30.01.1986
Sameinað þing: 39. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 2245 í B-deild Alþingistíðinda. (1902)

Lánasjóður íslenskra námsmanna

Ólafur Þ. Þórðarson:

Herra forseti. Ég hef nú dvalið við það í dag að lesa Víga-Glúmssögu ef ég mætti nokkra skýringu finna á hátterni hæstv. menntmrh. En þar sem vikið hefur verið að skörungsskap og slíku þykir mér hlíta að lesa hér þau lokaorð þar sem minnst er á kappa þennan, en ég veit að hæstv. menntmrh. hefur löngum metið hann mikils. Með leyfi forseta:

„Það var almæli manna að Glúmur hafi verið tuttugu vetur mestur höfðingi í Eyjafirði, en aðra tuttugu vetur engir meiri en til jafns við hann. Það er og mál manna að Glúmur hafi bestur verið að sér allra vígamanna hér á landi. Og lýkur þar Glúmssögu.“

En vel að merkja að Morgunblaðið kom ekki út á þessum árum og gerði mönnum engan óleik þá þeir undirbjuggu mál og vildu ráða ráðum sínum. Ég hygg að rétt sé að víkja ögn að félaga Napóleon og hans aðgerðum á búi Jóns bónda. Ég hygg að hæstv. menntmrh. hafi ekki farið nægilega vel með þá sögu að það sé verjandi að hún fari í þingtíðindi með þeim hætti.

Svínin stóðu fyrir uppreisninni og stjórnuðu dýrunum, það var allt saman satt og rétt. En það svínið, sem stjórnaði, hét Snækollur og vildi hafa réttlæti mikið. (Menntmrh.: Ásamt með Napóleon.) M.a. hafði Snækollur vit á því að þiggja ekki ráð Napóleons. Hann setti reglur og bauð mikið jafnrétti. M.a. var það tryggt að dýrin áttu að halda sínum afurðum og hænsnin áttu að halda sínum eggjum. En svo varð bylting og byltingin étur ávallt börnin sín. Þá komust svartflekkóttu svínin til valda, hæstv. menntmrh., og Snækollur fór hrakfarir hinar mestu og var drepinn. En þar sem dæmisagan er nú nokkurn veginn rétt upp sett miðað við ræðu hæstv. menntmrh. þykir mér nú rétt að hann raði inn í hlutverkin og geti þess hverjir séu hin svartflekkóttu svín og hver hin. Ég vildi gjarnan heyra það í hans lokaræðu hér á eftir. En það var félagi Napóleon sem komst að því að vissulega ættu allir að vera jafnir en aðeins mismunandi jafnir.

Ég hygg að hæstv. menntmrh. hafi eigi gáð að því í sínum vopnaburði að hann hefur í fyrsta lagi atyrt þingið harðlega fyrir að hafa samþykkt ónothæf lög. Í annan stað hefur hann vikist mjög harkalega að fyrrv. menntmrh., beinlínis haldið því fram að undir stjórn hæstv. menntmrh., sem í dag er hæstv. heilbrrh., hafi verið stjórnleysi á Lánasjóði ísl. námsmanna, þar hafi ónothæfur stjórnandi verið til staðar, þar hafi verið sukk á greiðslum til starfsmanna og yfirvinna óhóflega mikil.

Sá hæstv. menntmrh., sem sat þegar þetta ástand ríkti, hefur ekki enn borið hönd fyrir höfuð sér. En það setur að manni hroll við þá tilhugsun að hæstv. fyrrv. menntmrh. er í dag hæstv. heilbrrh. og þar er varið miklu stærri fjárhæðum en í menntakerfinu. Hvert stefnir þá á þeim bæ? Það hlýtur að vera mikið áhyggjuefni.

Hitt er þó ekki síður alvarlegt að í ljós hefur komið að varaformaður Sjálfstfl., sá sem stjórnar trjónukrabbadeildinni, hv. 2. þm. Reykv., hefur reynst óhæfur til að semja lagafrv. Eru það mikil vonbrigði. Hann hefur einnig valið þann kostinn að víkja af fundi nú síðdegis enda er setuliðið í slíkri sókn að fáheyrt er.

