04.02.1986
Sameinað þing: 40. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 2306 í B-deild Alþingistíðinda. (1941)
131. mál, Hollustuvernd ríkisins
Fyrirspyrjandi (Svavar Gestsson):
Herra forseti. Ég hef leyft mér á þskj. 144 að bera fram svofellda fsp. til hæstv. heilbrrh. um Hollustuvernd ríkisins:
„Hvenær hyggst heilbrrh. ljúka endurskoðun laga um hollustuhætti og hollustuvernd?"
Í lögunum er ákvæði um að þau skuli endurskoða innan tiltekins tíma þegar reynsla er fengin af lögunum, og það má segja að hæstv. núv. ríkisstj. hafi í raun og veru þegar beitt sér fyrir nokkurri endurskoðun á þessum lögum þar sem Geislavarnir ríkisins hafa verið teknar út úr Hollustuverndinni og gerðar að sjálfstæðri ríkisstofnun á ný. Ég tel fyrir mitt leyti að það hafi í rauninni orkað mjög tvímælis að það væri rétt af ríkisstj. að búa þannig til eina sjálfstæða stofnun til viðbótar við aðrar út úr Hollustuverndinni en með lögum um hollustuhætti og hollustuvernd var stigið skref í þá átt að sameina nokkrar stofnanir og aðila sem unnið höfðu að heilbrigðiseftirliti hér á landi.
Ég er þeirrar skoðunar að það sé eitt brýnasta verkefni þingsins að taka á vinnubrögðum margra ríkisstofnana sem eru iðulega að vinna sömu og svipuð verk. Þar er um að ræða tvíverknað og margverknað sem kostar ríkið og þjóðina umtalsverða fjármuni. Ég taldi þess vegna að með lögunum um Hollustuvernd ríkisins væri stigið skref í áttina til virkara heilbrigðiseftirlits og hagkvæmara heldur en verið hafði. Ég vil hins vegar inna eftir því hvaða hugmyndir núv. hæstv. heilbrrh. hefur um endurskoðun laganna um hollustuhætti og hollustuvernd sem á nú að fara að ljúka. Ætlar ráðherrann að leggja hér fyrir þingið frv. um endurskoðun þessara laga eða hvaða hugmyndir hefur ríkisstj. og þingflokkar stjórnarliðsins í þessu efni? Þess vegna er fsp. borin fram á þskj. 144, herra forseti.