30.01.1986
Sameinað þing: 39. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 2219 í B-deild Alþingistíðinda. (1897)
Lánasjóður íslenskra námsmanna
Ingvar Gíslason:
Herra forseti. Ég er orðinn raddlaus af því að hlusta á þessa miklu raddmenn. En, hæstv. forseti, þrátt fyrir þá Buslubæn sem hæstv. menntmrh. hefur flutt í dag og einhvers konar friðmælingu við „samstarfsflokkinn“ sem hann svo kallar nú kemst ég ekki hjá því að láta í ljós mikil vonbrigði með ýmsar yfirlýsingar og ýmsar tiltektir hæstv. menntmrh. varðandi Lánasjóð ísl. námsmanna nú að undanförnu. Þar á ég m.a. við brottvikninguna á framkvæmdastjóra sjóðsins sem ég tel í rauninni furðulega tiltekt og varla geta staðist að lögum né heldur að ástæða hafi verið til. Ég hygg að það séu margir sem þekkja svo til verka Sigurjóns Valdimarssonar að þeir mundu síst af öllu væna hann um að hann slugsi við sín störf eða að hann sé ekki maður til að sinna fyllilega þeim störfum sem honum eru falin og eftir því sem honum eru settar reglur um.
En herra forseti. Vonbrigði mín eru auðvitað þeim mun meiri sem ég er stuðningsmaður hæstv. ríkisstj. sem nú situr og ég hef auk þess haft sérstaka trú á því að hæstv. menntmrh. mundi ekki rasa um ráð fram varðandi þau mikilvægu mál sem undir hann heyra heldur mundi hann fjalla um þau ævinlega af sanngirni og góðum skilningi og ekki síst af faglegum og pólitískum metnaði. En nú hefur hæstv. ráðh. brugðist vonum manna - í þessu sérstaka máli a.m.k. Aðgerðir og ummæli hæstv. ráðh. að undanförnu hafa valdið mörgum áhyggjum, beinum áhyggjum. Hæstv. ráðh. hefur orðið til þess, sem ég átti ekki von á frá hans hendi, að opinberri umræðu um málefni Lánasjóðs ísl. námsmanna hefur bókstaflega verið þrykkt niður á stig lágkúru þar sem skilningsleysi og hleypidómar eru látnir ráða ferðinni og þar sem reynt er að etja saman hagsmunahópum á hinn óheppilegasta hátt og hinn furðulegasta hátt.
Það er að vísu nokkuð til í því að alltaf hafa verið til ýmis öfl í landinu sem hafa alið á. fordómum gagnvart Lánasjóði ísl. námsmanna öllum öðrum opinberum sjóðum og opinberum stofnunum fremur. Slík öfl hafa vissulega verið til, en þessi öfl hafa þó aldrei orðið mikils ráðandi í umræðunni um sjóðinn m.a. vegna þess að allir menntmrh. í meira en 30 ár hafa lagt í það metnað sinn að berjast gegn fordómum og unnið að eðlilegri þróun sjóðsins miðað við þjóðfélagsaðstæður og jafnan í sem allra nánustu og bestu samstarfi við þingflokka á hverjum tíma. Þingsagan er til vitnis um það síðustu marga áratugi að í öllum stjórnmálaflokkum hefur verið góður skilningur á nauðsyn lýðræðislegs námsaðstoðarkerfis og um þróun þess hefur ríkt tiltölulega gott samkomulag. Ég hef ekki fundið annað, fyrr en þá á allra síðustu misserum, en að allir hugsandi menn um þjóðfélagsmál hvar í flokki sem er teldu að Lánasjóður námsmanna væri óumdeilanlegt og sjálfsagt félagslegt réttindamál, enda sé sjóðurinn lýðræðislega upp byggður og til þess fallinn að eyða forréttindum í þjóðfélaginu, og það er vitanlega aðalmarkmið sjóðsins.