Ég hygg að það sé ærið umhugsunarefni hvort réttlátt sé að skamma þá svo mjög sem stóðu að seinustu lagasetningu um Lánasjóð ísl. námsmanna þar sem ákveðið var að um 85-90% af fjármunum skiluðu sér aftur til sjóðsins, að vísu vaxtalaust, og breyta því kerfi sem verið hafði þar sem um 65% skiluðu sér verðtryggt til baka.

Mér er ljóst að menn setja markið hátt og ég held að ég verði, með leyfi hæstv. forseta, að fá að lesa hér úr Minnisblaði um menntamál sem SUS hefur látið frá sér fara eða skilið eftir á glámbekk. Þar er minnst á uppstokkun á aðstoð við háskólanám og kannske eru þetta hugleiðingarnar sem dynja yfir hæstv. menntmrh. þessa stundina. Með leyfi forseta vil ég fá að lesa hér örstuttan pistil:

„Lagt er til að endurskoðaður verði sá háttur sem nú er hafður á við aðstoð við háskólanám. Krafin verði skólagjöld í Háskóla Íslands en um leið verði veittir námsstyrkir og námslán þannig að enginn, sem yfirleitt á erindi í háskóla, þurfi að hverfa frá námi af fjárhagsástæðum. Námsstyrkir skulu enn fremur ná til náms í erlendum háskólum eftir því sem við á.

Þeir nemendur, sem stunda nám með bestum árangri og af mestri skyldurækni, skulu að öðru jöfnu ganga fyrir með námsstyrki. Lagt er til að veittur verði árlegur fyrir fram ákveðinn fjöldi námsstyrkja í einstökum greinum, þó með nægilegum sveigjanleika vegna nýrra námsbrauta og mismunandi áhuga nemenda frá ári til árs.

Námslánum verði þannig hagað að sérhver stúdent fái tiltekna ábyrgðarkvóta frá ríkinu. Lánasjóðurinn verði lagður niður í núverandi mynd en í hans stað komi ábyrgðarsjóður námslána. Ábyrgðarsjóðurinn skal ábyrgjast skuldabréf fyrir námsmenn í samræmi við ábyrgðarkvóta þeirra. Námsmenn eiga síðan að selja þessi skuldabréf bönkum og sparisjóðum, lífeyrissjóðum eða með öðrum hætti. Skuldabréfin, er ábyrgðarsjóðurinn ábyrgist, geta verið til langs tíma, 20-40 ára, verðtryggð og með vöxtum. Falli ábyrgðin á sjóðinn má fara með slíkt eins og vanskil á núverandi námslánum.“

Ég hygg að rétt sé að nota Morgunblaðið til að meta það hvaða afleiðingar þessi breyting gæti haft í för með sér. Í Morgunblaðinu frá því í gær er verið að ræða um það hvort hafa eigi vexti á námslánum eða ekki og hvaða afleiðingar það hafi verði þeir upp teknir. Enn vil ég, með leyfi hæstv. forseta, fá að lesa hér upp úr Morgunblaðinu:

„Annað atriði, sem skiptir miklu í sambandi við hugmyndir um að reikna vexti af námslánum, eru launakröfur háskólamanna og annarra er tekið hafa lán til þess að fjármagna sína skólagöngu. Hækki menntunarkostnaður manna hljóta kröfur þeirra um hærri laun að námi loknu að fylgja í kjölfarið af eðlilegum ástæðum. Það er ekki aðeins beinn kostnaður vegna menntunar sem hefur áhrif á kaupkröfurnar heldur er starfsævi þeirra, sem leggja út á langskólabrautina, yfirleitt styttri en annarra.

Þingmenn verða að vega það og meta hvort auknar kaupkröfur langskólagenginna manna séu æskilegar eða ekki og í framhaldi af þessu skal á það bent að stór hluti háskólamanna er í vinnu hjá hinu opinbera. Aukinn launakostnaður ríkisins og sveitarfélaga virðist því óumflýjanlegur nái hugmyndir um fulla endurgreiðslu og vexti fram að ganga.“

Þetta er dómur Morgunblaðsins og ég hygg að það sé fullrar umhugsunar virði hvort þessi dómur er ekki hárréttur. Það eina, sem að honum má finna, er það að vissulega er ekki víst að allir þeir Íslendingar, sem njóta námslána, eigi eftir að verða starfandi menn hér heima á Íslandi. E.t.v. eiga sumir þeirra eftir að eyða allri sinni starfsævi erlendis og þannig höfum við menntað upp menn sem aðrar þjóðir njóta. Það er vissulega hugsanlegt hvort það ætti að hafa annað endurgreiðslukerfi við slíkar kringumstæður.

