04.02.1986
Sameinað þing: 40. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 2302 í B-deild Alþingistíðinda. (1933)
183. mál, eiginfjárstaða ríkisbankanna
Fyrirspyrjandi (Jóhanna Sigurðardóttir):
Herra forseti. Ég þakka hæstv. viðskrh. fyrir svör hans. Hann las upp mikinn fjölda af tölum sem erfitt var að ná niður á einu augabragði. Þó er ljóst af svörum hæstv. ráðh. að Alþingi fær gleggri upplýsingar en það hefur fengið hingað til um þessi mál, en alls ekki fullnægjandi.
Ef ég hef skilið svör ráðherrans rétt las hann upp hér heildarfyrirgreiðslur til fimm stærstu lántakenda en ekki, eins og um er beðið í fsp., heildarfyrirgreiðslur til hvers um sig af fimm stærstu lántakendum. Ég held að málið snúist nefnilega miklu frekar um það að hægt sé að fá slíkar upplýsingar vegna þess að það er mjög mikilvægt að lánastofnanir, bankar og sparisjóðir, haldi sig innan viss ramma að því er varðar lánveitingar til einstakra lántakenda til þess að stofna ekki hag og rekstri bankans í hættu. Þó er ljóst að hér er um töluvert hátt hlutfall að ræða ef það er rétt að hér hafi verið teknar heildarfyrirgreiðslur fimm stærstu lántakenda saman í eina tölu og ef ég hef náð þessu rétt er það allt upp í 125%. (Samgrh.: 145.) 145. Nú, ekki bætir það málið. Ég verð líka að lýsa furðu minni á því að bankaeftirlitið hafi ekki upplýsingar um stöðu trygginga og heildarfyrirgreiðslu á árunum 1983 og 1984 til fimm stærstu lántakendanna.
Ég vil spyrja hæstv. viðskrh. hvort hann telji ekki í ljósi þeirra upplýsinga sem hafa komið fram ástæðu til þess að setja inn í lög um viðskiptabankana ákvæði sem setji ákveðið þak á heildarfyrirgreiðslu sem bankar geta veitt einum viðskiptamanni. Ég minni á að slíkt ákvæði er fyrir hendi hjá okkar nágrannaþjóðum og ég tel mjög brýnt að slík trygging sé líka fyrir hendi hjá okkur. Væri slíkt ákvæði fyrir hendi væri t.a.m. sú fsp. sem ég hef borið fram kannske óþörf. Því vil ég spyrja hæstv. ráðh. að þessu. Einnig hvert álit hans sé á því hlutfalli, sem hér kemur fram og hann hefur hér lýst, á heildarfyrirgreiðslum til þessara fimm stærstu lántakenda, hvort hann telji ekki ástæðu til þess í ljósi þeirra upplýsinga sem hann ber hér fram - mér sýnist að þetta sé allhátt hlutfall - að þetta mál verði athugað nánar.