03.02.1986
Efri deild: 44. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 2279 í B-deild Alþingistíðinda. (1918)

164. mál, almannatryggingar

Sigríður Dúna Kristmundsdóttir:

Virðulegi forseti. Aðeins örfá orð. Eins og fram hefur komið styð ég ekki það frv. sem var síðast til umræðu. Það frv. sem nú er til umræðu styð ég hins vegar eindregið. Þær fáu krónur sem þetta frv. gæti fært mæðrum leysa ekki þann vanda sem einstæðar mæður búa gjarnan við. Til þess er vandinn of stór og bæturnar of litlar. Hins vegar mun hækkun á mæðralaunum verða dálítil búbót í léttar pyngjur einstæðra mæðra og annarra félítilla kvenna og því styð ég þetta frv.