03.02.1986
Neðri deild: 45. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 2287 í B-deild Alþingistíðinda. (1925)
196. mál, Stjórnarráð Íslands
Hjörleifur Guttormsson:
Herra forseti. Það frv. um Stjórnarráð Íslands sem hæstv. forsrh. hefur mælt hér fyrir er eins og fram kom í máli hans síðla fram komið þar sem hér er um að ræða eitt að stefnumálum ríkisstj., en nú er ekki eftir nema um eitt ár af starfsferli hennar eða a.m.k. eitt ár til alþingiskosninga ef að líkum lætur.
Þetta frv. sætir heldur ekki neinum tíðindum. Það er sannarlega allt önnur og rýrari uppskera en hefði mátt vænta eftir hinn langa meðgöngutíma á vegum ríkisstj. og stjórnarflokka. Hæstv. forsrh. gat þess við lok síns máls að ein af ástæðunum fyrir því hversu seint málið sé fram komið væri samráð sem haft hefði verið við þingflokka um þetta efni. Vissulega kannast ég við samráð í því formi að síðla sumars 1984 voru fulltrúar frá þingflokkum stjórnarandstöðunnar kvaddir til viðræðna við þá nefnd sem ríkisstj. skipaði og stjórnarandstaðan átti enga aðild að. Ég hygg það hafi verið fundir sem ég kom á með þessari nefnd og kynnti þar viðhorf okkar Alþýðubandalagsmanna til þessa máls og einstakar hugmyndir þar að lútandi, jafnframt því sem nefndin greindi frá hvar starfi hennar væri komið og hvaða hugmyndir væru uppi innan hennar.
Raunar lágu þá fyrir drög að frv. til laga um Stjórnarráð Íslands á vegum nefndarinnar í verulega mikið öðrum búningi en það frv. sem hér er lagt fram. Ég hygg raunar að nefnd þessi hafi skilað áliti þegar 15. nóv. 1983 eða hálfu ári eftir að ríkisstj. settist á stóla, en þau drög verið send til baka til nefndarinnar með leiðbeiningum frá ríkisstj. og ósk um nánari vinnu.
Nú eru sem sagt liðin meira en tvö ár frá því þessi fyrstu lög stjórnskipaðrar nefndar lágu fyrir á borði ríkisstj. Og hvað er það svo sem liggur fyrir í formi þessa frv.? Það eru sáralitlar breytingar frá gildandi lögum um stjórnarráðið frá 1969. Í rauninni eru það aðeins tvö efnisatriði sem má segja að skipti einhverju máli frá þeim lögum sem í gildi eru og þeirri hefð sem mótast hefur á grundvelli þeirra laga. Það eru ákvæðin um svokallaðan ráðherraritara, þ.e. breytt staða aðstoðarmanns ráðherra frá því sem er í gildandi lögum, og mun ég víkja að þeirri nýbreytni sem hér er lögð til síðar í máli mínu, og í öðru lagi er það afnám æviráðningar stjórnarráðsstarfsmanna sem er vissulega túlkunaratriði hvort teljast æviráðnir eða ekki, a.m.k. er heimild til að víkja mönnum úr starfi. Hér er lögð til sex ára ráðningarregla sem meginviðmiðun, en þegar nánar er litið á er heimild til tólf ára ráðningar og raunar til átján ára ráðningar sama manns innan sama ráðuneytis, eins og fram kemur í þessum texta.
Þetta er í rauninni allt kjötið á þeim beinum sem felast í þessu frv. Það er ekki lögð til ein einasta breyting á skipan ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands. Og það sætir fyrst og fremst tíðindum að ríkisstj. skuli eftir meira en þriggja ára valdaferil og ráðslag um þessi efni leggja hér á Alþingi fram frv. sem nánast skiptir engu máli, a.m.k. sáralitlu máli eins og málið er fyrir lagt.
Það eru fyrst og fremst þær breytingar sem ekki eru lagðar til sem eru tíðindi í sambandi við þetta efni.
Ég varð var við það á samráðsfundi með þeirri nefnd sem starfaði undir forustu Eiríks Tómassonar lögmanns að tillögugerð fyrir ríkisstj. um þetta efni ásamt öðrum tilkvöddum mönnum frá stjórnarflokkum að þar voru uppi hugmyndir um verulegar breytingar m.a. á skipan ráðuneyta, en eftir að ríkisstj. hefur haft þetta á borði sinu í tvígang eða þrígang hefur niðurstaðan orðið sú að við engu má hrófla, nákvæmlega engu, í þessum efnum.
