30.01.1986
Sameinað þing: 39. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 2205 í B-deild Alþingistíðinda. (1894)

Lánasjóður íslenskra námsmanna

Menntmrh. (Sverrir Hermannsson):

Herra forseti. Það er sem betur fer sjaldgæft að þurfa að sitja undir slíku rugli eins og hv. síðasti ræðumaður leyfði sér að hafa hér í frammi, horfa á slíkt vængjabusl, en golubelgir, pólitískir golubelgir Alþb. láta sig ekki muna um þetta. Það er að verða nokkuð tíðkuð aðferð þeirra að ausa mann slíkum svívirðingum eins og hér gat á að heyra, en ekki kippi ég mér upp við það.

Það hafa dálítið truflað um fyrir mönnum að taka efnislega afstöðu til þessara mála þær persónur sem komið hafa við sögu og þá á ég við sérstaklega framkvæmdastjóra Lánasjóðs ísl. námsmanna. Ég get aðeins rakið höfuðþætti þess máls. Ef hv. 4. þm. Norðurl. e. Steingrímur J. Sigfússon og flokkur hans telur að það séu aðfarir að sporna við framhaldi slíkrar starfsemi og starfshátta, eins og gat á að líta hjá Lánasjóði ísl. námsmanna, þá hann um það og sá flokkur. En ég held að þeir ættu að tala varlega áður en öll kurl eru þar komin til grafar.

Þegar ég kom að menntamálaráðherraembættinu lá þar fyrir beiðni um aukafjárveitingu vegna afgreiðslu á lánum til íslenskra námsmanna í nóvember og desember að fjárhæð 181 millj. kr. rúm. Ég sneri mér til fjmrh. og sagði honum að ég teldi það óbærilegt ef við brygðumst ekki við þessari beiðni þegar svo seint var komið á ári, að við mundum fara aftan að námsmönnum ef þessari beiðni yrði ekki sinnt. Og þessari beiðni var sinnt næstum því nákvæmlega eins og um hana var beðið. Fjárlaga- og hagsýslustofnun skar af 5 millj. rúmar. Og hvers vegna? Af því sem hún hélt sér fast við þá heimild sem þessi sjóður hafði til stöðuheimilda, sex, en sjóðurinn var rekinn með tuttugu og sex og afgangurinn af laununum borgaður út af námslánafjármagninu án nokkurra heimilda. 176,3 millj. kr. voru reiddar af hendi til að lána námsmönnum á tveimur síðustu mánuðum ársins. Þetta var á sömu dögum og við þingmenn vorum að fljúgast á um og biðja grátandi um ásmundarjárn og snæri, þegar við vorum að biðja um einhverjar milljónir í mesta lagi til bráðnauðsynlegustu hluta sem við bárum fyrir brjósti.

Og hvert er svo framhaldið? 2. desember fæ ég upphringingu - og hlusti nú hv. þm. vandlega á (SJS: Ég hef heyrt þetta áður.) ef hann metur að þetta sé að mál fari vel úr hendi. Þá er ég hringdur upp með þá tilkynningu að þetta nægi hvergi nærri, þetta fjármagn sem reitt var af hendi. Það vanti 50 millj. í viðbót. Ég var að reyna til við að verja niðurskurð á Listasafni Íslands og fjölmörgum öðrum nauðsynjahlutum sem snerust um örfáar milljónir kr. Mér voru fengnar í hendur 92 millj. kr. að skera niður hjá menntmrh. til ýmissa bráðnauðsynlegra hluta. Og við vitum hvernig því var tekið. Við munum eftir tillögugerð stjórnarandstöðunnar hvar þeir komu til skjalanna og margfölduðu tillögur sínar um fjárhæðir til þessara hluta sem auðvitað voru nauðsynlegar en við höfðum ekki efni á. Ég skar þar 92 millj. kr. niður. 50 milljónir var beðið um og þegar ég spyr hverju gegni fæ ég afsvör. Þeir eru vanastir því að þurfa ekki að standa skil og gera grein fyrir sínum hlutum í þessum sjóði að því er mér virtist. Og í Ríkisútvarpið - ég hef afskrift af því - mætti framkvæmdastjórinn og sagði: „Ástæðan fyrir því að skortir fé er sú að við fengum ekki fullnægt þeirri beiðni sem við sendum á haustdögum um aukafjárveitingu.“ Ekkert annað svar. Það voru skornar 5 millj. rúmar af þeirri beiðni, en nú vantaði 50. Þetta eru áætlanir sem segja sex! Það er byggjandi á og vinnandi með slíku fólki.