Af því að það er verið að tala hér um breytingar á sjóðnum og nauðsyn þess að breyta þurfi lögunum sem um sjóðinn gilda ætla ég að leyfa mér að benda á að það er höfuðkostur núgildandi laga um Lánasjóð ísl. námsmanna, laga nr. 72 1982, það eru lög sem ekki eru einu sinni orðin fjögurra ára gömul, að þessi sjóður er lýðræðislegur og hann jafnar aðstöðu fólks til að stunda nám. Sjóðurinn starfar þannig að hann kemur í veg fyrir forréttindi efnamanna til náms. Ég get ekki fallist á neinar lagabreytingar, hæstv. ráðh., sem breyta munu eðli sjóðsins í þessu grundvallaratriði. Ég tel því yfirleitt ekki tímabært að ræða það að breyta lögum um Lánasjóð ísl. námsmanna, enda óttast ég að ýmsar hugmyndir séu uppi um það að breyta lögunum í grundvallaratriðum þrátt fyrir þá friðmælingu sem hér kom fram í ræðu hæstv. menntmrh. áðan. Ég hlýt að vara við öllum þeim hugmyndum sem uppi eru um þetta.
Það er að vísu gleðilegt að hæstv. ráðh. hefur nú, bæði í Morgunblaðinu, að því er virðist í morgun, og hann hefur gert það nú í ræðu sinni, dregið mikið í land um þær hugmyndir sem hann hefur komið á framfæri við blöðin þó hann hafi ekki haft fyrir því að koma þeim á framfæri við „samstarfsflokkinn“ svokallaða. Þær hugmyndir sem hann hefur verið uppi með eru þannig að það er full ástæða til þess að vara við þeim, en það er jafnframt gleðilegt að hann er nú farinn að átta sig á því að það kunni að vera einhverjir annmarkar á þeim hugmyndum sem helst hafa verið til umræðu undanfarnar vikur.
En það er sannfæring mín, herra forseti, að núgildandi lög um Lánasjóð ísl. námsmanna, þ.e. lög um námslán og námsstyrki eins og þau heita réttu nafni, lög nr. 72 1982, fullnægi fyllilega þeim kröfum sem gera verður um réttlátt og lýðræðislegt námsaðstoðarkerfi. Slíkt kerfi er nauðsynlegt fyrir nútíma velferðarþjóðfélag. Um þetta hélt ég að væri enginn ágreiningur.
Auðvitað eru lögin hluti af ríkjandi menntastefnu, en þau eru fyrst og fremst almennt félagslegt réttindamál á borð við almannatryggingar, lífeyrisréttindi, atvinnuleysistryggingar, heilbrigðisþjónustu og hvað annað sem einkennir vestræn lýðræðisþjóðfélög og velferðarþjóðfélög, þess háttar þjóðfélög sem við viljum lifa í og berum okkur gjarnan saman við. Það eru félagslegar og lýðræðislegar ástæður sem liggja til grundvallar námsstyrktarkerfinu. Á þetta legg ég mikla áherslu. Markmiðið er að tryggja sem verða má fjárhagslegan jöfnuð til náms, þ.e. að allir geti haft sem jafnasta aðstöðu til að stunda nám hvað sem líður efnahag þeirra, hvað sem líður búsetu þeirra. Í samræmi við nútímahugmyndir um persónufrelsi og lýðræði verður slíkt kerfi að grundvallast á almennum reglum. Það verður að vera öllum opið sem falla undir þær reglur sem um slíkt eru settar, þ.e. fólk verður auðvitað að uppfylla viss skilyrði, en kerfið á að vera opið, ekki lokað. Það á að vera almennt. Það á ekki að vera ætlað neinum úrvalshópum.
Núgildandi lög byggja á slíkum almennum reglum og skilyrðum. Þær breytingar sem hæstv. ráðh. hefur verið borinn fyrir og ég óttast því miður að enn þá séu til umræðu í menntmrn. grundvallast að verulegu leyti á allt öðrum hugmyndum. Mér finnst að þessar hugmyndir, þar á meðal um styrkjakerfið sem út af fyrir sig getur kannske átt að einhverju leyti rétt á sér, ég fæ ekki betur séð en að slíkt kerfi sé mengað af forréttindahugarfari. Af því að ég veit það af löngum kynnum við hæstv. menntmrh. að hann er engan veginn mengaður af slíku hugarfari hefur hann nú séð að sér og hann kemur í ræðustól í dag og ber meira og minna af sér sakir í því að hann ætli að fara að koma slíkum hugmyndum fram.
