30.01.1986
Sameinað þing: 39. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 2193 í B-deild Alþingistíðinda. (1893)
Lánasjóður íslenskra námsmanna
Steingrímur J. Sigfússon:
Herra forseti. Ég bið virðulegan forseta forláts ef láðst hefur að tilkynna honum að ég mundi hefja þessa umræðu utan dagskrár. Hv. 3. þm. Reykv. fór fram á fyrir hönd þingflokks Alþb. að fá þessa umræðu, en hann er sem kunnugt er starfandi formaður þingflokksins í fjarveru hv. 3. þm. Norðurl. v. og hygg ég að það skýri þetta mál nægjanlega, herra forseti.
Ég hef kvatt mér hljóðs til að ræða málefni Lánasjóðs ísl. námsmanna og leggja nokkrar spurningar fyrir hæstv. menntmrh. varðandi sama efni.
Frá því að Alþingi var að störfum fyrir jólaleyfi hefur ýmislegt það gerst í málefnum lánasjóðsins sem nauðsynlegt er að ræða á Alþingi og það fyrr en síðar.
Ég vil þá fyrst víkja að þeim yfirlýsingum sem hæstv. menntmrh. margendurtók um að það stæði ekki til að koma í bakið á námsmönnum með skertum námslánum á miðju námsári. Slíkar yfirlýsingar hafði hæstv. ráðh. uppi með stórum orðum og miklu málprjáli, eins og hans er vandi, bæði í fjölmiðlum og hér á Alþingi fyrir jólaleyfi. Hann sagði hæstv. ráðh. í umræðum um lánsfjárlög á Alþingi hinn 19. desember s.l., sbr. Alþingistíðindi dálki 1973, og með leyfi þínu, herra forseti:
„Ég legg þó áherslu á að það verður auðvitað leitast við að koma ekki aftan að námsmönnum með nýja skipan mála sem mundi“ - og nú bið ég menn að taka vel eftir - „mjög hrugga við áformum þeirra á námsbrautinni.“
Samkvæmt upplýsingum frá bókasafni Alþingis þýðir sögnin „að hrugga“ í þessu samhengi að ekki standi til að hreyfa við eða hnika til þeim kjörum sem námsmenn búa við. Hygg ég að þetta megi finna í ekki færri en þremur íslenskum orðabókum. Þannig voru yfirlýsingar hæstv. menntmrh. alveg ótvíræðar þegar hann notaði sögnina „að hrugga við“ í þessu samhengi.
Svipaðar yfirlýsingar hefur hæstv. menntmrh. gefið í fjölmiðlum, bæði um þetta leyti og einnig síðar. En hvað gerðist svo? Hverjar urðu efndir þessarar stóryrtu heitstrengingar til námsmanna? Jú, þvert ofan í þessar yfirlýsingar gaf ráðherra út reglugerð í upphafi nýs árs, reglugerð sem mun vera dagsett 3. janúar 1986, sem skerðir námslánin á síðari hluta yfirstandandi námsárs þannig að lán til námsmanna hér heima haldast óbreytt í krónutölu miðað við útlán á tímabilinu september til nóvember 1985 sem aftur byggðu á framfærslu miðað við ágústverðlag sama árs. Miðað við fyrri reglur kemur því skerðingin fram þegar á lán vegna desembermánaðar og síðan í vaxandi mæli á þessu ári. Verðbólgan mun vera 40% eða þar um bil hjá hæstv. ríkisstj. um þessar mundir þannig að á ársgrundvelli má reikna með að skerðingin, miðað við síðasta mánuð þessa námsárs, verði allt að 30%.
Lán til námsmanna erlendis skerðast þannig að þau eru fest við framfærslu tímabilsins september til nóvember og gengi dagsins 29. nóvember s.l. Ætla má að skerðingin á lánum til námsmanna erlendis verði talsvert minni að meðaltali, en mun ójafnari eins og ég vík að síðar.
Útgáfa þessarar reglugerðar þvert ofan í heitstrengingar um hið gagnstæða, jafnvel úr ræðustól hér á Alþingi, er auðvitað hneyksli, herra forseti, og þættu stórpólitísk tíðindi alls staðar annars staðar í lýðræðisríkjum en hér á Íslandi, en hér höfum við, eins og kunnugt er, í hartnær þrjú ár orðið að búa við blaðurskjóður á ráðherrastólum sem hafa með öllu reynst ófærar um að bera ábyrgð á orðum sínum og yfirlýsingum.
Að þessum formála höfðum, herra forseti, vil ég í fyrsta lagi spyrja hæstv. menntmrh.:
Hvernig telur ráðherra að útgáfa reglugerðar 3. janúar s.l. um skerðingu námslána samræmist ummælum hans og heitstrengingum um að ekki verði raskað högum námsmanna inn á miðju yfirstandandi námsári?
Í öðru lagi: Hyggst hæstv. menntmrh. halda fast við nefnda reglugerð og er ætlunin að láta hana gilda út þetta námsár eða jafnvel út allt árið?
Hæstv. menntmrh. hafði uppi á hinu háa Alþingi 19. desember s.l. ummæli um Lánasjóð ísl. námsmanna og starfsemina þar sem mér þóttu býsna kyndug, en þau skiljast nú betur, þessi ummæli, þegar hæstv. ráðh. hefur í verki endurtekið sýnt hug sinn í þessum málum. Hæstv. ráðh. sagði m.a., með leyfi forseta:
„Ég hef þó séð ýmislegt það í starfsemi sjóðsins sem ég tel að gagngerra úrbóta krefjist og fyrir því mun ég beita mér.“
Og enn fremur:
„En ég hef fyrir mér ástæður til að leggja ekki mjög mikið upp úr áætlunum sem af hálfu þessa sjóðs hafa verið gerðar. Það hef ég nú, án þess að hirða um að rekja það frekar“, sagði hæstv. ráðh.