Þegar var krafist svara kom loks, eftir dúk og disk, sannleikurinn fram í málinu. Þeir höfðu m.a. gleymt að taka tillit til greiðslu vaxta og afborgana til Seðlabanka Íslands og munaði stórum fjárhæðum á áætlunum um lánsfjárþörfina, sem er óskiljanlegt, komið fram á síðustu daga ársins. Þetta eru þær ástæður sem til þess liggja að starfsemin og starfrækslan var með öllu ólíðanleg. Og ef einhver ætlast til þess að ég líði það í opinberum rekstri sem ég mundi ekki líða andartaksstund í einkafyrirtæki mínu er hann misskilningi haldinn.

Og hverju hefði gegnt ef þetta fjármagn hefði ekki verið reitt af hendi? Hvað hefði skeð? Halda menn kannske, hv. 4. þm. Norðurl. e., að framkvæmdastjórinn og starfsfólk Lánasjóðs ísl. námsmanna hefði verið dregið til ábyrgðar ef þetta fjármagn hefði ekki verið reitt af hendi, þessar 50 millj. kr.? Nei ó nei. Við hv. 1. þm. Norðurl. e. vitum hverjir eru kallaðir til ábyrgðar þegar svona hlutir koma upp. Ég hefði verið kallaður til allrar ábyrgðarinnar og e.t.v. henni dreift og skipt eitthvað með hæstv. fjmrh. Enginn annar hefði komið þar við sögu. Það er gaman að geta leikið lausum hala ábyrgðarlaus með milljarðasjóð milli handanna.

Og hverju hefði gegnt, hvað hefði skeð? Það var búið að afgreiða lánsskjöl, bindandi loforð og lánsskjöl til 2420 íslenskra námsmanna hérlendis með loforðum, skuldbindandi, skriflegum, um greiðslu inn á reikninga þeirra 15. desember sem varðaði þessar 50 millj. kr. Fyrir framan þetta átti ég að standa án þess að mjamta kjafti. Við sáum okkur ekki annað fært en að verða enn við þessari fjárbeiðni. Þetta var allt saman borgað út. En fjmrh. lét þess getið að ekki kæmi annað til greina en yrði með einhverjum hætti reynt, af því þessir peningar voru ekki til, að spara á næsta ári. Og af því sem lífsnauðsyn var að fá þetta fjármagn af hendi reitt var óhjákvæmilegt annað en að stöðva sjálfvirkni í útreikningi lána þegar á áramótum - til bráðabirgða meðan maður sér hverju fram vindur, meðan maður sér hvort maður kemur mönnum til ráðs um breytta starfrækslu, breytta starfrækslu, segi ég, án þess að missa marks, án þess að missa sjónar á markmiði þessa sjóðs, sem er að jafna aðstöðu fólks til náms og að hindra að fólk fyrir fátæktar sakir þurfi að sitja heima og verða af náminu. Þetta eru meginmarkmiðin.

Ég skýt því hér inn í, af því sem hv. þm. vitnaði í 3. gr. laganna sem nú gilda, að í því uppkasti sem mér barst á föstudaginn var er að finna þessi sömu markmið með starfsemi sjóðsins.

Og mönnum eru gerðar upp alls konar sakir og þar er lagt út af, í stjórnmálaleiðurum líka, tillögum mínum sem eru ófæddar enn. Með þessum buslugangi sem menn hafa hér í frammi! Hann var þó hálffeiminn við þetta, hv. þm., af því sem hann vissi að þessar tillögur eru ófæddar, aðeins frumhugmyndir lagðar fram af þeim mönnum sem ég fékk til samstarfs við mig, samstarfshópi sem ég þarf hvorki að gera honum né öðrum grein fyrir.