Eigi að síður er það svo, hæstv. menntmrh., að það hefur verið haft eftir ráðherranum að eðlilegt væri að fara að gera nemendum hærra undir höfði ef þeir stunda eitthvað sem hann kallar, og menn gjarnan kalla, hann er ekki einn um það, „arðbært nám“. Ég ætla að leggja áherslu á þetta orð, þetta „arðbæra“ nám, vegna þess að vissulega er það ekki fundið upp af hæstv. menntmrh. Auðvitað hafa menn verið að henda slíkum hugtökum á milli sín alllengi eða ég veit ekki í hvað mörg ár, kannske 20 ár, frá því að upp var fundin sú kenning að nám væri ágæt „fjárfesting“, fjárfesting fyrir atvinnuvegina, fjárfesting fyrir þjóðfélagið. Þá var vissulega byrjað að tala um að til væri „arðbært“ nám og þá líklega eitthvað sem heitir „óarðbært“ nám. Hæstv. menntmrh. er svo sannarlega enginn höfundur að þessari hugmynd. Þetta er hugtak sem hefur verið að velkjast fyrir okkur lengi. Áður fyrr var talað um að menn stunduðu nám til að þroska sig og til að verða að mönnum og annað slíkt, en síðar var sú kenning fundin upp að það ætti að „fjárfesta“ í námi og þá var náttúrlega byrjað að finna út hvað væri „arðbært“ nám og hvað væri „óarðbært“ nám. En ég verð að segja að það er farið út á hættulega braut ef það á að fara að flokka nám eftir þessum „kategóríum“, í arðbært nám og óarðbært nám. Þá kæmu líklega undirflokkar í þessu þar sem lán væru mismunandi arðbær, o.s.frv. o.s.frv. Það á sér sjálfsagt engan enda hvar það mundi lenda.
En ef hæstv. menntmrh. stefnir að lagabreytingu í þessa átt vil ég fyrst biðja hann að gá vel að sér og kasta slíkum hugmyndum algjörlega fyrir róða og gera það strax í dag vegna þess að nú er komið hik á hann. Ég held að hann ætti þá að gera hikið að sannfæringu um það að best sé að kasta slíkum hugmyndum fyrir róða. En ef það skyldi ekki bera árangur að hæstv. ráðh. gerði þetta ítreka ég það við hann að ég mundi ekki vilja styðja slíka breytingu og ég mundi áreiðanlega beita mér gegn því hér í þinginu og þá sérstaklega í mínum flokki að slíkar breytingar yrðu gerðar.
Ég ítreka að það er engin ástæða til að breyta gildandi lögum um námslán og námsstyrki. Það er ekki lítið atriði að menn átti sig á þessu. Það er engin ástæða til að breyta þessum lögum. Ég held að það muni sýna sig ef þau verða athuguð gaumgæfilega að þau eru góð eins og þau eru. Þau eru fyrst og fremst lýðræðisleg og þau eru réttlát eftir því sem hægt er að ímynda sér að lög geti yfirleitt orðið og grundvallarstefna þeirra er rétt. Það er einnig um lögin að segja, og ég bið menn að veita þessum orðum mínum sérstaka athygli, það snýr beinlínis að hæstv. menntmrh., það snýr að ríkisstj. reyndar í heild og það snýr líka að stjórnarflokkunum, ég bið menn að taka eftir þessu, að lögin veita ríkisstj. og meiri hluta Alþingis á hverjum tíma nánast fullt svigrúm til að stjórna fjármálum sjóðsins, þ.e. hvað varðar heildarupphæð ráðstöfunarfjár sjóðsins og það hvert skuli vera mat á framfærsluþörf námsmanna, enda hefur það sýnt sig að ríkisstj., hæstv. menntmrh. og meiri hluti Alþingis telja sig eiga þennan rétt og hafa neytt þessa réttar nýverið. Það má segja að ég hafi tekið þátt í þessu sjálfur. Ríkisstj. og meiri hluti Alþingis neyttu þessa réttar við afgreiðslu síðustu fjárlaga. Þá var ráðstöfunarfé Lánasjóðs ísl. námsmanna skert stórlega miðað við áætlun sjóðsins. Ég held að þetta verði ekki talin lögbrot. Lögin eru þannig gerð og þau eru ekki óþjálli en það að þau gefa Alþingi færi á því að koma í veg fyrir svokallaðar „sjálfvirkar“ hækkanir, sem hæstv. ráðh. var að tala um áðan, og „óviðráðanlega þróun“ sjóðsins eins og ég hef heyrt ýmsa „ábyrga“ menn tala um og margir óttast svo mjög. Ég veit ekki betur en lögin veiti menntmrh. fullt vald til að ákveða úthlutunarreglur fyrir sjóðinn. Þessar úthlutunarreglur eru ekki lögfestar, ekki skorðaðar með lagaboði. Þær eru eins og mótunarleir í höndunum á ráðherra og hæstv. ráðh. notfærir sér auðvitað þennan rétt.