Við þessar umræður um lánsfjárlög tók ég til máls, herra forseti, og óskaði skýringa á þessum ummælum ráðherrans um lánasjóðinn. Þá sagði ég m.a.:
"Hæstv. ráðh. sagði ákveðna hluti um Lánasjóð ísl. námsmanna sem ég var mjög hissa á, herra forseti. Maður á því ekki að venjast að það sé nánast verið með dylgjur í garð slíkra stofnana án þess að það sé rökstutt. Hvað er það sem hæstv. ráðh. er að fara þegar hann segir að hann hafi ýmislegt fyrir sér í því að það sé ekki mark takandi á áætlunum frá þessum sjóði, ekki nema mjög í hófi, allt sem frá honum komi sé einhver vitleysa? Hann sagði að ýmislegt í starfsemi sjóðsins krefðist gagngerra úrbóta. Ég óska skýringa á þessum ummælum hæstv. ráðh. Á hann við starfsemina sem slíka? Á hann við reksturinn? Hefur verið farið illa með fé þarna? Vinna þarna einhverjir óþokkar? Er verið að sólunda þarna fé? Hvað er á ferðinni? Hvers vegna notar hæstv. ráðh. þessara mála svona orðbragð hér án þess að skýra það nánar? Ég óska þess, herra forseti, að við þurfum ekki að hlusta á það að stofnanir eins og Lánasjóður ísl. námsmanna sitji undir slíku ámæli án rökstuðnings. Ég skora á hæstv. ráðh. að falla frá þessum ummælum eða skýra út fyrir okkur ella hvað hann eigi við.“
Það má taka fram og er reyndar óþarfi að hvorugt gerði hæstv. ráðh. Hann svaraði hins vegar með því að saka lánasjóðinn um að hringla með áætlaða fjárþörf sjóðsins. En við nánari skoðun kom í ljós að þar voru á ferðinni niðurskurðaráætlanir frá flokksbróður hans og flokksformanni, hæstv. fjmrh. Þorsteini Pálssyni. En hæstv. ráðh. sagði enn fremur:
„Að mér steðjar ótrúlegur grúi ungra námsmanna sem hafa kvartanir og klaganir daginn langan að bera upp við mig um starfsemi þessa sjóðs.“
Það var ekkert meira né minna. Og enn sagði ráðherrann:
„Það er þýðingarlaust að gera mér upp einhver orð vegna þess að ég tók fram að ég mundi leggja mig fram um að koma ekki aftan að ungum námsmönnum. Vafalaust er of smátt skammtað, en ég sagði líka að þessi kurl yrðu að koma til grafar áður en við slitum þessu þingi þannig að þá mætti finna ráð ef nauðsyn bæri til. En það er ekki nokkur minnsti vafi á því að standi ég sjóðinn, sem fer með fé sem nemur milljörðum, að óreiðustarfsemi og lausung, þá mun ég taka afar fast á því í tillögum mínum til breytinga og bóta“, sagði hæstv. menntmrh. að lokum og lýkur hér tilvitnunum í mál hans.
Ég taldi nauðsynlegt, herra forseti, með hliðsjón af því sem síðar hefur gerst, að rifja þessar dylgjur hæstv. menntmrh. í garð Lánasjóðs ísl. námsmanna upp því mér sýnist alveg ljóst að þarna hafi hæstv. ráðh. hafið óhróðursherferð gegn stofnun og starfsfólki sem heyrir undir hans ráðuneyti, óhróðursherferð sem síðan hefur staðið nær linnulaust með innslögum frá nefndum ráðherra og með dyggilegum stuðningi stuttbrókarliðsins í Sjálfstfl. og auðvitað hefur hin mesta pappírssóun landsins, Morgunblaðið, ekki látið sitt eftir liggja.
Skömmu síðar var, eins og kunnugt er, framkvæmdastjóra Lánasjóðs ísl. námsmanna vikið úr embætti nær fyrirvaralaust og án undangenginnar aðvörunar eins og lög mæla þó fyrir.
Í framhaldi af þessu vil ég spyrja hæstv. ráðh. enn fremur: Telur hæstv. menntmrh. að athuguðu máli að óyggjandi sé að löglega hafi verið staðið að uppsögn Sigurjóns Valdimarssonar framkvæmdastjóra lánasjóðsins á sínum tíma? Það kunna að þykja tíðindi að svo sé spurt, að hæstv. ráðh. sé spurður að því hvort hann telji að hann hafi farið að lögum í embætti sínu, en ég hef það fyrir mér að ýmsir hafa haft uppi efasemdir um lögmæti þessara aðgerða. Má þar nefna prófessor Sigurð Líndal í fréttatíma sjónvarpsins. Hæstv. fyrrv. menntmrh. Ingvar Gíslason mun og hafa haft um þetta efasemdir. Og ég minni á og kannske allra frekast ummæli hæstv. ráðh. sjálfs í sjónvarpinu sem ég hygg að séu nánast einsdæmi þar sem hann sagði efnislega á þá leið: Ja, skítt og laggo með það hvort þetta var löglegt eða ekki. Það var þá þess virði. - Svona hef ég aldrei heyrt nokkurn ráðherra taka til orða fyrr um lagalega stöðu þeirra aðgerða sem hann hefur í frammi. Ég vil því spyrja hæstv. ráðh.: Hefur hann beitt sér fyrir því eða ráðuneyti hans að fram færi lagaleg úttekt á lögmæti þessa brottrekstrar?
Framkvæmdastjórinn var sakaður um vanrækslu í starfi í uppsagnarbréfi og voru m.a. nefndar lélegar áætlanir um fjármál sjóðsins. Því spyr ég hæstv. ráðh. enn fremur: „Er hæstv. ráðh. ljóst að samkvæmt lögum og reglugerðum um námslán og námsstyrki er það stjórn lánasjóðsins en ekki framkvæmdastjóri sem ber ábyrgð á þessum hlutum og hefði þá ekki verið eðlilegra, hæstv. ráðh., að leysa stjórnina eða a.m.k. formann stjórnar frá störfum á meðan rannsókn fór fram í þessum málum?