Mér hefur ekki enn gefist kostur á að ræða við einn einasta mann í mínum flokki og ekki formann flokksins um þá tillögugerð sem ég mun fram leggja og mun vinna að á næstunni. Mér hefur ekki gefist tækifæri á að ræða við samstarfsflokkinn, ekki við fyrirrennara minn sem ég þarf nauðsynlega að gera ráð mitt við á næstunni. Því hefur mér ekki gefist kostur á vegna þess að ég hef ekki gert upp hug minn til málsins. Það vita allir betur um þetta en ég, ég tala nú ekki um Dagblaðsritstjórinn sem leggur út af því í löngu máli í leiðara sínum að hér sé „óráðleg aðför“, eins og það heitir á hans máli. (JBH: En borgarstjórinn?) Borgarstjóri? Hver var að tala um hann? (Gripið fram í: Það var einhver að spyrja um hann.) Hv. 4. þm. Norðurl. e. var að vitna í hann og Morgunblaðið í bak og fyrir sem nýja trúbræður sína. Ég hef sagt að ég hef ekki beðið um ráðleggingar borgarstjórans í Reykjavík og ég muni hafa rænu á að kalla eftir þeim þegar ég þarf á þeim að halda. Og varði mig ekki að hann væri svo kjarklaus að þurfa að fara að skjálfa og glamra í honum tönnurnar vegna borgarstjórnarkosninga á næstunni.

Þessar voru ástæður mínar aðallega til þess að ég taldi mér nauðugan einn kost að setja frá stjórn sjóðsins framkvæmdastjórann, svo ömurlegt sem það er að þurfa að vinna slík verk. En þeir sem vilja bera ábyrgð og hafa tekið hana verða að vinna verk þó óþægileg og ömurleg séu.

En það var fleira sem kom til greina. Ég fékk úttekt á starfsemi sjóðsins, yfirvinnu í tvö heil ár, og þar gat á að líta. Þar virðist framkvæmdastjórinn hafa skrifað upp á meira en 100% yfirvinnu hjá sjálfum sér og hann hefur skrifað upp á allt upp undir 130% yfirvinnu hjá starfsmönnum sínum. Þetta er því miður sukk. Enginn vinnur 174 stundir í mánuði. (SJS: Ekki bílstjórinn?) Og éturðu nú upp róginn sem var spunninn upp um ráðherrabílstjóra sem geta ekki borið hönd fyrir höfuð sér vegna þessa máls, vegna þess að menn eru að ganga undir með þessum kónum. Og menn í hálfs dags starfi sem tekst að vinna 70 tíma á mánuði í yfirvinnu. Það er líka kraftaverk. Þið sem berið blak af þessu, gjörið þið svo vel. Ég vil fá svör. Mælið þið þessu bót? Svarið þið skýrt og skilmerkilega vegna þess að ég er vændur um valdníðslu og lögbrot.

Ég mun nú reyna eftir hendinni, af því sem kann að vera ósvarað af fsp. hv. þm., rifja það upp sem hann gerði sjálfur um yfirlýsingar mínar sem er að finna í þingtíðindum.

„Ég legg þó áherslu á“, með leyfi hæstvirts forseta, eins og þar segir, „að þar verður auðvitað leitast við að koma ekki aftan að námsmönnum með nýja skipan mála sem mundi mjög hrugga við áformum þeirra á námsbrautinni.“

Hefur verið horfið frá þessari yfirlýsingu? Er búið að koma með einhverjum hætti aftan að námsmönnum þótt við höfum stöðvað sjálfvirknina í bili? Eru engin ráð eftir til þess að við fáum fangs á viðfangsefninu? Ég ætla ekki, og mun þá taka það sérstaklega fyrir, að láta menn bera upp á sker sem stunda nám erlendis vegna þeirra breytinga sem þetta kann að hafa í för með sér. Þið skulið bóka þessa yfirlýsingu hjá ykkur ef þið megið ekki vera að því að bíða eftir útgáfu þingtíðindanna.