Það er táknrænt í sambandi við þessi efni að þar er ekki minnst einu orði, að ég fæ séð við lestur þessa frv., á málaflokk sem hefur þó verið til umræðu hér á Alþingi og ég hélt jafnvel innan ríkisstj. að þyrfti að fá rúm í stjórnarráðinu vegna breyttra aðstæðna á undanförnum áratugum og endurspeglast í breytingum innan stjórnarráðsins og í heiti ráðuneyta, en það eru umhverfismál. Umhverfismál eiga engan stað innan þessa frv. Það er sannast sagna hneykslanlegt að ríkisstj. skuli nú koma fram með frv. um stjórnarráðið án þess að minnst sé orði í því frv. á þann málaflokk, ekki einu sinni í athugasemdum með frv. Ég leyfi mér ekki einungis að spyrja hæstv. forsrh. um hverju þetta sæti heldur einnig viðstaddan hæstv. félmrh. sem ég hygg að hafi ætlað sér að fá fram einhverja breytingu í þessum málum og verið ætlast til að undirbyggi löggjöf um umhverfismál og jafnhliða kæmu fram breytingar á skipan stjórnarráðsins sem tækju mið af breyttum aðstæðum í þessum efnum svo við yrðum ekki endalaust langt á eftir öðrum Norðurlöndum í meðferð þessa málaflokks því að nú hafa öll hin Norðurlöndin sameinað meginþætti sem snerta umhverfismálin, annaðhvort stofnað um það sérráðuneyti, sjálfstæð umhverfisráðuneyti, eða fundið þeim skilmerkilegan stað innan annarra ráðuneyta, og nú síðast í Finnlandi sem var síðast fyrir utan Ísland þar sem þetta mál er ekki á blaði. Ég vænti þess að hæstv. félmrh. tjái sig um þetta efni og hvar sé komið vinnu að mótun löggjafar um umhverfismál þar sem sé fyllt í þær eyður sem á vantar í þessum mikilvæga málaflokki.
Eitt af því sem ég flutti inn á vettvang þessarar nefndar frá mínum þingflokki var sá vilji þingflokks Alþb. að stofnað yrði sérstakt umhverfisráðuneyti, sjálfstætt umhverfisráðuneyti. Við værum vissulega reiðubúnir til að skoða einhverja þá skipan mála sem sameinaði þennan gilda málaflokk öðrum þáttum ef um það mætti takast málamiðlun, en a.m.k. að umhverfismálin komi þá fram sem þáttur í viðkomandi ráðuneyti, í heiti þess, til að setja þennan málaflokk á þann stað og stall sem honum ber fyrir löngu í okkar stjórnkerfi.
Ég hlýt aðgera að umtalsefni hér sérstaklega þennan meginþátt í uppbyggingu stjórnarráðsins, þ.e. hugmyndir um breytingar á samsetningu og skipan ráðuneyta sem engar eru í þessu frv. Ég er ekki að segja að það séu endilega þær einu réttu hugmyndir sem við Alþýðubandalagsmenn höfum viðrað og viðruðum í þessari nefnd og ekkert annað komi til greina, en ég fullyrði að það er orðin brýn þörf á því að endurskoða þessi mál, uppbyggingu stjórnarráðsins hvað snertir skipan ráðuneyta, eftir þau 17 ár sem liðin eru frá því lög voru sett um Stjórnarráð Íslands 1969. Ég heyrði það raunar hjá hæstv. forsrh. að hann viðraði hér tilteknar hugmyndir. Ekkert hef ég á móti því að hæstv. ráðh. geri það, en maður spyr hvort hann hefði ekki átt að halda til haga fleiri hugmyndum sem hefðu komið upp á borðið hjá ríkisstjórn hans í þessu efni þannig að við fengjum einhverja mynd af þeirri umræðu sem þar hefði farið fram um þetta. Það hefði verið forvitnilegt að vita í hverju ágreiningurinn var fólginn sem olli þeirri magalendingu sem hér liggur fyrir. Í hverju var sá ágreiningur fólginn og hverjir báru fram hugmyndir sem ekki gengu upp þannig að málið endaði í patti? Ég tel það eiginlega lágmarkskurteisi hæstv. forsrh. gagnvart samráðherrum sínum og samstarfsflokki í ríkisstj. að hann geri okkur alþm. grein fyrir því hverjar voru hugmyndir annarra ráðherra. Hann er búinn að kynna sína eigin hugmynd sem hann hefði getað hugsað sér. Ég bið hæstv. forsrh. að greina okkur frá því hvaða hugmyndir voru þar uppi og get ekki hugsað mér að það sé slíkt trúnaðarmál að það geti ekki legið fyrir í 1. umr. um þetta mál.