Ég hygg aftur á móti að hæstv. ráðh. hljóti að standa við þá yfirlýsingu sína, sem hann gaf fyrir jólin á fundi fjh.- og viðskn., að ekki yrði komið aftan að námsmönnum. Þeir hafa gert sínar áætlanir um nám í sumar til vors það minnsta og það er ákaflega óeðlilegt ef ekki er hægt að standa þannig að þeim málum að nokkuð megi treysta því að þær upplýsingar, sem námsmaður fær hjá Lánasjóði ísl. námsmanna um að hann eigi rétt á einhverjum fjárhæðum til að lifa af ákveðinn vetur, standist.

Ég vil einnig í þessari umræðu undirstrika það að ég hefði gjarnan talið það heppilegri vinnubrögð að ráðherra færi ekki svo geyst á stað í sinni umfjöllun um lánasjóðinn að hann þvingaði fram umræðu á Alþingi Íslendinga áður en upplýsingar liggja fyrir um hvað það er sem hann vill breyta. Það hefði verið stórum betra að hafa þær tillögur strax til umfjöllunar ef hann er svo ákveðinn í því að það þurfi að leggja fram frv. um Lánasjóð ísl. námsmanna. En sumir hlutir eru þess eðlis að þeir verða illa þolaðir.

Vaka, félag lýðræðissinnaðra stúdenta, hefur viljað undirstrika að þar væru lýðræðissinnar og það efa ég ekki. Sú regla hefur gilt að stúdentar hafa ráðið sínum fulltrúa í lánasjóðnum. Þeir hafa haft það fyrir fasta reglu að leifa eftir skiptum hafi orðið þar stjórnarskipti. Sá fulltrúi sem nú situr væri ekki enn orðinn fulltrúi stúdenta í lánasjóðnum ef þessi regla hefði ekki verið til staðar hjá þeim sem í Háskólanum eru. Og það er ákaflega vandséð á hvaða forsendum hæstv. menntmrh. telur að hann þurfi að hafa vit fyrir stúdentum í þeim efnum hvaða fulltrúi eigi að vera í sjóðsstjórninni. Vænt þætti mér um ef hann vildi hugleiða hvílíka bölvun hann gerir hinu lýðræðislega félagi Vöku með því að standa svo fast á þessu. Auðvitað hugsa menn sem svo: Er það eitt sem stjórn Vöku segir í blöðum og annað sem hún hvíslar að ráðherrunum? Er það í reynd svo að Vaka vilji að ástandið sé á þennan veg þó að þeir í blöðum haldi öðru fram? Ég tel að ráðherra þurfi að hugleiða það í fullri alvöru að annaðhvort hlýtur þetta að þýða að Vaka breyti sínu nafni og kallist ekki lengur lýðræðissinnaðir stúdentar eða það að hann meti svo þá ungu menn sem eru hans flokksbræður í Háskólanum að þeir fái að segja við sína félaga: Við erum lýðræðissinnaðir stúdentar og við viljum að fulltrúi stúdenta sé valinn eftir lýðræðislegum leikreglum og við viljum að þær venjur sem hafa gilt í þessum efnum séu virtar. Þetta bið ég hann að hugsa alveg sérstaklega því að það er engum til góðs í þeirri umfjöllun sem á eftir að verða um þessi mál ef deilumálum eins og þessum á að halda til streitu. Það er engum til góðs og allra síst þeim unga manni sem nú situr í stjórn lánasjóðsins rúinn trausti sinna félaga.