En hvernig, og ég vil fá svar við því, á að reiða fram þær 500 millj., 450-500 millj., sem enn skortir á fjármagn til þess að fullnægja þeim úthlutunarreglum, ef þær væru óbreyttar í framkvæmd, sem nú hafa gilt? Gjörið þið svo vel, svarið mér. Á að taka það fé að láni erlendis ofan á allt annað eða á að leggja það á með nýjum sköttum? Þið verðið að svara þessu, golubelgirnir pólitísku sem standið hér á blístri af vandlætingu. Ég bíð eftir svörunum hér á eftir. (Gripið fram í: Vilt þú ekki svara þessu?) Skattar eða erlend lántaka. Það er ekki nema um tvennt að tefla. Þeir vaxa ekki á trjánum eins og í Þistilfirðinum, peningarnir, í kringum Þórshöfn. (Gripið fram í.) Þú kannast við það að þeir vaxi á trjánum í kringum Þórshöfn? Togarakaupamenn þar hirða þá á trjánum, peningana. (Gripið fram í.)

Ef við náum samkomulagi. Á það reynir á næstunni og það er mikil vinna eftir við það. Ég get ekki hafið starf að því að reyna að ná samkomulagi við samstarfsflokkinn til að mynda og í mínum eigin flokki fyrr en ég hef gert upp hug minn til þeirra brtt. sem ég hyggst flytja. Um hvað eru menn að tala? Gerast menn ekki offari í þessu máli að búa sér og smíða sér vopn til þess að lemja á mér með pólitískt? Þeim er það sjálfrátt og meira en velkomið. Ég tek það ekki nærri mér vegna þess að ég þykist vera að vinna nauðsynjaverk. Við getum ekki haldið áfram á þessari braut. En við ætlum ekki að missa sjónar á markmiðum með starfrækslu þessa sjóðs vegna þess að við erum sammála um að þessi starfsemi er þjóðinni lífsnauðsynleg og engin fjárfesting er betri en sú sem við fjárfestum í menntun fólksins okkar.

Það er skammur tími liðinn enn og engin slys hent og ekki aftan að neinum farið. Við gerum ráð okkar saman fljótlega og ég vænti þess að við komumst að niðurstöðu sem muni leiða til þess að við náum annarri og betri reglu um starfsemi sjóðsins. Það er engum námsmanni hollt að búa við óbreyttar aðstæður í þessu efni. Það kann vel að vera að yfirgnæfandi flestir námsmenn endurgreiði lán sín, en dæmin hin eru óþolandi að menn geti safnað sér e.t.v. 5 millj. kr. skuld og verði aldrei borgunarmenn nema fyrir einni. Það var aldrei ætlast til þessa. Ég hef lesið framsöguræðu hv. 1. þm. Norðurl. e. sem hann flutti fyrir frv. til 1. sem á sínum tíma var aðdragandi laganna sem nú gilda. Þar kom ekkert slíkt fram auðvitað því að það var ekki ætlast til þess. Fyrir þetta verðum við að girða. Og ég spyr: Hvað þýðir það þegar grannt er skoðað sem hv. 4. þm. Norðurl. e. segir þegar hann varar við hættunni á því að hafa tekið uppreikninginn með í dæminu? Hvað þýðir þetta? Það þýðir að maður sem gæti unnið fyrir sér að sumarlagi mundi eftir sem áður sækja lán til sjóðsins. Hvers vegna mundi hann safna sér láni í sjóðnum ef hann ætti af afrakstri vinnu sinnar nóg til að kosta sig til náms fyrir? Um hvað eru menn að tala? Hann mundi sækja inn í sjóðinn til að taka lán sem hann hefði ekki þörf fyrir og til hvers? Af því að hann gæti ávaxtað þessa peninga betur en hann þarf að standa skil á til lánveitandans. Þetta ætti að blasa við hverjum manni.