Þá skal ég koma að því sem við ræddum í þingflokki Alþb. að kæmi til greina í þessum efnum og ég flutti inn á vettvang þessarar samstarfsnefndar að lokinni umræðu í okkar þingflokki sumarið 1984. Ég vil ekki fullyrða hér og nú hvort þingflokkurinn var fullskipaður á fundum þetta sumar þegar um það var rætt. Ég vil ekki fullyrða um það. En þær hugmyndir sem ég bar þarna inn að þeirri umræðu lokinni voru m.a. í sambandi við skipan ráðuneyta.
Ég hef þegar getið um umhverfisráðuneyti sem var eindregin tillaga frá okkur og varatillaga auk þess í þeim efnum í sambandi við hugsanlega samtengingu umhverfismála og skipulagsmála og fleiri þátta sem eru innan félagsmálaráðuneytis. Jafnréttismál koma til umræðu í því samhengi, þörfin á að lyfta þeim málaflokki sérstaklega í sambandi við þessa endurskoðun.
Fyrir utan umhverfismálin var okkar tillaga sú að stofnað yrði sérstakt efnahagsráðuneyti sem tæki við ýmsum gildum þáttum í sambandi við efnahagsmálin og þar á meðal utanríkisviðskipti sem talsvert hefur verið um rætt og gefnar yfirlýsingar um á Alþingi að sameina utanríkisráðuneyti, en við feldum að utanríkisviðskiptin gætu vel fallið undir slíkt efnahagsráðuneyti. Í verkahring þess væri að vera aðalráðgjafi ríkisstj. í heild í efnahagsmálum og það tæki þannig að sér ákveðinn þátt sem nú er að nafninu til a.m.k. undir forsrn., sem er mjög vanmáttugt eins og það hefur verið byggt upp faglega séð til að vera sá ráðgjafi, og tæki auk þess yfir ákveðna þætti sem nú heyra undir fjmrn.
Bankastarfsemin væri auðvitað mjög eðlilegur þáttur í slíku efnahagsráðuneyti og Þjóðhagsstofnun ætti einnig að falla undir það. Meðal verkefna þessa efnahagsráðuneytis ætti að vera að gera tillögur að fjárfestingaráætlun fyrir þjóðarbúið, að lánsfjáráætlunum og þjóðhagsáætlunum, þáttum sem nú eru unnir á vegum Þjóðhagsstofnunar og Fjárlaga- og hagsýslustofnunar.
Ég er sannfærður um að slík breyting, stofnun slíks efnahagsráðuneytis með þessum þáttum og fleiri sem þar gætu heyrt undir, væri til verulegra bóta í sambandi við stjórnskipan okkar og meðferð efnahagsmála. Við erum ekki að leggja til að fjmrn. verði sameinað slíku efnahagsráðuneyti heldur gæti það starfað áfram.
Þriðja megintillagan, að viðbættu umhverfisráðuneyti og efnahagsráðuneyti, er sú hugmynd þin flokks Alþb. að sameina ráðuneyti atvinnumála. Ég hygg að menn geti greint á um það í mínum flokki eins og víðar hvort beri að sameina öll atvinnumálaráðuneytin í eitt, en ég er eindregið þeirrar skoðunar og hef verið það nokkuð lengi að það væri tvímælalaust skynsamlegt og til bóta og líklegt til miklu heilstæðari málsmeðferðar á atvinnumálum þjóðarinnar að afnema þá mjög svo gervikenndu skiptingu á meðferð atvinnumálanna sem m.a. hlýst af uppdeilingu þeirra í þrjú ráðuneyti innan stjórnarráðsins og þær hefðir sem hafa þróast í tengslum við þá meðferð mála.
Hvaða skynsemi sýnist vera í því að starfrækja sérstakt iðnaðarráðuneyti sem fer aðeins með lítinn hluta af raunverulegum iðnaðarmálum í okkar landi þar sem fiskiðnaðurinn sem gildasta grein iðnaðar í landinu liggur annars staðar? Hvaða eðlismunur er á hinum almenna útflutningsiðnaði og útflutningi unninna fiskafurða? Tengist þetta ekki allt saman? Hafa ekki viðhorfin breyst frá því lög voru sett 1969 um Stjórnarráð Íslands? Við höfum gengið í EFTA, erum orðnir aðilar að fríverslun og okkar heimaiðnaður, iðnaður fyrir heimamarkað, er háður bullandi og opinni samkeppni við innfluttan varning. Þetta lýtur allt saman sömu lögmálum markaðarins. Og það væri sannarlega líklegt til heilstæðari meðferðar á atvinnumálum og atvinnuþróun í landinu ef atvinnumálin yrðu þannig sett undir eitt ráðuneyti.