Ég spyr enn fremur, hæstv. ráðh.: Hefði ekki verið eðlilegt að gefa framkvæmdastjóra sjóðsins kost á að gefa sínar skýringar á þeim ásökunum sem hann er borinn? Og það mætti e.t.v. spyrja, herra forseti. þó það komi ekki beint þessu máli við: Ef hæstv. ráðh. er að gefa hér fordæmi almennt um að áætlanir skuli standa, er þá ekki ástæða til að segja ýmsum fleirum upp? Það hefur komið fram í fjölmiðlum að yfirmenn sjónvarpsins gerðu dálaglegar áætlanir um kostnaðinn af áramótaknallinu þar sem helstu frammámenn þjóðarinnar fengu að dilla sér framan í þjóðina í nokkra klukkutíma. Hvernig stóðst sú áætlun? Hún stóðst þannig að það vantar 1,5 millj. upp á að þetta dæmi gangi upp. Þarf ekki að reka einhverja menn þarna? Vill ekki hæstv. menntmrh., sem einnig er yfirmaður þessarar stofnunar, fara ofan í saumana á þessu sukki? Eða hæstv. forsrh. ef þetta er nú vinnuregla ríkisstj.? Verður hann ekki að leysa hæstv. fjmrh. frá störfum því þær hafa ekki staðist par vel áætlanirnar í ríkisrekstrinum? Ég er hræddur um að halli ríkissjóðs umfram áætlanir gæfi ekki síður tilefni til að leysa bæði fyrrv. og núv. hæstv. fjmrh. frá störfum ef þessi vinnuregla á að gilda jafnt fyrir alla - eða eru menn hér Jónar og séra Jónar eins og sums staðar annars staðar?
Þá vil ég enn fremur víkja að þeirri óvenjulegu hegðun hæstv. menntmrh. að hundsa tilmæli námsmanna um að taka nýjan fulltrúa á þeirra vegum inn í stjórn Lánasjóðs ísl. námsmanna. Hæstv. ráðh. gat talið dreng nokkurn á að kalla til baka lausnarbeiðni sína þegar hann hafði misst sitt umboð, umboð meiri hluta stúdentaráðs, til að sitja sem fulltrúi þess í Lánasjóði ísl. námsmanna og hæstv. ráðh. hefur þverskallast við, þvert ofan í venjur og þvert ofan í eðlilegan lýðræðislegan framgangsmáta, að skipa nýjan fulltrúa í stjórn lánasjóðsins. Þessi ágæti ungi maður, sem m.a. hefur unnið sér það til frægðar að vera umboðsmaður Íslenskra eðalvagna hf. sem fluttu inn lúxusbíla og hefði því ekki verið óeðlilegur ráðgjafi hæstv. ríkisstj. í bílakaupamálum, hafði ekki meiri ístöðu en það að hann lét hæstv. ráðh. telja sig á að sitja þarna áfram í trássi við vilja meiri hluta stúdentaráðs. Ég vil því spyrja hæstv. ráðh.: Hvaða ástæður liggja að baki því að hæstv. ráðh. kýs að halda nýjum og rétt kjörnum fulltrúa núverandi meiri hluta stúdentaráðs utan stjórnar lánasjóðsins með þessum hætti og brjóta þannig bæði hefðir og annað eins og ég til vitnaði? Það má nefna í þessu sambandi að yfir 1000 námsmenn í Háskóla Íslands hafa nú undirritað mótmæli gegn því að þessi fulltrúi sitji þarna inni sem fulltrúi þeirra í stjórn lánasjóðsins, enda má öllum ljóst vera að hann er það ekki lengur. Hann er fulltrúi hæstv. menntmrh. ef hann er þá fulltrúi einhvers annars en fyrirtækisins Íslenskra eðalvagna hf.
Í fjölmiðlum hafa birst undanfarið nokkrar upplýsingar um frv. sem sagt er að sé í smíðum á vegum hæstv. menntmrh. um Lánasjóð ísl. námsmanna eða frv. til 1. um námslán og námsstyrki eins og það heitir víst réttu nafni. Hér virðast vera á ferðinni vægast sagt alvarlegir hlutir þar sem vegið er að jafnrétti til náms og það látið lönd og leið og félagslegt hlutverk lánasjóðsins þurrkáð út. Í Morgunblaðinu sunnudaginn 26. janúar segir á bls. 2 nokkuð frá þessu frv. sem ég tek fram að ég hef ekki séð, og það hafa víst fæstir nema nánasta hirð hæstv. menntmrh. En Morgunblaðið telur sig vita að það sé nefnd á vegum menntmrh. sem unnið hafi að samningu frv. og samkvæmt heimildum Morgunblaðsins, með leyfi forseta, eru lagðar til miklar breytingar á gildandi lögum. Nú vil ég spyrja hæstv. menntmrh.: Hvaða nefnd er þetta? Getur hann greint okkur frá skipunarbréfi nefndarinnar? Getur hann skýrt frá því hver er t.d. fulltrúi Framsfl. í þessari nefnd eða getur hv. þm. Ingvar Gíslason, sem kynni að koma hér upp í ræðustólinn á eftir, skýrt okkur frá því? Veit hann hver er fulltrúi Framsfl. í þessari nefnd hæstv. menntmrh.? Nei, hann hristir höfuðið. Ég veit það ekki heldur. Ég veit ekki til þess að nokkur maður hafi komist inn í þessa nefnd nema nánasta hirð stuttbuxnaliðsins sem er allt um kring ráðherrann, púkarnir sem sitja á öxlum hans og hvísla í eyru hans um Lánasjóð ísl. námsmanna.
Þannig er nú þessi nefnd sem hæstv. menntmrh. virðist vera að láta smíða frv. einhvers staðar úti í bæ. Hann hundsar m.a. stjórnskipaða nefnd sem forveri hans í starfi, hæstv. ráðh. Ragnhildur Helgadóttir sem nú gengur í salinn, hafði skipað áður en hún lét af störfum í þessu ráðuneyti til þessa sama verks eða nokkurn veginn það. Hvers vegna var þeirri nefnd ekki falið þetta verk? Hvers vegna var ekki leitað um faglega þekkingu til stjórnar eða starfsmanna Lánasjóðs ísl. námsmanna? Hvers vegna var öðrum stjórnmálaflokkum ekki veitt aðild að þessari nefnd? Hvers konar vinnubrögð eru þetta, hæstv. menntmrh.? Veit hæstv. menntmrh. til að mynda ekki að það tók mörg ár nefndar sem allir stjórnmálaflokkar áttu aðild að og námsmannahreyfingin o.fl. o.fl. að endurskoða og gera tillögur um ný lög fyrir Lánasjóð ísl. námsmanna sem síðan voru samþykkt 1982? Þannig var talið nauðsynlegt að vinna á þeim tíma með fulltrúum allra stjórnmálaflokka og annarra hagsmunaaðila í málinu.