Það er of snemmt fyrir mig að orðfæra hér sérstaklega einstaka þætti í þeim tillögum sem ég hef í huga. Þeir sem halda því fram að ekki þurfi úrbóta við í starfsemi Lánasjóðs ísl. námsmanna vita ekkert hvað þeir eru að segja eða öllu heldur tala þá um hug sér. Yfirgnæfandi meiri hluti alls þess sem hefur átt samskipti við þennan sjóð veit að það er fjarri öllu lagi að hann standi í sínu stykki sem eðlileg afgreiðslustofnun, fjarri öllu lagi, og það er þyngra en tárum taki að rifja það upp og hlýða á kvartanir fólks af reynslu sinni af þessum sérkennilega sjóði og meðhöndlun starfsmanna hans á viðskiptavinum sínum sem eiga alls ekki að eiga undir högg að sækja á þeim stað. Það er með öllu óskiljanlegt að slíkt geti þrifist og þróast undir opinberri stjórn. Ástæðan er sú að við erum hættir að hafa aga á hlutunum og menn hafa glatað sjálfsaganum líka. Þessu þurfum við að kippa í liðinn.

Svo koma hv. stjórnarandstæðingar fullir með vandlætingu út af bifreiðakostnaði ráðherra, út af launum bifreiðastjóra ráðherra og eru hreint að springa af vandlætingunni. En þegar hreyft er við slíku og þvílíku sem þessu, þar sem milljarðarnir velta fram og aftur milli handanna á mönnum sem kunna ekki með þá að fara, er tekið til varnar af því að þeir halda að í holti sé heyrandi sem þeir geti komið sér vel hjá með pólitískt blaður sitt.

Ég hef ekki dylgjað um einn né neinn. Ég hef ekki hafið óhróðursherferð á hendur neinum. Ég hef sagt það sem ég hef orðið áskynja um. Ég hef sagt frá því. Mér er ekki lagið að dylja hug minn. Það getur vel verið að menn kalli það harkalegar aðfarir, en það verður við það að sitja. Ég á engin önnur ráð en þau að taka þann veg í taumana sem ég nú hef gert. Ég mun þá auðvitað hljóta minn dóm fyrir það ef ég hef farið rangt að.

Hv. þm. spyr mig að því hvort ég telji mig hafa brotið lög eða eigi við uppsögn framkvæmdastjóra fyrrv. LÍN. Það er afar einfalt mál. Hann getur svarað sér þessu sjálfur. Að sjálfsögðu tel ég mig ekki hafa brotið lög. En hver og einn getur leitað réttar síns. Og það dugar ekkert að vísa til ágætra manna eins og Sigurðar Líndal eða hv. þm. Ingvars Gíslasonar. Þeir eru hvorugur dómstóll, það vill nú svo til, og kveða ekki upp dóma. En menn eiga og geta leitað réttar síns og auðvitað beygi ég mig undir þann úrskurð og þarf ekki að svara þessu frekar.

Í lögum um lánasjóðinn og reglugerð er að finna ákvæði um hlutverk stjórnar Lánasjóðs ísl. námsmanna. Það fer fram úttekt á sjóðnum nú. Hann vinnur það nýi framkvæmdastjórinn og aðstoðarmaður sem ég réði honum til aðstoðar. Ég hef ekki fengið að sjá einn staf enn þá af þessari úttekt því að þeir eru ekki tilbúnir með hana. Á meðan get ég ekki dæmt nægjanlega um starfsemi stjórnarinnar og sjóðsins.

Ég veit nóg um starfsemi framkvæmdastjórans, hann réði ekki við þetta þótt þetta kunni að vera vænn maður að öðru leyti. Ég hef ekki sakað hann um saknæman verknað, ég hef margtekið það fram. Ég fékk nóg að vita til þess að ég taldi útilokað að ég byggi við hans yfirstjórn lengur.

Það á e.t.v. eftir að koma í ljós vanræksla í starfi stjórnarinnar og þá er að bregða við því. Hún verður auðvitað sótt til ábyrgðar ef í ljós kemur að hún hefur ekki verið starfi sínu vaxin. En ég hef ekki upplýsingar enn í höndum um að þannig hátti til.

Ég leiði hjá mér að upplýsa hér og orðfæra um persónuleg viðskipti mín og framkvæmdastjóra Lánasjóðs ísl. námsmanna. Við áttum tal saman og ræddum málin ítarlega, en hann er ekki hér til að bera hönd fyrir höfuð sér eða skýra sín sjónarmið. Það hefur hann gert kurteislega og myndarlega þar sem hann hefur verið tilkvaddur og þarf engrar hjálpar við hjá golubelgjum pólitískum eins og hér vaða uppi.