Við ræddum í okkar þingflokki að ef farið yrði að okkar tillögum um stofnun efnahagsráðuneytis og sjálfstæðs umhverfisráðuneytis gæti komið til álita að sameina ákveðna þætti í starfi félagsmálaráðuneytis og heilbrigðismál. Það gæti komið til greina. Þetta er eitt dæmið um endurskipan, en að því tilskildu að það tækist að stofna burðugt sjálfstætt umhverfisráðuneyti. Við höfum verið opnir fyrir því sem möguleika að sameina umhverfismál og félagsmál, ýmsa þætti sem þar eru innan veggja.
Þetta eru meginbreytingarnar í sambandi við fyrirsagnir eða heiti ráðuneyta sem ég kynnti þarna sem hugmyndir eftir umræðu í þingflokki okkar Alþýðubandalagsmanna. Það er ekki um að ræða fjölgun ráðuneyta. Við leggjum þarna til samruna þriggja ráðuneyta í eitt jafnhliða því sem tvö ný eru stofnuð þannig að ekki er um það að ræða. Við teljum að það sé skynsamlegt í sambandi við endurskipulagningu af þessu tagi að leitast við að jafna umfang innan ráðuneytanna, a.m.k. betur en tekist hefur til þessa því það er vissulega með mjög ólíkum hætti.
Ég tek út af fyrir sig eindregið, svo ég víki að ráðningu starfsmanna innan stjórnarráðsins, undir þá hugsun sem hér kemur fram, að vísu með harla veikum hætti, í sambandi við tímabundna ráðningu starfsmanna í stjórnarráðinu, jafnhliða eðlilegum launakjörum sem þessir starfsmenn þurfa að búa við, því að fá störf eru mikilvægari en þau sem unnin eru eða vinna þarf innan stjórnarráðsins. Ég tel að það hafi gætt allt of mikillar íhaldssemi eða rangra áherslna í sambandi við uppbyggingu stjórnarráðsins og stofnana á þess vegum. Ég tel að ráðuneytin sjálf, sú stofnun sem almennt gengur undir nafninu Stjórnarráð Íslands, hafi verið og séu faglega of veik, en stofnanir undir ráðuneytunum hafa fengið að velta upp á sig, hafa bólgnað út og aukið við mannskap og verkefni, oft verulega umfram raunverulegar þarfir, á sama tíma og heilabúið, sem á að stýra þessum stofnunum, er skilið eftir hálfvisið og veikburða varðandi faglega meðferð og eftirlit og stýringu á þessum stofnunum sem safnað hefur verið upp í kringum ráðuneytin og heyra að nafninu til a.m.k. undir eftirlit viðkomandi ráðuneyta. Þetta eru áherslur sem ég vildi sjá breyttar. En menn hafa náttúrlega talað sig næstum niður í núll hér með því að taka óskilgreint undir kröfuna „Báknið burt“ og vísa númer eitt á stjórnarráðið, það sé höfuðóvinurinn, það sé báknið. Á sama tíma hafa menn leyft stofnunum á vegum stjórnarráðsins meira og minna eftirlitslitlum eða eftirlitslausum að bólgna út og ekki gert stjórnarráðinu í rauninni kleift að sinna sínu eftirlits- og stjórnunarhlutverki á þeim mörgu starfsmönnum sem þar eru við störf. Skal ég út af fyrir sig ekki lasta margt af því sem þar er unnið og vel gert, en þetta eru kerfislega rangar áherslur að mínu mati.