En nú eru uppi aðrir tímar. Það er alveg greinilegt að skilningur hæstv. menntmrh. á lýðræðishugtakinu er allt annar. Og þetta eru nokkuð sérkennileg vinnubrögð gagnvart samstarfsflokknum án þess að það sé nú beint mín deild að svara fyrir það. Það verður kannske rætt um það hér á eftir ef einhver framsóknarmaður treystir sér til að stíga í stólinn.
Það mætti margt um það segja sem fram kemur í þessum frumvarpsdrögum, sbr. þær heimildir sem ég hef, Morgunblaðið og aðrar slíkar. En það er kannske ekki rétt að ræða það mjög efnislega vegna þess að það liggur ekki fyrir og menn hafa það ekki framan við sig svart á hvítu. Ég vil þó nefna eitt sem dæmi um vinnubrögðin. Það eru þau áform að ekkert tillit skuli tekið til tekna námsmanna við úthlutun námslána samkvæmt þessum nýju reglum. Hér er núna í salnum hæstv. fyrrv. menntmrh. og ég á þar við Ragnhildi Helgadóttur. Þeir eru reyndar fleiri hér staddir, hæstv. fyrrv. menntmrh. En hæstv. ráðh. Ragnhildur Helgadóttir mun hafa haft uppi hugmyndir um þetta sama og áhuga á því sama, eins og fleiri sjálfstæðismenn fá stundum flog með þessum hætti, að það væri rétt að hætta að taka tillit til tekna námsmanna og lána öllum eins og þeim sýndist. Á sama tíma eru helstu röksemdir fyrir þessum breytingum þær að það verði að draga úr kostnaðinum við rekstur lánasjóðsins, að það verði að draga úr útgjöldunum vegna þessa námslánakerfis. Hefur þá hæstv. núv. menntmrh. látið athuga hvað tekjuumreikningurinn sparar lánasjóðnum í útgjöldum? Mér þætti fróðlegt að fá um það upplýsingar. Það er ljóst að bara tekjur námsmanna sjálfra á hverju námsári spara hundruð milljóna. Síðan koma tekjur maka, tekjur barna o.s.frv. þannig að hér gætu verið á ferðinni á þriðja hundrað millj. kr. sem sparast í útlánunum einum vegna þessa.
En málið er ekki þar með búið, hv. þm. Ólafur Þ. Þórðarson af Vestfjörðum. Það kemur nefnilega meira til. Það er alveg óyggjandi að hundruð ef ekki þúsundir námsmanna sækja ekki um námslán við gildandi lánakerfi vegna þess að tekjumörkin og tekjuumreikningurinn útiloka þá. Hvað ætlar hæstv. menntmrh. að gera ef næsta haust kæmu inn 1000-1500 nýjar umsóknir frá mönnum sem ekki hafa sótt um lán hingað til vegna þess að tekjuumreikningurinn er í gildi? Þá er ég hræddur um að þessi tala gæti hækkað allnokkuð. Það gætu bæst við fleiri hundruð millj. kr. til viðbótar. Þá verður að auka útgjöldin um kannske hálfan milljarð eða svo. Er hæstv. menntmrh. tilbúinn til þess? Ég held ekki. Það væri þá skrýtið eftir allt það sem á undan er gengið í ræðum hans. Ég held að hann ætli sér að skerða sneiðina sem hver og einn fær. Það verður þá minna til skiptanna. Þetta er nú allt jafnréttið til náms sem með þessum nýju breytingum á að tryggja.
Ég held að þetta sé eitt dæmi og ég læt það nægja, herra forseti, um að þessi vinnubrögð hæstv. ráðh. og þessar hugmyndir eru svo lítt ígrundaðar að það eru endemi. Hér er um að ræða stærstu fjárfestingu á einu bretti í íslenska þjóðfélaginu eins og það leggur sig. Það er sú fjárfesting sem við verjum til náms á hverju ári. Það er ekki bara lánasjóðurinn. Það er líka það sem hver og einn námsmaður leggur af mörkum og það er reksturinn á öllu þessu kerfi. Það er engin ein fjárfesting í íslenska þjóðfélaginu sem kemst í hálfkvisti við þessa fjárfestingu, menntun þjóðarinnar, þannig að hér eru engin smámál á ferðinni. Hér eru meiri mál á ferðinni en svo, með fullri virðingu fyrir greind hæstv. menntmrh., að hann geti af hyggjuviti sínu einu umbylt þessu kerfi öllu saman á örfáum vikum og fengið einhvern botn í það. Það gerist ekki svoleiðis, hæstv. ráðh.
Ég get nefnt annað dæmi sem snertir setningu þessarar reglugerðar hjá hæstv. ráðh. Hún var auðvitað sett þvert yfir alla línuna, skerðir námslán jafnt hjá öllum. Ég tek dæmi um námsmenn í námi erlendis. Þar er gengið fest við eina ákveðna dagsetningu og framfærslan við eina ákveðna dagsetningu og það verður ekkert tillit tekið til þess hvernig þessi mál þróast á næstu mánuðum ef þessi reglugerð verður í gildi. Við skulum segja að dollarinn standi í stað. Þá er það þannig að námslánin til þeirra sem eru í námi í Bandaríkjunum skerðast ekki neitt, ekki miðað við það sem nemur verðbólgu í því landi og hún er ekki ýkja mikil. En síðan taka kannske einhverjar aðrar myntir, t.d. Evrópumyntir, upp á því að hækka mikið í verði á þessum mánuðum. Hvað gerist þá? Jú, þá skerðast námslánin til þess námsmannahóps þannig að útkoman getur orðið mjög ójöfn. Það kostulegasta við þetta allt saman er að samkvæmt upplýsingum frá lánasjóðnum var helst forsenda til þess að skerða námslánin hjá þeim sem voru í námi í Ameríku. Þeir voru að bestu manna yfirsýn taldir standa best að vígi, en þörfin fyrir hækkun væri frekar hjá hinum sem stunda nám víða í Evrópu. Þvert gegn allri skynsemi og öllum rökum verkar því þessi reglugerð hæstv. menntmrh.