Hv. þm. gat um - og ég skrifaði það hér niður hjá mér - áramótadansleik Ríkisútvarpsins. Ég bað reyndar um það í morgun og það er búið að skrifa bréf til útvarpsstjóra þar sem hann er beðinn um skýrslu og skýringar á þessum áætlunum og þeim kostnaði sem lagt var í. Hv. þm. þarf þess vegna ekkert að minna mig á þetta.

Ég er ekki með Lánasjóð ísl. námsmanna einkanlega á heilanum. Hvarvetna þar sem ég ber ábyrgð á mun ég reyna að taka til hendi ef mér sýnist málin ganga úrskeiðis. Ég held að íslenskir stjórnmálaflokkar ættu allir sem einn að setja sér það að reisa okkar opinbera kerfi við. Það er ekki hátt á hrygginn reist eins og nú standa sakir. Við þurfum að ná aga og við þurfum að moka og hreinsa út en ekki að rjúka upp með pólitískum andfælum þegar verið er að reyna að kippa í liðinn jafnmikilvægum málum og þar sem er farið með milljarðasjóði.

Svo kom hv. þm. að stórskemmtilegum kafla í ræðu sinni. Hann var um tilnefningu á nýjum fulltrúa frá stúdentaráði Háskólans. Ég vann í hlutaveltu Félaga Napóleon á Akureyri einhvern tíma í kringum 1950 - þá hét það að vera á tombólu. Það var góður vinningur. Þar segir frá því þegar dýrin tóku völdin á búgarðinum, hröktu Jón bónda í burtu og svínin tóku forustuna. Það voru settar upp kenningar og reglur og ein reglan var svona: Öll dýr eru jöfn. En þegar svínin voru búin að ná undirtökunum, þá var einhvern tíma um nótt bætt við: En sum dýr eru jafnari en önnur. Og það er með Alþb., það er flokkur sem er jafnari en annar flokkur. Maður skyldi halda að allir flokkar ættu að vera jafnir fyrir lögum en það er alveg eins og með svínin hjá félaga Napóleon, George Orwell, að Alþb. er jafnari en aðrir flokkar.

Hér er að mér veist og það er ekki lítill bumbuslátturinn vegna þess að ég hef ekki tekið við nýrri útnefningu á fulltrúa stúdenta í stjórn LÍN. Þar á núverandi fulltrúi stúdenta eftir eina tvo mánuði af kjörtímabili sínu, tilnefndur á sínum tíma af stúdentaráði og skipaður af menntmrh. eins og lög gera ráð fyrir. Hann var að velta því fyrir sér að segja af sér í stjórninni en samkvæmt beiðni minni dró hann þá úrsögn til baka.

Hér ærist hv. þm. út af þessu og hneykslast á. fjmrh. Þorsteins Pálssonar, valdníðslu minni, að ég skuli ekki verða við því undir eins þegar félagar hans uppi í Háskóla tilnefna nýjan mann þótt annar sé fyrir löglega skipaður. En hann sér ekkert athugavert við það að maður að nafni Ragnar Árnason, þekktur flokksfélagi hans, miklu þekktari en þm. sjálfur þó að hann sé að sperra stél hér og verði bráðum þekktur að endemum, sé fulltrúi Alberts Guðmundssonar, hæstv. fyrrv. fjmrh. í ein tvö ár og núv. fulltrúi hæstv. fjmrh. Þorsteins Pálssonar, formanns Sjálfstfl. (SJS: Hefur hann verið beðinn um að segja af sér?) Þetta sér hv. þm. ekkert athugavert við.

Nú er málið það að við höfum ákveðnar reglur til að starfa eftir þótt sérkennilegar séu og víst er það mál, sem við þurfum að taka til umræðu, hvort við eigum að hafa það svo þegar skipt er um stjórn að menn, tilnefndir í stjórnir og ráð eins og í Kísiliðju, Sementsverksmiðju o.s.frv., eigi að sitja þegar ný stjórn hefur verið sett frá völdum.