Þá kem ég að blessuðum aðstoðarmönnum ráðherra og þeim ráðherrariturum sem hér er lagt til að svo verði kallaðir og hvernig því er nú fyrir komið, einu aðalnýmæli þessa frv. að hinu, varðandi ráðningartímann, fráteknu. Það eru bara þessi tvö litlu atriði sem skipta einhverju máli í þessu frv. Ja, hvernig er nú því fyrir komið? Það er sannarlega glæsilegt á að líta í 8. gr. þessa frv. og segir sitt um hvernig gagnsóknin hefur tekist hjá embættismannaliðinu í þessum efnum. Ég hygg að þeir hafi haldið nokkuð fast á sínu, ráðuneytisstjórarnir í Stjórnarráði Íslands, og passað að hafa ákveðið auga á þessum þáttum, í sambandi við ráðherraritarana, svo ekki yrði gengið of langt með þá. Það er út af fyrir sig skiljanlegt, en það óbermi sem út úr þessu kemur er ég satt að segja ansi smeykur um að eigi ekki allt eftir að verða mjög farsælt. Við skulum aðeins líta á 8. gr. Með leyfi forseta vitna ég í hana:
„Ráðherra er heimilt að ráða til starfa í ráðuneyti sérstakan ráðherraritara er veiti honum aðstoð við að móta stefnu sína og hrinda henni í framkvæmd. Gegnir ráðherraritari störfum svo lengi sem ráðherra kýs, þó ekki lengur en ráðherra sjálfur.“
Þetta gæti út af fyrir sig allt staðist, en það sem á eftir kemur er dálítið kyndugra. Þar segir:
„Ráðherraritari getur ritað undir stjórnvaldserindi og er starfsmönnum ráðuneytis öðrum en ráðuneytisstjóra skylt að hlíta fyrirmælum hans.“
Ég tek það fram að ég held að ég lesi þetta rétt. Það stendur þarna: „og er starfsmönnum ráðuneytis öðrum en ráðuneytisstjóra skylt að hlíta fyrirmælum hans.“ Ég verð að biðja hæstv. forsrh. að skýra það vel út fyrir okkur af hverju blessaður ráðuneytisstjórinn er gerður hornreka þarna og þarf ekki að hlíta fyrirmælum hans á meðan allir limirnir sem undir ráðuneytisstjóra eru settir, starfsmenn ráðuneytisins, eiga að hlíta fyrirmælum ráðherraritarans. Hvað er hér á ferðinni? - Síðan kemur:
„Ráðherra getur þó falið ráðherraritara að fara með stjórn á ráðuneyti undir yfirstjórn sinni.“
Þetta nægir sem tilvitnun í þessa grein. Hitt var um biðlaun ráðherraritara sem ekki mega gleymast. Það er allt á sínum stað.
Mér sýnist að hér sé hreinn óskapnaður á ferðinni. Ég sé ekki betur. Menn hafa verið að glíma við spurninguna um það og það er mjög réttmætt að velta því fyrir sér: Er eðlilegt til að styrkja hina pólitísku stýringu innan ráðuneytanna að setja þar inn pólitískan ráðuneytisstjóra sem fari með verkstjórn í umboði ráðherra innan ráðuneytis og þar sé af embættismanna hálfu skrifstofustjóri sem sjái um að fylgja fram fyrirmælum og annast verkstjórn innan ráðuneytis? Þetta tel ég alveg umræðu vert. Þá ættu menn líka að stíga skrefið til fulls og vera ekkert að kinoka sér við því, ræða a.m.k. málið í fullri alvöru. Væri ekki réttmætt að setja þarna inn mann til styrktar hinu pólitíska valdi hverju sinni í ráðuneytinu, pólitískan ráðuneytisstjóra sem yrði ráðinn og starfaði í umboði ráðherra og jafnlengi og viðkomandi ráðherra situr? Það væru ekki nein þokukennd skil milli embættisins og þessara pólitísku aðila, ráðherraritarans eða hvað hann heitir og ráðherrans sjálfs, og þeir gæfu sín fyrirmæli eftir því sem þeir skipta með sér verkum þar og síðan væri það embættismannanna að vinna að framkvæmd þeirra undir verkstjórn embættismanns.
Á það legg ég áherslu að auðvitað hljótum við að gera þá kröfu að embættisverk eða undirskriftir á ráðherraákvörðunum séu framkvæmdar af ráðherra eða hans fulltrúa, hvað sem hann heitir, og embættismanni, en það sé ekki hægt að láta ákvarðanir út ganga sem eru undirritaðar af tveimur pólitískum aðilum í viðkomandi ráðuneyti. Ég veit satt að segja ekki alveg hvort það er skýrt í þessum mjög svo þokukennda texta 8. gr. hvort þeir gætu tekið sig til, ráðherrann og aðstoðarráðherrann, og afgreitt mál út úr sínu ráðuneyti með eigin undirskriftum og embættismenn kæmu þar hvergi nærri. Það held ég að sé ekki farsælt að tefla á það tæpa vað. Við vitum að embættismenn undirrita í umboði ráðherra og samkvæmt hans vilja, en þeir hafa þó alltént möguleikann á að ræða við hið pólitíska vald um þann gjörning sem verið er að framkvæma hverju sinni. Og hvernig er það með þessar blessaðar hornrekur, ráðuneytisstjórana, sem er verið að setja upp þarna? Við fáum væntanlega útlistanir frá hæstv. forsrh. hér á eftir hvernig þeirra stöðu á að vera háttað samkvæmt ákvæðum þessa frv. Ja, ég öfunda þá ekkert að sitja úti í horni eftir að ráðherraritarinn er farinn að ráðskast með það starfslið sem þeir hafa verið settir yfir.