Mér finnst rétt að menn athugi þetta, ekki síst þeir menn sem óttast svo mjög um það að Lánasjóður ísl. námsmanna sé að vaxa efnahag þjóðarinnar yfir höfuð. Ég ætla að biðja menn að líta á hvað raunverulega felst í lögunum um yfirstjórn og getu ríkisstj. til að hafa fullt vald á fjármálum sjóðsins. Þetta er mjög mikilvægt atriði og því vil ég spyrja hæstv. menntmrh.: Er hægt að hugsa sér frjálslegri lög í framkvæmd? Að mínum dómi er það ekki hægt. Ég efast um að nokkur félags- og mannréttindalöggjöf eða löggjöf um framfaramál yfirleitt sé jafnfrjálsleg í framkvæmd og lögin um námslán og námsstyrki - ég held að það séu engin lög.
Ég ætla ekki að halda því fram að þetta sé endilega til að rýra lögin, alls ekki. Ég fæ ekki betur séð en að hæstv. ráðh. hafi mál Lánasjóðs ísl. námsmanna í hendi sér og sá meiri hluti sem hann styðst við á Alþingi. Og af hverju er hæstv. ráðh. þá að biðja um meira vald eða er það e.t.v. meining hans að vinna að breytingu á lögunum til þess að minnka vald ráðherra yfir málefnum sjóðsins? Ég tel reyndar að sú geti ekki verið ætlun ráðherra og ég óttast að hæstv. ráðh. sé með hugmyndir um að halda öllum þeim reglum sem kveða á um frjálslega framkvæmd ríkisstj. á lögunum og bæta þar reyndar nokkuð við. Hitt óttast ég einnig að í hugmyndum hæstv. ráðh. felist fráhvarf frá hinu lýðræðislega markmiði sem lögin hafa að geyma, því markmiði að vera jafnréttismál hvort heldur sem um er að ræða einstaklinga eða námsgreinar. Markmið lýðræðislegrar löggjafar um námsaðstoð hlýtur að fela í sér að gera öllum hæfum einstaklingum kleift að stunda nám sem þá fýsir og að ekki sé gert upp á milli námsgreina, þær séu aldrei flokkaðar í úrvalsgreinar eða undirmálsgreinar.
Auðvitað er hægt að hugsa sér allt annað skipulag á námsaðstoð. Það er hægt að taka upp fyrirkomulag eins og var við gömlu skólana í Skálholti og á Hólum, ölmusurnar. Það er hægt að taka þær upp. En ég óttast að hæstv. ráðh. sé jafnvel að gæla við nýtt skipulag sem gæti orðið bæði lokað og ólýðræðislegt í framkvæmd. Jafnvel þó að hæstv. ráðh. hafi auðvitað góðan skilning innst inni á þessu máli gerir hann sér ekki fulla grein fyrir afleiðingunum af þessu. Þess vegna endurtek ég þau tilmæli mín til hæstv. ráðh. að hann athugi sem best sinn gang í þessu máli.