Kjósendur í landinu felldu ríkisstjórnina sem sat að völdum 1980-1983. En menn, skipaðir í stjórnir og ráð af þeirri stjórn, sitja sem fastast, þar á meðal þessi fulltrúi í stjórn LÍN. Ef þessi flokkur væri ekki jafnari en aðrir flokkar mundi hann auðvitað um leið og hann setti þessa kröfu fram um Alþýðubandalagsfulltrúann úr Háskólanum draga hinn til baka samræmisins vegna. En leikreglurnar eru þannig að Ragnar Árnason getur setið þar til kjörtímabili hans lýkur og ekkert við því að segja. Við verðum að taka miklu fleira fyrir í þessu dæmi ef við eigum að breyta þeim leikreglum sem hér hafa gilt og ég að vísu tel eðlilegt að breyta. Það er áreiðanlegt að ef það stæði ekki svona á að þeir þurfa alltaf að lúta sérreglum og þykjast hafa sérréttindi, þessir menn, þá mundu þeir hafa tekið eftir þessu og farið eftir þessu, mennirnir.

Hvaða ástæður liggja að baki því að ég treysti mér ekki til að skipta um þessa fulltrúa stúdenta í stjórn? Hvaða ástæður liggja að baki því að það þarf að skipta um þegar aðeins tveir mánuðir eru eftir til stúdentaráðskosninga og þá skiptir um fulltrúa? Má ég fá að vita ástæðuna til þess? Kann að vera að ástæðurnar séu þær að það eigi með þeim hætti að ná meiri hluta í stjórn þessa sjóðs? Til hvers? Til þess að vinna með mér að nauðsynlegum breytingum eða hvað? Það er rétt að spyrja spurninga. (KH: Því ekki það?) Það er von að Dagblaðsfrúin spyrji.

Hv. þm. var að spyrja um þessa nefnd. Ég hef þegar svarað því varðandi þennan starfshóp sem hefur verið að huga að þessum málum fyrir mig prívat. Það eru ekkert óeðlileg vinnubrögð að einu eða neinu leyti. Þegar ég verð tilbúinn með mín frumdrög munu þau ganga til samstarfsflokksins og þeir flokkar vinna það fyrst saman. Þar næst skal ég gjarnan beita mér fyrir því að leita lags við aðra flokka í Alþingi hvort við getum orðið sammála um breytingarnar og færi það auðvitað best úr hendi. En málið er ekki nálægt því svo langt komið á rekspöl og menn ofgera í þessu öllu.

Ég ætla ekki að fara mörgum orðum um þá reynslu sem menn hafa fengið af framkvæmd þeirra laga sem við búum við í dag. Ég get ekki fullyrt um það hverjar eru ráðstöfunartekjur t.d. hv. 4. þm. Norðurl. e. og það er ekki viðfelldið, þótt ég vissi það, að fara að hafa uppi yfirlýsingar um það. Ég veit heldur ekki hvaða fjölskyldustærð hann býr við en hann mun vera giftur maður og ég trúi að hann sé barnamaður líka. En það mætti segja mér að það losaði ekki mikið yfir 40 þús. kr. sem hann hefði í ráðstöfunartekjur á mánuði. Maður með konu og - hvað eigum við að segja - tvö börn. (SJS: Tvær konur og eitt barn.) Það er nú öllu erfiðara, það er nú þyngri róður, en ég óska þér til lukku. En ég ætla þetta og nefni þetta sem mögulega tölu, að hann hafi í ráðstöfunarfé á mánuði um 40 þús. kr. þegar skattar og skyldur hafa verið greidd.

En þá er spurningin þessi: Hjón í námi með eitt barn á framfæri geta haft í ráðstöfunartekjur 50-60 þús. kr. Nú vil ég spyrja: Telur hv. þm. þetta eðlilegt? Er þetta að vísu nokkur hemja? Það dragast engir skattar frá þessum fjárhæðum. Erum við ekki of rausnarleg í þessu dæmi? Ég kann kannske ekki að meta þetta en ég bið aðra um að slá mati á þetta með mér. Mér sýnist að svo sé.

