingis. Þessi till. fjallar aðeins um hluta vandamálsins, þ.e. þann hluta þess sem varðar það fólk sem fengið hefur lán en ekki getað undir lánunum risið. Slík neyðarhjálp verður að hafa forgang, en tillögur um endurskipulagningu húsnæðislánakerfisins, m.a. með öruggum og föstum tekjustofnum og breyttum útlánareglum, flytur Alþfl. á öðrum vettvangi.
Herra forseti. Ég hef ekki fleiri orð fyrir þessari till., en ítreka aðeins þá ábendingu mína að hæstv. félmrh. hefur stofnað til þeirrar ráðgjafarþjónustu sem till. fjallaði um við Húsnæðisstofnun ríkisins eftir að till. var lögð fram. Þar með hefur hæstv. félmrh. raunverulega fengið Húsnæðisstofnun og lánþegum þann lykil sem ætti að duga til þess að leysa greiðsluvandamál þessara húsbyggjenda án þess að til þurfi að koma tafsamar lagabreytingar eða aðgerðir Alþingis. Við flm. vildum aðeins benda á leið sem fær er til þess að ráðast að þessu vandamáli strax og gera á því bragarbót.
Herra forseti. Ég legg svo til að að lokinni þessari umræðu verði till. vísað til hv. allshn.