Ég sat í menntmn. þegar fjallað var um þau lög sem nú eru svo hart gagnrýnd. Þá var lagt fyrir frv. sem mikil samstaða hafði orðið um á milli stjórnmálaflokka og stúdenta. Engu að síður ákvað menntmn. þá, og það studdi ég, að þyngja endurgreiðslurnar miðað við það sem frv. gerði ráð fyrir. En frv. veitti ráðherra aftur á móti mikinn ákvörðunarrétt til að hafa úrslitaáhrif um hversu háar upphæðir væru lánaðar á hverjum tíma. Þar getur hann með reglugerðarákvæði sett upp hverjar viðmiðanirnar eiga að vera. Það er vissulega rétt að á þeim tíma þegar rofið var vísitölukerfið gagnvart launamönnum hefði það ekki verið óeðlilegt að þáv. hæstv. menntmrh. hefði einnig ákveðið að svipaðar leikreglur giltu gagnvart stúdentum. En það er spurning hvort hæstv. núv. menntmrh, telur að ríkisstj. eða flokkur hans vaxi við að það sé hrópað út á torgum að nú þurfi að fara að stjórna. Það er nefnilega hægt að segja þessa setningu á annan veg: Það var stjórnleysi og hver er þá toppurinn og hver ber þá ábyrgðina? Auðvitað hæstv. fyrrv. menntmrh.

Ég hygg að þó að þessi umræða, sem í dag hefur farið fram, hreinsi e.t.v. andrúmsloftið að nokkru leyti sé það mikil nauðsyn í jafnstóru máli og þessu að menn beri gæfu til að setjast niður og skoða þessi mál með opnum huga. Ég læt ekki frá mér fara neinar yfirlýsingar um að þau verk sem voru unnin í menntmn. þegar seinasta frv. var þar til meðferðar sem nú er orðið að lögum séu svo alfullkomin að þar megi engu breyta. Auðvitað viljum við skoða það sem fram hefur komið í ljósi reynslunnar. Hver vill ekki hagnýta sér upplýsingar ef eitthvað nýtt liggur fyrir? En það er ekki leiðin að mínu viti að hefja fyrst slíkt auglýsinga„show“ að það veit enginn hvaðan á sig stendur veðrið.

Hv. 5. þm. Reykv. taldi að hæstv. menntmrh. væri smitaður af hetjuskap Þorgeirs Hávarssonar og honum hefði orðið á það sama og þegar Þorgeir reið um túnið á Hvassafelli og smalamaður húkti fram á prikið og hann stóðst það ekki að láta öxina falla. Ég verð að segja eins og er að mér finnst að þegar hv. 5. þm. Reykv. er nýlega búinn að taka þessa sögu sem sérstakt dæmi um hvernig hetjur eigi ekki að hafast að, hvað þær eigi ekki að gera, flutti hér mjög vandaða ræðu þar sem hann hafði þetta sem eitt aðalinntak sitt, að svona mætti bara alls ekki vinna eins og Þorgeir Hávarsson, þá finnst mér það ekki nógu gott ef þessi ásökun hv. 5. þm. Reykv. er rétt. Ég hef aftur á móti engin gögn í höndum til að fullyrða eitt eða neitt á þessari stundu um þá ákvörðun ráðherrans að láta framkvæmdastjórann fara. Ég hef engin þau gögn í höndum að ég geti fullyrt að sú ákvörðun sé forkastanleg eða hún sé réttmæt.

Hins vegar hefði ég talið vel við hæfi að eitthvað annað kæmi fram bitastætt en yfirvinnan sem hér hefur verð minnst á og lélegar áætlanir. Með fullri virðingu fyrir stjórnmálamönnum held ég að það sé ekki staður né stund til að taka menn af fyrir lélegar áætlanir og allra síst ef menn eru nýkomnir úr iðnrn. En hitt get ég tekið undir með ráðherra að það er náttúrlega glórulaust ef tímafjöldi er skrifaður á þann veg að manni er nánast óskiljanlegt hvort menn séu enn lífs sem hafa lagt á sig alla þá vinnu. Það hlýtur að vera umhugsunarefni.

Ég vænti þess að Alþingi Íslendinga beri gæfu til að íhuga þessi mál í rósemd og ég vænti þess að hæstv. menntmrh., sem ég tel dreng góðan, hugleiði hvort ekki sé vitlegra að bakka með sumt en að efla þann ófrið sem orðið hefur.