Hæstv. menntmrh. og helstu fylgismenn hans hafa kosið að vinna á móti námsmönnum í þessu máli. Þeir hafa ekki valið þá aðferð að láta fyrst á það reyna hvort hugsanlegt væri að ná samkomulagi og samstarfi. Það var farið beint í að gefa út stríðsyfirlýsingar og slá um sig í fjölmiðlum, berja á bumbur og ráðast gegn þessu kerfi öllu eins og það lagði sig í heilagri krossferð. Þetta eru ákaflega óskynsamleg vinnubrögð, mjög óskynsamleg að mínu mati. Og alveg tekur steininn úr þegar erindismenn ráðherrans fara að koma á framfæri villandi, jafnvel beinlínis röngum upplýsingum um rekstur lánasjóðsins, um námslán, um skuldir einstakra námsmanna.
Af því að hér situr í hliðarsal nær augum mínum ungur maður, varaformaður stjórnar lánasjóðsins Auðunn Svavar Sigurðsson, vil ég vitna í ummæli sem hann hefur látið hafa eftir sér í fjölmiðlum um að það sé fjöldinn af námsmönnum, fjöldinn allur sem skuldi hér milljónir á milljónir ofan. Þetta sé svo gífurlegt og gegndarlaust. Það séu milljónaskuldir hjá fjöldanum öllum af námsmönnum. En hvernig er þetta?
Það er þannig, herra forseti, að 39,5% af öllum skuldurum hjá Lánasjóði ísl. námsmanna skulda innan við 250 þús. kr. og 29,8% skulda á bilinu 250-500 þús. Þessi hópur greiðir öll sín námslán upp á innan við 25 árum, þessi langstærsti hópur skuldara. Síðan fer þetta jafnt og þétt lækkandi. Þegar komið er t.d. í 1,5 millj. kr. er það 1,1% sem eftir er. Það eru 0,36% sem skulda yfir 2,5 millj. Það eru ekki nema 3,8% þeirra námsmanna, sem skulda hjá lánasjóðnum, sem ekki ná að borga upp öll sín lán og þar af eru samkvæmt núgildandi kerfi um 10-15% af námslánunum sem ekki greiðast upp. Það hefur ekkert komið fram, hvorki hjá ráðherranum né öðrum, sem bendir til annars en að áætlanir standist um endurgreiðsluhlutfall miðað við núgildandi kerfi. Ég bið þá hæstv. menntmrh. að leggja það hér á borðið.
Vegna þess að við ræddum hér um áætlanir áðan og nákvæmni í áætlanagerð ætla ég að segja eina stutta sögu af slíku. Það er þegar námslögin voru sett árið 1976. Þá var t.d. sami framkvæmdastjóri og hæstv. menntmrh. rak við störf hjá lánasjóðnum, ef ég fer rétt með. Það er ekki ólíklegt að hann hafi átt einhvern þátt í þeirri áætlunargerð sem þá var unnin og benti til þess að 66% af lánum mundu greiðast til baka miðað við það kerfi. Nú hefur nokkur tími liðið og menn hafa fengið tímann með sér til þess að láta reynsluna dæma þessa áætlun. Og hver er útkoman? Hún er sú að 65% skila sér til baka. Það munar einu einasta prósenti. Er þetta ekki nokkuð laglega gert, hæstv, ráðh.? Það finnst mér. Þetta finnst mér sýnu skárri áætlunargerð en t.d. hjá þeim í sjónvarpinu, undirmönnum þínum þar. Það er ekki slæm einkunn sem þeir menn sem að þessu unnu fá með þessu dómi reynslunnar. Og ég hef enga ástæðu til að ætla annað en að áætlanir um endurgreiðsluhlutfall samkvæmt gildandi lögum, sem tóku gildi 1982, standist einnig og vonandi jafnnærri þessu.
Ég sagði áðan, herra forseti, að hæstv. ráðh. hefði kosið að vinna á móti, námsmönnum og það held ég að menn hljóti að hafa sannfærst um með því að fylgjast með fjölmiðlum og fréttum undanfarna daga. Ég sannfærðist alla vega um það, herra forseti, að hann hefur unnið óskynsamlega gagnvart námsmönnum erlendis. Þær fréttir sem þeir hafa fengið af þessum þreifingum ráðherrans hafa nægt til þess að þeir hafa hver á sínum stað safnast saman og rætt þetta mál. Mér hafa borist tugir mótmælaskeyta frá námsmönnum stöddum í ýmsum borgum erlendis. Ég ætla að lesa upp nokkur sýnishorn af þessum skeytum, með leyfi forseta, til þess að menn skynji það og heyri sjálfir hvernig andrúmsloftið er gagnvart hæstv. menntmrh. og brölti hans í þessum lánamálum:
„Menntmrh. Sverrir Hermannsson. Við viljum minna á að lög um námslán eiga að stuðla að jafnri aðstöðu til menntunar. Námsmenn í Oregon.“
„Lánasjóður ísl. námsmanna er sú stofnun í menntakerfi landsins sem síst má veikja. Námsmenn við Cornell-háskóla í Bandaríkjunum skora á Alþingi að standa gegn öllum þeim breytingum á lögum sjóðsins sem hafa í för með sér skerðingu á jafnrétti til náms með tilliti til námsgreina, námslands eða tekna að námi loknu. SÍNE-deildin í Íþöku.“
„Sverrir Hermannsson. Mótmælum harðlega fram komnum tillógum um skerðingu á kjörum námsmanna. SÍNE-deild, San Francisco-borg.“
(Menntmrh.: Átti ég ekki að fá þessi skeyti?) Þau eiga að hafa borist hæstv. menntmrh. Þau eru send ráðherranum í gegnum samtök íslenskra námsmanna erlendis, SÍNE, og ég veit ekki betur en þau hafi verið send ráðherranum í dag, þau skeyti sem þá höfðu borist, en ég fékk af þeim afrit og það munu formenn allra þingflokka einnig hafa fengið á Alþingi upp úr hádeginu. Þetta er varla hernaðarleyndarmál, herra menntmrh., eða ætlast hann til þess að ég hætti lestrinum? Fer þetta eitthvað í taugarnar á honum? (Menntmrh.: Nei, nei.) Nei. Þá les ég áfram.
