03.02.1986
Efri deild: 44. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 2261 í B-deild Alþingistíðinda. (1907)

163. mál, fóstureyðingar

Flm. (Þorv. Garðar Kristjánsson):

Hæstv. forseti. Ég flyt þetta frv. ásamt hv. 11. landsk. þm. og hv. 3. þm. Suðurl.

Þetta frv. felur í sér að þrengd er heimild til fóstureyðinga. Samkvæmt gildandi lögum er fóstureyðing heimil af þrenns konar ástæðum, þ.e. í fyrsta lagi af félagslegum ástæðum, í öðru lagi af læknisfræðilegum ástæðum og í þriðja lagi ef konu hefur verið nauðgað eða hún orðið þunguð sem afleiðing af öðrum refsiverðum verknaði.

Með frv. þessu er lagt til að fella niður að félagslegar ástæður geti heimilað fóstureyðingu. Af þessu leiða aðrar breytingar sem í frv. felast.

Það er skoðun okkar flm. að félagslegar ástæður eigi ekki að réttlæta fóstureyðingu. Í fyrsta lagi eru félagslegar ástæður ákaflega rúmt og teygjanlegt hugtak. Í öðru lagi á að bæta úr félagslegum ástæðum með öðrum hætti en að tortíma mannlegu lífi.

Í gildandi lögum er gert ráð fyrir að félagslegar ástæður heimili fóstureyðingu þegar ætla má, eins og það er orðað, „að þungun og tilkoma barns verði konunni og hennar nánustu of erfið vegna óviðráðanlegra félagslegra ástæðna“. Í lögunum er svo að finna leiðbeiningar um það til hvers skuli tekið tillit við mat á því hvað er „of erfitt“ í þessu sambandi og hvað eru „óviðráðanlegar félagslegar ástæður“.

Þar er tiltekið sem ástæða fyrir fóstureyðingu að konan hafi alið mörg börn með stuttu millibili og skammt sé frá síðasta barnsburði. Samkvæmt þessari reglu getur fóstureyðing verið heimil þó að heimilisástæður séu góðar og heilsufar gott á heimilinu. Ef barnið er ekki velkomið í heiminn af einhverjum ástæðum skal lífi þess tortímt ef óskað er.

Þá er önnur leiðbeiningarreglan sú að fóstureyðing geti verið heimil ef konan býr við „bágar heimilisástæður vegna ómegðar eða alvarlegs heilsuleysis annarra á heimilinu“.

Þriðja leiðbeiningarreglan er sú að fóstureyðing geti verið heimil „þegar konan getur ekki vegna æsku og þroskaleysis annast barnið á fullnægjandi hátt“.

Tvær síðustu leiðbeiningarreglurnar byggja vissulega á félagslegum ástæðum. Enginn neitar því að bágar heimilisástæður vegna ómegðar eða alvarlegs heilsuleysis á heimili eða þroskaleysi móður geti skapað félagsleg vandamál. En spurningin er hvernig á að bregðast við þeim vanda. Það á ekki að gera með því að veita heimildir til fóstureyðinga. Félagslegan vanda á að leysa með félagslegum aðgerðum.

Með lögum nr. 25 frá 22. maí 1975 voru heimildir til fóstureyðinga rýmkaðar. Afleiðingarnar hafa ekki látið á sér standa. Fóstureyðingum hefur fjölgað ískyggilega. Skráðar fóstureyðingar hér á landi á hverja 100 lifandi fædda árið 1965 voru 1,4, árið 1970 2,5, árið 1975 6,3, árið 1980 11,6, árið 1981 13,7, árið 1982 14,1 og árið 1983 15,7.

Á árinu 1965 voru fóstureyðingar 68, árið 1970 99, árið 1975 274, árið 1980 523, árið 1981 597, árið 1982 613, árið 1983 687 og árið 1984 um 730. Þetta er reynsla okkar af því að heimila fóstureyðingar af svokölluðum félagslegum ástæðum. Aukningu fóstureyðinga frá því að lögin voru sett 1975 er eingöngu til þeirra að rekja.

Raunar hefur fóstureyðingum af læknisfræðilegum ástæðum ekki fjölgað á síðustu árum. Það eru nú um 9 af hverjum 10 fóstureyðingum framkvæmdar af svokölluðum félagslegum ástæðum.

Það er því fullkomin öfugþróun sem átt hefur sér stað hér á landi með setningu laga nr. 25 frá 1975. Með frv. þessu er lagt til að bregða á annað ráð. Það er lagt til að þrengja heimildir til fóstureyðinga. Frv. felur í sér að fóstureyðingar verði ekki heimilaðar af félagslegum ástæðum.