Ég ætla á þessu stigi, þrátt fyrir þá tilraun sem hér var gerð til að friðmælast við samstarfsflokkinn, að gera eina mikilsverða athugasemd við ráðslag hæstv. menntmrh. í málefnum Lánasjóðs ísl. námsmanna og þá meina ég mikilsverða athugasemd frá manni sem styður þessa ríkisstj. og, ég leyfi mér að segja, frá sjónarmiði samstarfsflokksins, samstarfsflokks Sjálfstfl. í ríkisstj., þ.e. Framsfl. í heild. Eins og hér hefur komið svo greinilega fram í ræðu hæstv. ráðh. hefur hann ekkert samráð haft við samstarfsflokk sinn og alls ekki við þingflokk Framsfl. um neinar breytingar á lögum um námslán og námsstyrki, hvorki breytingar af þessu tagi né aðrar.
Það hefur einnig komið í ljós í umræðunni að nefnd hefur starfað að því að endurskoða þessi lög, kannske tvær nefndir, ég veit það ekki. En það eitt veit ég að hæstv. menntmrh. hefur ekkert samráð haft um þessa nefnd eða nefndir við Framsfl. og í þessum endurskoðunarnefndum er enginn framsóknarmaður. Þar er enginn fulltrúi sem þingflokkur Framsfl. hefur tilnefnt eða getur litið á sem sinn fulltrúa. Hér er beinlínis verið að fara á bak við Framsfl. í stóru máli, máli sem Framsfl. hefur látið til sín taka í meira en 30 ár og þó mest á þeim árum þegar framsóknarmenn hafa gegnt embætti menntmrh. eins og var á árunum 1980-1983 og 1974-1978, en á þessum tímabilum voru einmitt gerðar mestu og mikilvægustu breytingarnar á Lánasjóði ísl. námsmanna, á báðum þessum tímabilum.
Gildandi lög um námslán og námsstyrki voru samþykkt vorið 1982, eins og hér hefur margsinnis komið fram, og það kom í minn hlut sem menntmrh. að stjórna öllum undirbúningi þess máls og flytja málið sem stjfrv., tala fyrir því og vinna að samþykkt þess. Ég réð því og ákvað það í sambandi við undirbúning málsins, þ.e. hvað varðaði endurskoðun á lógunum frá 1976 sem þá giltu, að skipuð var nefnd á breiðum pólitískum og faglegum grunni til þess að fjalla um málið og gera tillögur um framtíðarskipun námsaðstoðarkerfisins.
Ég gerði þetta vegna þess að ég tel að um mál af þessu tagi eigi að vera breið samstaða. Ég geng ekki með neinn skörungsskaparkomplex. Ég geng ekki með neinn dugnaðarkomplex. Hins vegar held ég að mér hafi tekist að koma þessu máli þannig í höfn að það voru engin vandræði með að sigla því í gegnum þingið.
Í þeirri nefnd sem um er að ræða áttu sæti fulltrúar allra þáv. þingflokka og ýmissa hagsmunasamtaka námsfólks. Það var ekki verið að pukrast neitt með skipun þessarar nefndar heldur var markmiðið að ná víðtækri samstöðu um málið milli stjórnmálaflokka og hagsmunaaðila. Þessari nefnd stýrði af mikilli prýði Eiríkur Tómasson lögfræðingur og í nefndinni voru ýmsir hinir mætustu menn og unnu mjög gott starf, þar á meðal minnist ég Friðriks Sophussonar, hv. 2. þm. Reykv., sem nú er varaformaður Sjálfstfl. Hann átti ólítinn hlut að því víðtæka samkomulagi sem varð í lánasjóðsnefndinni á sínum tíma og varð til þess að greiða för lagafrumvarpsins í gegnum þingið 1981-1982 og hef ég margþakkað hv. þm. Friðrik Sophussyni fyrir það góða starf sem hann innti þá af höndum.
Undirbúningur að gildandi lögum um námslán og námsaðstoð var í hvívetna vandaður og vel að honum unnið. Því fer fjarri, hæstv. menntmrh., að þessi lög séu úrelt svo að þeim þurfi að breyta. Síst af öllu er ástæða til að breyta lögunum í þá stefnu sem hæstv. ráðh. hefur iðulega látið í veðri vaka í fjölmiðlum þó að hann sé nú að draga í land eftir að hann finnur andstöðuna í sínum eigin flokki. Og ég álít að ef slíkt spor yrði tekið, ef ráðist verður í það í fljótræði að breyta lögunum, óttast ég að verið sé að ganga skref aftur á bak.