„Herra menntmrh. Við 45 íslenskir námsmenn í Vestur-Berlín gefum stjórn SÍNE fullt umboð til að koma mótmælum okkur við brtt. yðar á starfsháttum LÍN á framfæri. F.h. námsmanna. Ketilbjörn Tryggvason.“
„Menntmrh. Sverrir Hermannsson. Við mótmælum harðlega frv. til 1. um námslán sem felur í sér gífurlega röskun á jafnrétti til náms. Sýndu þjóðinni sóma þinn og dragðu frv. og reglugerðarbreytinguna frá 3. janúar til baka. Uppsaladeild SINE.“
Ég hygg að ég þurfi ekki að lesa fleiri texta, herra forseti, eða er ekki forseti mér sammála um að merking þeirra hafi komist nokkuð á framfæri? Ég held að þau sé öll nokkurn veginn í sama dúr.
Ég ætla þá að lesa hvaða hópar námsmanna hafa sent skeyti í svipuðum dúr: Það er SÍNE-deildin í Kaupmannahöfn, það er Samband ísl. námsmanna í New York, það eru námsmenn í Quebec og Torontoborg, það er stjórn SÍNE í Lundi, það eru námsmen í Hamborg, það eru Stokkhólmsdeild SÍNE, það er SÍNE-deildin í Osló, það er námsmenn í Stuttgart í Vestur-Þýskalandi og það er SÍNE-deildin í Kiel.
Þetta lýsir svolítið andrúmsloftinu í garð hæstv. menntmrh. og vinnubragða hans meðal hópa námsmanna erlendis. Yfir 1000 íslenskir námsmenn í Háskóla Íslands hafa einnig undirritað mótmæli gegn vinnubrögðum ráðherrans gagnvart fulltrúa þeirra í lánasjóðnum. Það eru meira að segja ýmis önnur stórmenni beinlínis farin að tyfta hæstv. ráðh. og setja ofan í við hann. Næstum því heilagur maður í Sjálfstfl., Davíð Oddsson borgarstjóri, tekur hæstv. menntmrh. á kné sér eins og skólastrák og tyftar hann fyrir þessa vitleysu, þessi vinnubrögð. Hann er greinilega eitthvað órólegur að flokksbræður hans skuli haga sér með þessum hætti rétt fyrir borgarstjórnarkosningar og ég skil hann vel. Ég mundi skammast mín fyrir það, ef ég væri einhvers staðar að fara í framboð, að hafa svona menn í mínum flokki eða sem ynnu svona að málunum.
Mig langar, herra forseti, að vitna aðeins í borgarstjórann þó að ég geri það ekki hversdagslega, alla vega ekki öllum öðrum mönnum fremur. Hann kemst svo ágætlega að orði að ég held að ég lesi hér smákafla sem eftir honum er hafður í Morgunblaðinu í gær:
„Borgarstjórinn sagði að ekki hefði verið vanþörf á að taka til hendi á skrifstofu Lánasjóðs ísl. námsmanna og koma stjórnun þar í skikkanlegt horf.“ Síðan kemur innan hermimerkja eins og við segjum hér á Alþingi: "„Á hinn bóginn verður að fara varlega í að skerða þau kjör sem námsmenn hafa búið við og hafa miðað sínar áætlanir við er þeir hurfu til náms, jafnvel með fjölskyldur sínar“, sagði Davíð Oddsson. Taldi hann nauðsynlegt að námsmenn hefðu aðlögunartíma ef gengið yrði til breytinga og náið samstarf verði haft við þá um breytingarnar. „Hér er verr farið af stað en heima setið ef gengið er of hart fram í þessum efnum, jafnvel svo að fyrr eða síðar verða menn að kokgleypa eigin ákvarðanir í sig aftur og sitja þá ekki uppi með annan ávinning en þann að hafa valdið umróti og sárindum sem seint gróa.“" - kokgleypa eigin ákvarðanir ofan í sig aftur.
Þannig er spádómur borgarstjórans í Reykjavík um gönuhlaup hæstv. menntmrh. og megi honum ratast satt á munn.
Hæstv. ráðh. hefur unnið að þessu máli með sérkennilegum hætti eins og ég hef áður rakið. Hann hefur kosið helsta vígvöll sinn fjölmiðlana og dagblöðin í landinu. Þar hefur hann með stóryrtum yfirlýsingum og stríðsfyrirsögnum barið sér á brjóst sem hinn mikli athafnamaður sem aldeilis taki nú til hendinni og hreinsi til. Mig langar til að vitna í tvennt í því sambandi. Hann sagði í Morgunblaðinu fimmtudaginn 9. janúar, með leyfi forseta:
„Ég held að starfsemi sjóðsins sé sukk og ég ætla a.m.k. að ganga úr skugga um hvernig megi koma þessu í fastara form, t.d. með því að skipta við banka um allar þessar afgreiðslur.“
Hann hefur sennilega hugsað sér Útvegsbankann,. hæstv. menntmrh., sem trausta og ábyggilega stofnun sem væri vel að því komin að fjalla um þessi mál. (Menntmrh.: Garðar Sigurðsson segir að hann sé góður.) Það væri vel við hæfi að fela Útvegsbankanum þessa afgreiðslu núna rétt eftir jólafrí og Hafskipsmál.
Hæstv. menntmrh. var á beinni línu í gær, eins og það heitir víst, hjá Dagblaðinu og þar notaði hann ítrekað sögnina „að slugsa“. Ég hafði ekki tíma til að fletta upp í orðabókum - (Menntmrh.: Slugsa.) Slugsa, já. - og fá þar ítarlegri útlistun á því hvað þessi sögn nákvæmlega merkir eða t.d. fara í samheitaorðabók og finna samheiti. Það hefði örugglega verið fróðlegt að finna samheiti yfir þetta slugs í námsmönnum. (Menntmrh.: Það þýðir sama og hangs.) Já. Hann sagði m.a. þarna á beinni línu:
„Ég er afskaplega skammt á veg kominn með að taka ákvarðanir um þessi mál. Fjölmiðlar eru að taka þær fyrir mig um þessar mundir, en ég ætla samt að fylgjast með því að námsmenn séu ekki að slugsa og gera það fyrir peninga þjóðfélagsins.“
Svona ummæli frá hæstv. menntmrh. lýsa slíkri vanþekkingu og slíkri fordild að það er með endemum að annað eins skuli koma frá æðsta yfirmanni menntamála í landinu. Það er hreint með endemum, sú vanþekking, sá miðaldahugsunarháttur sem þarna kemur fram. Veit hæstv. menntmrh. ekki, sennilega ekki, það hlýtur að vera, annars tæki hann ekki svona til orða, að Lánasjóður ísl. námsmanna hefur um árabil gert mjög strangar kröfur um framvindu í námi til þess að menn hefðu þar rétt til lántöku? Þetta veit hæstv. ráðh. ekki. Þetta er skelfileg vanþekking. Ég held að það hafi borið allt of brátt að að hæstv. ráðh. varð að hoppa úr stóli iðnrh. yfir í menntamálin, of lítill undirbúningstími. Hann hefði þurft að fara í fornám, hæstv. menntmrh. - eða hvernig ætlar hæstv. ráðh. að fylgjast með því að námsmenn séu ekki að slugsa? Það er fróðlegt að fá það skýrt hér? Ætlar hann að reka hvern og einn persónulega til náms? Ætlar hann að hlýða hverjum einasta námsmanni yfir á morgnana um heimalærdóminn? Hvernig ætlar hann að tryggja þetta, hæstv. ráðh.? Hvaða aðferð hefur hann hugsað sér?