En svona geta hlutirnir þróast í ríkisstj. með tíu sundurþykka ráðherra. Við höfum orðið vitni að ýmsu á þeim bæ á liðnum árum og í vaxandi mæli á síðustu vikum og mánuðum þannig að það er ekki að undra þó að slíkt óbermi komi fram sem tillaga forsrh. Íslands sem frv. til laga um Stjórnarráð Íslands.
Um önnur atriði sem hér er vitnað til fylgir yfirleitt í athugasemdum um einstakar greinar að þar sé í rauninni verið að lögfesta það sem þegar sé orðin hefð og það sé verið að kveða ótvírætt á um valdsvið einstaks ráðherra. Það getur verið allt á sínum stað. Og þessi spurning um hið fjölskipaða stjórnvald sem oft hefur verið rætt um. T.d. gilda í Svíþjóð verulega aðrir hættir en hér á Íslandi eins og mál hafa þróast hér innan ríkisstjórna. Það er æskilegt að ábyrgð hvers ráðherra sé sem ljósust og þeir þurfi að standa reikningsskil sinna gjörða og þá fyrir dómstólum ef talið er að þeir hafi farið út fyrir verksvið sitt, eins og stundum heyrist. En hitt á að vera jafnljóst að í landi sem býr við samsteypustjórnir, hefur gert það að jafnaði í sögu okkar lýðveldis, er mjög eðlilegt að í stjórnarsáttmála sé kveðið á um þau atriði og þau bundin fastmælum sem ríkisstjórnin ætlar að framfylgja og þeir aðilar sem standa saman að ríkisstjórn hverju sinni telja eðlilegt að binda í sínum sáttmála, slá varnagla. Slíkt hlýtur auðvitað að standa eftir sem áður og mér sýnist að stundum hefði verið æskilegt að ganga betur frá hlutum í þeim efnum við stjórnarmyndun til að koma í veg fyrir mikinn ásteyting þegar út í stjórnarsamstarf er komið. Þá hlýtur að mega til þess ætlast að hver ráðherra taki mið af því sem um er samið við stjórnarmyndun.
Það fór ekki mikið fyrir þeim efnum í sáttmála þeirrar ríkisstjórnar sem mynduð var 26. maí 1983 og enn situr. Að vísu hét það svo að það væri endurnýjaður sáttmáli hennar að ári liðnu, en það hefur nú fennt í þau sporin, held ég, enda sést það á stjórnarathöfnum og athöfnum einstakra ráðherra að samhljómurinn er ekki ýkja mikill sem frá þessari ríkisstjórn kemur. Hún var í upphafi sammála um eitt og fyrst og fremst eitt, og því hefur hún fylgt dyggilega eftir, að keyra niður kjör þorra launamanna í landinu. Það var hennar ætlunarverk og hugsjónamál og um það hefur verið samstaða en fátt annað.
Herra forseti. Þó ástæða gæti verið að ræða einstaka þætti sem hér koma fram betur og ítarlegar af minni hálfu get ég látið staðar numið, en vil þó aðeins undir lokin vitna til þess sem segir í upphafi athugasemda með lagafrv. um markmiðið með starfi þeirrar nefndar sem hafði þetta mál með höndum í umboði ríkisstj., með leyfi forseta:
„Í skipunarbréfi nefndarinnar sagði að markmið slíkra stjórnkerfisbreytinga væri að einfalda opinbera stjórnsýslu, bæta hagstjórn og samræma ákvarðanir í opinberri fjárfestingu, draga úr ríkisumsvifum og efla eftirlit löggjafarvalds með framkvæmdavaldinu.“
Það var nú ekkert minna markmiðið með þessu starfi. Og hvað hefur síðan komið út úr starfinu? Það er sagan um fjallið og músina enn einu sinni sem þar er ljóslifandi á ferðinni.