Og af því að mér er ákaflega hlýtt til hæstv. menntmrh., prívat og persónulega, árétta ég enn þau tilmæli mín til hans að hann gái vel að sér í þessu máli, reyndar bæði efnislega og hvað varðar formsástæður. Efnislega sýnist mér hann vera á villigötum, en hann er það líka og hefur verið það hvað varðar formið, og þá á ég við það að hann hefur verið að ræða það opinberlega, flutt um það margar og miklar yfirlýsingar, að hann hugsi sér að gera grundvallarbreytingar á mikilvægri löggjöf án þess að hafa gert samstarfsflokki sínum fullnægjandi grein eða neina grein fyrir þessum hugmyndum.
Þetta þykir mér af pólitískum ástæðum stóralvarlegt mál. Ég fullyrði að í stjórnarsáttmála Framsfl. og Sjálfstfl. er ekki að finna stafkrók um það að þessi ríkisstj. eigi að beita sér fyrir einhvers konar byltingu á félagslegri löggjöf eða jafnréttismálum í afturhaldsátt, og engin heimild er til um það í stjórnarsáttmálanum að vinna skuli að breytingum á lögum um námslán og námsstyrki, enda eru það tiltölulega nýsamþykkt heildarlög og naumast að þau séu að fullu komin til framkvæmda. A.m.k. er ekki enn farið að reyna á ýmis ákvæði laganna, t.d. endurgreiðslureglurnar, sem í þeim lögum standa og sífellt er verið að ræða um að séu svo voðalegar, því að allt það sem þeir menn sem mest ráðast á gildandi skipulag segja um endurgreiðsluákvæðin og endurgreiðsluástandið er rangt og villandi.
Þær forsendur voru gefnar um svokallað endurgreiðsluhlutfall á sinni tíð, þegar lögin voru samþykkt og frv. var í undirbúningi, að lán úr sjóðnum mundu endurgreiðast 88%, afföllin yrðu 12%. Það er ekkert sem bendir til annars en að þessi forsenda standist, en á hana er ekki farið að reyna enn þá. Þetta endurgreiðsluhlutfall þótti viðunandi fyrir fjórum árum. Þar á meðal þótti sjálfstæðismönnum það ágætt hlutfall, og ég tel að það sé gott og það sé viðunandi enn í dag og ég er viss um að margir sjálfstæðismenn eru mér sammála enn í dag um þetta atriði. Það er rangt að reglur laganna um endurgreiðslur séu svo slappar að þær muni sliga fjárhag sjóðsins. Þvert á móti. Og má ég, herra forseti, minna á að það er nánast ekkert farið að reyna á endurgreiðslurnar vegna þess að lögin eru svo ný.
Það vissu allir í upphafi að áhrifanna frá endurgreiðslureglunum um 88% hlutfallið, sem svo hefur verið kallað, mundi ekki fara að gæta fyrr en eftir allmörg-ár frá setningu laganna. Það gætu liðið 5-7 ár frá setningu laganna þangað til áhrifanna fer virkilega að gæta; en úr því, t.d. þegar kemur fram um aldamót, eins og einn hv. þm. hefur nefnt í ræðu sinni, mun þessara ákvæða fyrst fara að gæta. Ég vil taka undir með hv. þm. Kristínu Halldórsdóttur að það er einmitt þetta sem við verðum að veita athygli. Við skulum ekki brjóta niður þetta kerfi. Það er ekki enn þá farið að sýna sig í reynd og það er ekki víst að þeir sem ætla sér að breyta þessum reglum og stefna að breytingum á lögunum hitti á vænlegra ráð en er að finna í lögunum nú um endurgreiðslur. Og ég vil minna hæstv. ráðh. á að einhvers staðar í ráðuneytinu mun finnast reiknilíkan sem sýnir fram á þetta sem ég hef hér verið að nefna.