Þó finnst mér kostulegust forsíða Dagblaðsins: „Ég er rétt að byrja að stjórna.“ Sjálfumglaður og síbrosandi: „Ég er rétt að byrja að stjórna.“
Ja, guð hjálpi oss ef hann fær að stjórna eins og hann vill, ef hann kemst almennilega í gang, ef þetta er byrjunin. Ég segi bara það. Hvers eiga námsmenn þá að vænta í framtíðinni ef áframhaldið verður í samræmi við það sem ráðherrann þarna segir?
Hv. formaður Sjálfstfl. og hæstv. fjmrh., er hann nærstaddur? Það hefði verið fróðlegt að eiga orðastað við hann ef hann væri búinn að ná heilsu og væri mættur hér á meðal vor. Varaformaðurinn svaraði fyrir hann í gær, en hann er ekki hér heldur. Ég ætlaði nefnilega að beina einni spurningu til annarra en hæstv. menntmrh., en þó í Sjálfstfl. Ég ætlaði að spyrja Sjálfstfl. almennt það því hvort þetta gönuhlaup, þessi flumbrugangur í hæstv. menntmrh. í þessu máli væri með vitund, vilja og samþykki Sjálfstfl. alls og hvort það hefði átt sér stað stefnubreyting í viðhorfum til námslánakerfisins hjá Sjálfstfl. 3. gr. gildandi laga um námslán og námsstyrki hefst á þessum orðum, herra forseti:
„Opinber aðstoð við námsmenn samkvæmt lögum þessum skal nægja hverjum námsmanni til að standa straum af eðlilegum náms- og framfærslukostnaði þegar eðlilegt tillit hefur verið tekið til fjölskyldustærðar, framfærslukostnaðar þar sem nám er stundað“ o.s.frv.
Ég hefði haft gaman af því að heyra frá Sjálfstfl. ef einhver treystir sér til að svara fyrir hann hér. Styður Sjálfstfl. enn þá þá megingrundvallarhugsun sem þarna kom fram sem er í gildandi lögum? Hvað segir hæstv. síðast verandi menntmrh., frú Ragnhildur Helgadóttir? Hafði hún hug á að breyta þessari grundvallargrein laganna um Lánasjóð ísl. námsmanna eða ekki? Og hvað segja aðrir sjálfstæðismenn hér? Það væri fróðlegt að vita hvort hæstv. menntmrh. vantar e.t.v. stuðning fleiri sjálfstæðismanna en borgarstjórans í Reykjavík.
Nei, herra forseti. Öll þessi krossferð hefur verið með endemum ósmekkleg. Hún hefur verið dæmigerð auglýsingamennska manns sem hefur lítið annað fram að færa í sínu embætti en kjaftháttinn einan saman, sem byggir störf sín ekki á þekkingu á viðkomandi málefni og sem skortir rósemi og yfirvegun til að vinna málin af skynsemi þannig að farsælt geti talist. Þetta eru hörð orð, en ég skal standa við hvert og eitt þeirra. Ég fullyrði þetta, herra forseti. Annað eins dæmi um flumbrugang á ráðherrastóli höfum við ekki fengið lengi á Íslandi. Og guði sé lot. Guði sé lof að slíkt er sjaldgæft sem betur fer.
Ósmekklegast hefur þó verið af öllu þegar íslensku láglaunafólki er att upp á móti námsmönnum. Reynt er að telja því trú um af Morgunblaðinu og af talsmönnum ráðherrans að það sé sérstakt böl fyrir láglaunafólkið í landinu að það sé við lýði réttlátt og sanngjarnt námslánakerfi á Íslandi. En hverjir halda menn að þurfi mest á slíku að halda aðrir en einmitt láglaunafólkið í landinu? Hverjir yrðu það sem fyrst gæfust upp við að koma börnum sínum til mennta ef þetta kerfi væri ekki fyrir hendi? Jú, auðvitað það fólk sem minnstar hefur tekjurnar. Þar væru aðstæðurnar erfiðastar til að leggja eitthvað af mörkum handa námsfólkinu og greiða kostnað þess vegna náms. Þetta gengur ekki. Svo einfalt er fólk ekki á Íslandi. Það hefur enda verið baráttumál alþýðumanna um áratuga bil að tryggja jafnrétti til náms á Íslandi. Það þarf enginn að telja mér trú um að því verði svipt yfir á nokkrum vikum með ósmekklegum áróðri og óhróðri eins og hér hefur verið uppi hafður, jafnvel þó að Morgunblaðið hafi svo mikið við að draga upp línuritin um kjaraskerðinguna í tíð þessarar ríkisstj. Þá voru þau allt í einu orðin góð. Þá var í lagi að birta þau á síðum Morgunblaðsins þegar það átti að nota þau til árása á námsmenn. Þetta eru línurit sem hafa verið bönnuð þar á bæ. Línuritin sem sýna hvernig kjör almennings hafa fallið í tíð þessarar ríkisstj. voru allt í einu nógu góð til að nota þau gegn námsmönnum.