Ég leitaði upplýsinga um það á Englandi hvað væru hæstu námslán sem þar voru veitt og þeir svöruðu mér því að alhæstu lán væru 3000 pund á ári eða 180 þús. kr. Það er kannske ekkert til að fíkjast í, ekki er ég að segja það. En það er a.m.k. langtum lægra og helmingi lægra en okkar menn geta átt kost á.

Menn eru að tala hér um ýmsar tillögur sem ég muni e.t.v. færa fram eins og um ávöxtun þess fjár sem tekið er að láni. Það er rétt að í frumdrögum starfshópsins er að finna tillögu um fulla verðtryggingu og 3% vexti fyrir utan lántökugjald. Ég hef ekki tekið ákvörðun í þessu efni. En ég vil aðeins benda ykkur á að á námslánunum sænsku er full verðtrygging og 4,2% vextir.

Í frumdrögum er verið að tala um styttingu endurgreiðslutíma úr 40 árum í 30 ár. Svíarnir endurgreiða þetta á misjöfnum tíma, frá 15 upp í 25 ár. Ég skal ekkert segja um það hvort sanngjarnt er að bera þetta með öllu saman. Það hef ég ekki gert upp við mig og ég þekki ekki aðstæður nægjanlega vel á því landi til að kveða upp um það einhvern úrskurð.

Ég minni reyndar á - og það er ástæða til að minna sérstaklega á það - að námsmenn og stúdentaráð sendu óskir um að reglur um starfsemi sjóðsins yrðu endurskoðaðar á liðnu sumri. Þar á meðal var tillaga inni um að stytta þennan endurgreiðslutíma úr 40 árum í 30 ár. Ég efast um að þeir sem berja þessar bumbur hafi skoðað sig nógu vel um bekki, eins og ég á til að orða það. Mér er nær að halda að það væru skynsamleg vinnubrögð að við slökuðum nú á og hinkruðum við þar til menn hafa séð þær endanlegu tillögur sem ég og minn eigin flokkur og samstarfsflokkur vilja gera í þessu efni. Fyrr komum við væntanlega engu fram.

Ég hlýt að leita lags um samvinnu um þær niðurstöður sem við komumst að. Það sér hver heilvita maður. Annars næst enginn árangur í þessu efni. Það liggur alveg ljóst fyrir að hér er mikilla úrbóta þörf. Ég trúi að þegar menn beita rósemi hugans og jafnvægi komist þeir að raun um að á þessu er hin brýnasta nauðsyn, að við gerum okkar unga námsfólki engan greiða með því að halda svo fram stefnunni sem horfir. Það er ekki víst að þetta séu eins örlagaþrungin efni og menn hafa í æsingu augnabliksins látið sér til hugar koma, einnig með tilliti til þess að menn eru að gera öðrum upp alls kyns skoðanir í þessu efni sem kannske eiga engan flugufót fyrir sér, allt byggt á lausafregnum eða njósnum dagblaða.

Ég vænti þess fastlega að við náum höndum saman um það að gera þessa mikilvægu, einhverja mikilvægustu fjármálastarfsemi í landinu vel og drengilega og heiðarlega úr garði þannig að við náum þessum markmiðum, sem við öll erum sammála um, trúi ég, að Lánasjóður ísl. námsmanna skuli verða til þess að jafna aðstöðu fólks til náms og að hindra að menn sitji af sér nám fyrir fátæktar sakir. Þetta er megintilgangur okkar allra. Við getum þrætt um leiðir en ég hygg að það sé ekki flókið mál að sjá hvar brestur í böndum og hvar við þurfum að bæta úr.

Þetta er það sem ég vildi segja um þetta mál nú. En að öðru leyti er auðvitað nauðsynlegt að hinkra við í framhaldsumræðunni og sjá hverju fram vindur. Hvað er það sem menn geta orðið ásáttir um að leggja fyrir til breytinga í þessu efni? Ég vænti þess fastlega að í næstu viku geti ég rætt í fyrsta lagi við minn flokk og samstarfsflokkinn um útlínur þeirra tillagna sem ég mun þá væntanlega leggja fyrir.