Ég legg höfuðáherslu á það, herra forseti, að Lánasjóður ísl. námsmanna er félagslegt réttindamál og óhjákvæmileg stofnun til að halda uppi jafnrétti í velferðarþjóðfélagi. Lánasjóður ísl. námsmanna er ekki fjárfestingarsjóður, eins og menn eru sífellt að japla á. Hann er enginn fjárfestingarsjóður, hann er ekki sjóður viðskiptalegs eðlis. Þegar talað er um að menntun sé fjárfesting er það í raun og veru ekkert annað en hugtakaruglingur. Hitt er annað mál að menntun er verðmæti í sjálfri sér og hefur eins mikil áhrif á framfarir í þjóðfélaginu, á efnahagsstöðu þjóðfélagsins og hagvöxtinn, og fjármagnið sjálft og annað fémæti sem nýtanlegt er í þjóðarbúskapnum, enda er menntun sama og þekking og þroski mannsins. Það er menntun. Og þó að þjóðfélagið vanhagi að vísu alltaf um beinharða peninga, fasteignir, skip, vélar og þess háttar kapítal, þá er það þekkingin og menntunin, það er þroski mannsins, sem fær hjólin til að snúast. Og menntunin er þannig a.m.k. jafngild kapítalinu fyrir atvinnulífið, en hún er þó annað og meira en kapítal og engin ástæða til þess að vera sífellt að rugla þessu saman. En það kalla ég að rugla saman óskyldum hlutum þegar farið er að bera Lánasjóð ísl. námsmanna saman við fjárfestingarsjóði atvinnuveganna. Slíkt gera ekki aðrir en þeir sem eru gjörsamlega formyrkvaðir af alls konar peningagrillum og þekkja ekki þau takmörk sem fjárhagslegu og viðskiptalegu gildismati eru sett.
Það er eðlilegt frá viðskiptasjónarmiði séð að krefjast þess að fjárfesting skili arði og að lán til fjárfestingar og atvinnurekstrar yfirleitt skili fullum vöxtum. En það er í fyllsta máta óeðlilegt, ef það er ekki ómanneskjulegt, að krefjast þess að námskostnaður sé látinn bera fulla vexti. Það er fullkomlega réttmætt og rökrétt að önnur vaxtalögmál gildi um námslán en viðskiptalán. Námslán og viðskiptalán eru svo gjörólík að eðli að þau verða ekki borin saman, á þau verður ekki lagt sama gildismat, og var manni þó kennt það í skóla - og ég held það sé gert enn - að það væri heimskra manna háttur að bera saman ósambærilega hluti, og við eigum ekki að bera saman ósambærilega hluti.
Ég tel að sá námsmaður sem greiðir námslán sitt með fullri verðtryggingu hafi með því greitt eðlilega fyrir menntun sína úr eigin vasa og það er engin ofætlun þótt vextir af þessu fé séu greiddir af þjóðfélaginu í heild. Sú upphæð sem þessum vöxtum nemur skilar sér fyllilega í þjóðarbúið í formi þekkingar, í formi verkkunnáttu, sem kemur þjóðfélaginu að beinu gagni, beinu fjárhagslegu gagni. Ég er þess vegna andvígur öllum hugmyndum um vaxtaálag á námslán.
Þegar rætt er um námslán og námsstyrki og um Lánasjóð ísl. námsmanna er nauðsynlegt að átta sig á því hvaða fólk það er sem nýtur þessa kerfis og hefur aðgang að því. Það þarf varla að taka það fram, það liggur í orðanna hljóðan, að það eru eingöngu námsmenn, nemendur í föstum skólum, sem eiga aðgang að námslánakerfinu. Vissulega er það rétt að það er mjög stór hópur námsmanna sem nýtur þessa kerfis og námsgreinar eru margvíslegar og námsgreinar eru sundurleitar. Það er einnig líklegt að ýmiss konar munur sé á öllu þessu námi hvað varðar þörf fyrir einbeitingu, ástundun, samfelldan námstíma o.s.frv. Það er því alls ekki fyrir það að synja að í öllum þessum stóra hópi séu einhvers staðar slakir nemendur að dóla í námi sem þeir ráða illa við og einhverjir sem gætu stundað verulega vinnu með námi sínu og þyrftu ekki á mikilli námsaðstoð að halda, líkt og við gerðum, hæstv. menntmrh., hér fyrir 30 eða 35 árum þegar við vorum á svipuðum tíma í Háskóla Íslands og stunduðum utanskólanám, hreint utanskólanám, milli þess sem við vorum á togurum eða í steypuvinnu.