Enginn neitar samt að félagsleg vandamál eru fyrir hendi. Bágar heimilisástæður vegna ómegðar eða alvarlegs heilsuleysis á heimili eða þroskaleysi móður geta skapað félagsleg vandamál. En spurningin er: Hvernig á að bregðast við þeim vanda? Það á ekki að gera með því að veita heimild til fóstureyðinga. Þjóðfélag sem leyfir fóstureyðingar af félagslegum ástæðum lítur fram hjá hinum raunverulega vanda. Það er þjóðfélag sem sættir sig við óleyst vandamál því að félagslegur vandi verður ekki leystur nema með félagslegum ráðstöfunum. Það vill svo til að í þessu landi búum við að víðtækri almennri tryggingalöggjöf og margs konar opinberri aðstoð í félagslegu tilliti. Við teljum okkur standa allframarlega í þessum efnum og erum stundum harla ánægð með það sem áunnist hefur á síðustu áratugum til lausnar félagslegum vandamálum. En satt er það að mörgu er enn ábótavant og að ýmsu þarf að hyggja. Betur þarf að gera í málum barnshafandi kvenna og fjölga mæðraheimilum. Barnaheimilum þarf að fjölga og bæta við vöggustofum, dagvistarheimilum og leikskólum. Það þarf að bæta félagslega þjónustu og ráðgjöf við barnshafandi konur svo að þær fái mætt tímabundnum erfiðleikum. Það þarf að beita almannavaldinu og samhjálp þjóðarinnar um allt land, jafnt í strjálbýli sem í þéttbýli, til aðstoðar við þá konu sem býr við slæmar heimilisástæður vegna ómegðar eða alvarlegs heilsuleysis annarra á heimilinu svo að barnið sem hún gengur með verði velkomið í þennan heim og góður aðbúnaður þess sé sem best tryggður.

Ekkert annað er til lausnar þeim vanda sem um er að ræða. En þetta kostar fjármagn. Samt eru það smámunir sem ekki eru til að hafa orð á samanborið við það óbætanlega tjón sem blóðfórnir fóstureyðinganna valda nú hinni fámennu íslensku þjóð sem þarfnast mest af öllu fleiri handa til að halda uppi sjálfstæðri tilveru sinni.

En hvað sem þessu líður, svo alvarlegt sem það er fyrir þjóðarheildina, varðar frv. þetta fyrst og fremst einstaklinginn, siðferðilega afstöðu og lífsskoðun. Hér er gengið út frá að félagslegar ástæður geti aldrei réttlætt fóstureyðingu. Þetta leiðir af því að það er um mannslíf að tefla þegar rætt er um eyðingu fósturs. Það er grundvallaratriði að þetta mannslíf hefur rétt til að vera borið í þennan heim. Réttinn til lífsins verður að viðurkenna. Það er siðferðileg skylda að varðveita líf, jafnvel líf ófædds barns. Fóstureyðing á því ekki að koma til greina nema líf móður sé í fyrirsjáanlegri hættu eða telja megi auðsætt að barnið verði svo vangefið að ekki verði komist hjá að grípa til örþrifaráða eða konan hafi orðið þunguð af refsiverðu atferli. Það er á þessum forsendum, hæstv. forseti, sem frv. þetta er flutt.

Þegar núgildandi lagaákvæði voru sett um fóstureyðingar árið 1975 var borin fram brtt. við frv. að lögum þessum þar sem lagt var til að fóstureyðingar yrðu ekki heimilaðar af félagslegum ástæðum. Brtt. náði ekki fram að ganga. Þessi brtt. hefur verið tekin upp á ný á fjórum þingum í formi frv. til l. sem voru samhljóða því sem hér er nú lagt fram. Þá hlutu frv. ekki afgreiðslu. Þess er nú freistað enn á ný að leggja málið fyrir Alþingi í trausti þess að það nái nú fram að ganga.

Hæstv. forseti. Ég sé ekki ástæðu til þess að orðlengja frekar um þetta mál að sinni. Áður hef ég margoft þaulrætt efni þessa frv. Vísa ég og til ítarlegrar grg. og fskj. sem er að finna með frv. þessu.

Ég legg til að frv. verði að lokinni þessari umræðu vísað til heilbr.- og trn. í trausti þess að nefndin láti nú ekki farast fyrir að skila áliti svo að málið geti fengið þinglega meðferð á þessu þingi.