Í stuttri samantekt, herra forseti, sem ég ætla að ljúka máli mínu með, sýnist mér þetta liggja fyrir nokkurn veginn á eftirfarandi hátt:
1. kafli: Nýr maður lendir óvart í embætti menntmrh. Sá hafði áður haft hugann við iðnaðarmál og er því stundarkorn að ná áttum og læra híbýlaskipan á nýjum stað.
2. kafli: Ráðherranum berst til eyrna að undir ráðuneyti hans heyri lánasjóður nokkur sem velti miklum peningum. Ráðherrann þykist skynja að hér sé lag til að slá sér upp og lýsir því yfir að hann þykist taka til hendi, gera rassíu hjá téðum sjóði. En ráðherrann tekur fram og hann ítrekar að enn vanti hann upplýsingar og sé að setja sig inn í málin, hann sé að skoða sig um bekki, eins og hann segir stundum. Hann viti sem sagt mjög lítið um þessi mál enn og var það síst ofsagt.
3. kafli: Litlir púkar setjast á axlirnar á ráðherranum og hvísla í eyru honum að ýmislegt megi nú finna að rekstri stofnunarinnar ef vel sé að gáð. Í stað þess að rannsaka þennan orðróm, í stað þess að biðja stjórn eða starfsfólk um skýringar, í stað þess að halda ró sinni og yfirvegun og yfirvega allar aðgerðir í málinu, í stað þess hreint út sagt að haga sér eins og sæmilega vitiborinn maður, kunnandi helstu leikreglur og almenna mannasiði, rýkur hæstv. ráðh. til og finnur sér blóraböggul, rekur í trássi við lög og rétt framkvæmdastjóra sjóðsins úr starfi fyrir meinta vanrækslu sem reyndar heyrir undir og er á ábyrgð stjórnar en ekki framkvæmdastjórans.
4. kafli: Þvert ofan í fyrirheit ráðherrans kemur hann aftan að námsmönnum á miðju námsári og skerðir námslán frá því sem í gildi var er þeir hófu nám á s.l. hausti. Þannig gerir ráðherrann á einu bretti sjálfan sig ómerkan orða sinna, kemur aftan að námsmönnum og sýnir Alþingi Íslendinga lítilsvirðingu því þar gaf hann þær yfirlýsingar sem ég hef hér vitnað til.
5. kafli og hefst nú gamanið fyrir alvöru: Ráðherra hefur nú náð sér á skrið. Næst er rokið til og að því er virðist hafin frumvarpssmíð sem hvorki er ætlað meira né minna en að umbylta námslánakerfi landsmanna. Verkið er ekki sett í hendur nefndar fyrrverandi menntmrh., ekki er leitað til stjórnar sjóðsins eða starfsmanna um faglegar upplýsingar, ekki talað við námsmannahreyfinguna, ekki leitað til annarra stjórnmálaflokka. Nei, ráðherra setur allt sitt traust á álfana á öxlum sér, á einhverja óskilgreinda klíku að því er virðist, fyrir svo utan auðvitað þann vísdóm sem sóttur er í þekkingu og hyggjuvit ráðherrans sjálfs og ber ekki að gleyma því.
6. kafli: Á meðan þessu fer fram er haldið uppi nokkuð vel skipulagðri óhróðursherferð um Lánasjóð ísl. námsmanna og starfsfólk þar og um allan þann skara námsmanna sem lifi í vellystingum praktuglega og slugsi við nám. Helsta málgagn ráðherrans og skósveina hans í lánamálunum, Morgunblaðið, grefur jafnvel upp línuritin góðu um kjaraskerðinguna, eins og ég hef hér áður vikið að.
Nú er það vonandi orðið ljóst, herra forseti, alveg ljóst, að ég tel aðför hæstv. menntmrh. Sverris Hermannssonar að lánasjóðnum og starfsfólki hans, þá óhróðursherferð sem hann hefur ýtt þar undir, forkastanlega framkomu af hálfu eins ráðherra. Ég kýs að nota hér orðin forkastanlega framkomu af hálfu eins ráðherra. Ég tel reyndar alla framgöngu ráðherrans í þessu máli dæmigert gönuhlaup manns sem hefur ekki þekkingu á viðfangsefni sínu, vill ekki viðurkenna það og anar áfram í blindni. Stóryrðaglamur, skringileg orðatiltæki og digurmæli alls konar duga einfaldlega ekki í svo stórum málum, herra forseti. Það verður að gera meiri kröfur til ráðherra íslenska lýðveldisins en þær að þeir séu sæmilega liðugir í kjaftinum.
Síðasta spurning mín til hæstv. ráðh. er því varðandi það hvers megi vænta um málsmeðferð hans á næstunni. (Gripið fram í.) Þetta er varðandi málsmeðferð þína á næstunni, hæstv. menntmrh. - Ætlar hæstv. ráðh. að breyta til, að róa sig niður, að fara að vinna með fólki í staðinn fyrir á móti, að leita samráðs við námsmannahreyfingarnar í staðinn fyrir að lýsa þeim stríði á hendur, að leita samstarfs við aðra stjórnmálaflokka í staðinn fyrir að hundsa þá, að leita að því sem samstaða getur náðst um og láta á það reyna hvort ekki er hægt að ná samkomulagi um einhverjar breytingar ef niðurstaðan verður sú að þær séu nauðsynlegar? Ég ætti kannske að minna hæstv. ráðh. aftur á hvernig var staðið að þessum málum síðast, hvaða tíma það tók, hversu marga fundi hv. þm. Friðrik Sophusson sat fyrir hönd Sjálfstfl. í nefnd til að semja ný lög og nýjar reglur um lánasjóðinn á árunum fyrir 1982. Þeir voru ófáir, leyfi ég mér að fullyrða. Þá var eytt miklum tíma og málin skoðuð frá öllum hliðum og allir viðkomandi málinu áttu aðild að þeirri vinnu. Þetta ætti að verða hæstv. ráðh. fordæmi. - Eða, og nú kemur síðasta spurningin, alveg sú síðasta, ætlar hæstv. menntmrh. að halda áfram með því sem ég vil kalla aðferð nashyrningsins þegar hann verður fyrir áreiti, þ.e. að vaða áfram í blindni með hausinn undir sér á hvað sem fyrir verður og láta reyna á það í hvert eitt skipti hvort lætur fyrr undan höfuðið eða fyrirstaðan?