03.02.1986
Neðri deild: 45. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 2293 í B-deild Alþingistíðinda. (1926)
196. mál, Stjórnarráð Íslands
Jón Baldvin Hannibalsson:
Herra forseti. Ég mun ekki flytja langt mál né ítarlegt, enda sé ég ekki að þetta litla frv. gefi tilefni til þess. Eins og hv. fyrri ræðumaður minnist ég þess að ég var af mínum þingflokki sumarið 1984 kvaddur til tveggja viðræðufunda við þá hina miklu nefnd sem þá hafði í smíðum nýtt frv. til laga um Stjórnarráð Íslands. Erindi mitt hingað upp í ræðustólinn er fyrst og fremst að spyrjast fyrir um það hjá hæstv. forsrh. hvað varð raunverulega af þessum tillögum þessarar ágætu nefndar því að ef mig ekki misminnir þeim mun hrapallegar voru þær tillögur þó á allt annan veg og miklum mun ítarlegri en hér liggur fyrir, en í athugasemdum segir hér þó aðeins, með leyfi forseta:
„Nefndin hefur samið drög að frv. þessu, en þeim hefur síðan verið breytt í nokkrum atriðum í meðförum ríkisstjórnarinnar.“
Miðað við þau gögn sem þessi nefnd lagði fram og rædd voru á samráðsfundum hafa breytingarnar orðið meira en litlar því eiginlega allt sem bitastætt var úr þeim tillögum og þeim hugmyndum er horfið og meðan það er ekki upplýst hvað varð af þessum hugmyndum og þessum tillögum hlýtur maður að ætla að það sé vegna þess að uppi sé slíkur pólitískur ágreiningur innan stjórnarflokkanna að þeir hafi ekki getað náð samkomulagi um aðalatriðin.
Aðalatriði varðandi tillögugerð um nýskipan Stjórnarráðs Íslands hlýtur að varða t.d. skipan ráðuneyta, verkaskiptingu milli ráðuneyta, og þar voru uppi margar athyglisverðar hugmyndir og miklar umræður um þær. Í 4. gr. hér, Il. kafla, eru hins vegar nánast engar breytingar fram settar heldur skal allt vera óbreytt. Við spurningum eins og þeim hvort viðunandi sé í framtíðarskipan stjórnarráðs að heilum viðamiklum málaflokkum, svo sem eins og t.d. landbúnaðarmálum, sé stjórnað úti í bæ, fást engin svör lengur. Spurninga sem hv. fyrri ræðumaður vék að, 5. þm. Austurl., þ.e. um veigamikla endurskipulagningu stjórnarráðs með því að stofna til sérstaks atvinnumála- og efnahagsmálaráðuneytis, sem voru uppi ákveðnar hugmyndir um í tillögum nefndarinnar, sér hér hvergi stað.
Stundum er að því vikið að fjmrn. í núverandi skipan stjórnarráðsins sé eins konar yfirráðuneyti. Það hefur að sjálfsögðu þýðingarmiklu hlutverki að gegna, en það stýrir ríkisbúskapnum sjálfum. Hins vegar er hér í reynd ekkert raunverulegt efnahags- eða atvinnumálaráðuneyti, þ.e. ekkert atvinnumálaráðuneyti sem mótar atvinnustefnu eða auðlindanýtingarstefnu, og reyndar er því svo fyrir komið að það er hlutverk forsrh. fyrst og fremst innan ráðherrahópsins að vera ábyrgur fyrir mótun almennrar efnahagsstefnu.
Ég fyrir mitt leyti lýsi stuðningi við þau sjónarmið, sem fram komu í máli hv. 5. þm. Austurl., að það sé æskilegt að sameina málefni atvinnuveganna í eitt atvinnuvega- eða „wirtschafts„ráðuneyti þar sem atvinnustefnan í heild, áætlunargerð, auðlindanýting, væri á einni hendi, en síðan væru undirdeildir fyrir hvern málaflokk eins og landbúnað, iðnað, sjávarútveg, verslun og þá kannske hugsanlega með aðstoðarráðherrum fyrir hvern þeirra.
Það sem í raun er sett fram í þessu frv. er kannske þrennt. Það er hið umdeilda ákvæði um hinn pólitíska aðstoðarráðherra eða ráðherraritara. Það er í annan stað sú tilhögun að í hverju ráðuneyti verði sérstök deild eða starfsmaður sem verði ábyrg fyrir undirbúningi fjárlaga gagnvart fjmrn. og annist samskiptin við það. Og í þriðja lagi er það sem hér segir um ráðningartíma og endurnýjun á ráðningartíma embættismanna í ráðuneytum með 12-18 ára ráðningartíma. Þetta er rýr eftirtekja eftir mikið nefndarstarf, sér í lagi þegar það litla sem það er er umdeilanlegt. Það sýnist mér t.d. ákvæðið um ráðherraritara tvímælalaust vera.
Í athugasemdum um einstakar greinar segir um það atriði í 8. gr., með leyfi forseta:
„Í núgildandi stjórnarráðslögum er réttarstaða svonefndra aðstoðarmanna ráðherra mjög óljós. Hér er aftur á móti kveðið skýrt á um réttarstöðu ráðherraritara að öðru leyti en því er lýtur að sambandi hans við hlutaðeigandi ráðuneytisstjóra. Er hann ýmist hliðsettur ráðuneytisstjóra eða yfirmaður hans ef ráðherra mælir svo fyrir um.“
Þetta heitir á máli flutningsmanna að taka af tvímæli um eða skýra réttarstöðu aðstoðarmanns ráðherra. Ég held að það sé þvert á móti. Ég tek undir athugasemdir hv. 5. þm. Austurl. um það. Ég held að þessi klásúla sé með öllu óviðunandi vegna þess að hún vekur upp fleiri spurningar en hún svarar og vekur upp efasemdir um verkaskiptingu og valdsvið sem verður að leysa með öðrum hætti en hér er kveðið á um.
Herra forseti. Ég sé ekki ástæðu til að hafa um þetta fleiri orð. Ég ætla ekki að nota tækifærið til að lýsa í löngu máli þeim tillögum sem við kynnum.að hafa uppi um endurskipulagningu stjórnarráðsins. Hér eru ekki gerðar tillögur um neinar markverðar breytingar. Ég vil fyrst og fremst árétta að lokum að ég lýsi eftir því hvað varð af tillögum nefndarinnar sem margar hverjar voru athyglisverðar og á allt annan veg en er lýst í þessu frv. Hver er skýringin á því að þeim hefur verið hafnað? Er það eingöngu vegna þess að stjórnarliðar hafa ekki getað náð samkomulagi um það? Er m.ö.o. samkomulag um að flytja hér tillögur um smávægilegar breytingar? Það væri ekki síður, ef þetta er niðurstaðan, fróðlegt að heyra með hvaða rökum þeim tillögum öllum var vísað á bug.