En ef svona dæmi, eins og ég var að nefna áðan um það að einhverjir kunni að slugsa í námi, finnast eru það undantekningar. Reglan er allt önnur. Reglan er sú að rétthafar að Lánasjóði ísl. námsmanna standa þannig að vígi hvað varðar efnahag og fjölskylduástæður og tímafrekt nám, sem krefst nærri því allra starfskrafta þeirra, að þeir eru nauðbeygðir til þess að taka lán úr sjóðnum til þess að framfleyta sér meðan á námi stendur. Rétthafar að sjóðnum eru í reynd langflestir á aldrinum 20-30 ára, að ég hygg. Margt af þessu fólki hefur stofnað til hjúskapar og margt af þessu fólki er barnafólk. Þessir nemendur eru fullorðið fólk, hafa stofnað sín eigin heimili og leggja auðvitað ekki á sig neina meinlætakvöð frekar en aðrir fullfrískir Íslendingar á þessum aldri. Það kemur ekki til greina að þetta fullorðna fjölskyldufólk og barnafólk sé á framfæri foreldra sinna. Efnahagur foreldranna býður ekki upp á það. Það er þess vegna sem þjóðfélagið fann upp námsstyrktarkerfið og formaði það í námslán. Aðstæður og þörf gerðu þetta kerfi nauðsynlegt. Þetta er félagslegt réttindamál og varðar afkomu almennings í landinu, varðar afkomu e.t.v. tugþúsunda heimila í landinu. Ef námsstyrktarkerfið væri ekki fyrir hendi er augljóst að launamenn í landinu mundu krefjast stórhækkaðra launa til þess að mæta þeirri kvöð sem á þá legðist að kosta nám fullorðinna barna sinna í meira eða minna mæli. Við skulum bara átta okkur á hvað mundi ske ef þetta kerfi væri ekki fyrir hendi. Og ef það væri ekki til yrði langt og kostnaðarsamt nám beinlínis forréttindi fyrir syni og dætur þeirra sem best mega sín.
Ég ætla því að leyfa mér að leggja það til við hæstv. menntmrh. að hann sé ekkert að skeyta skapi sínu frekar á gildandi lögum um námslán og námsstyrki og hann láti nú dugnað sinn og athafnasemi koma einhvers staðar annars staðar fram. Hann ætti t.d. að snúa athafnaþrá sinni að því sem ég veit að hæstv. ráðh. vill svo gjarnan. Ég hefði gjarnan viljað sjá hann beita athafnasemi sinni við það að koma upp háskólakennslu á Akureyri. Í því máli voru stigin mikilvæg spor í minni ráðherratíð og það gerir hæstv. ráðh. auðveldara að ganga lengra á þeirri leið. Og mér er ljúft að fylgjast með ráðherranum á þeirri göngu og í ótal mörgum öðrum málum því að í ýmsu treysti ég hæstv. ráðh. til góðra hluta.
Herra forseti. Ég hef farið hér vítt og breitt um þetta mál. Ég haf lagt á það áherslu að sjóðurinn er félagslegt réttindamál og það finnst mér vera grundvallaratriðið í öllu þessu máli að menn átti sig á því. Ef menn átta sig á því held ég að menn eigi auðveldara með að skilja þetta mál í heild sinni og varist alla þá hleypidóma og heimsku sem oft á sér stað, því miður, í umræðum um þetta mál. Lánasjóði ísl. námsmanna er ætlað það hlutverk að jafna aðstöðu fólks til náms og lögin sem nú gilda um þetta efni tryggja þetta markmið. Á þetta legg ég höfuðáherslu.
Ég skal svo ekki hafa þessi orð fleiri, herra forseti, en ég beini því enn til hæstv. ráðh. að hann aðgæti vel sinn gang í öllu þessu máli. Ég vænti þess að það komi í ljós, sem reyndar kom að hluta til í ljós í þessum umræðum, að hann er að draga í land með ýmsar sínar stærstu yfirlýsingar sem heyrst hafa frá honum undanfarnar 3-4 vikur.