04.02.1986
Sameinað þing: 40. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 2307 í B-deild Alþingistíðinda. (1943)

227. mál, skipun formanns stjórnar Ferðamálaráðs

Fyrirspyrjandi (Steingrímur J. Sigfússon):

Herra forseti. Ég hef leyft mér að leggja fyrir hæstv. samgrh. nokkrar spurningar varðandi stjórn Ferðamálasjóðs.

Eins og þingheimi mun kunnugt voru samþykkt hér á s.l. vori ný lög um skipan ferðamála í landinu og í þeim lögum var kveðið á um breytta skipan á stjórn Ferðamálasjóðs. Það mætti ýmislegt segja um þau örlög sem þegar hafa orðið hjá þessum lögum. Hæstv. ríkisstj. beið ekki lengi með að grípa til ýmissa þeirra aðgerða sem þegar hafa brotið eða skert þessi nýgildandi lög um skipan ferðamála. Má þar nefna t.d. meðferðina á tekjum Ferðamálasjóðs eða ferðamálaráðs, en í þessum nýsettu lögum voru ákvæði um það hvernig skila skyldi tekjum til Ferðamálasjóðs af söluhagnaði Fríhafnar og þau lög voru ekki margra mánaða, jafnvel ekki nema nokkurra vikna, þegar tekið var til við að skerða þau ákvæði. Einnig mætti nefna skattagleði hæstv. fjmrh. sem brýtur algjörlega í bága við þá stefnu sem verið var að marka með setningu nýrra laga um skipan ferðamála.

En eitt er það enn sem bæst hefur við og það er það að Ferðamálasjóði hefur ekki verið sett full stjórn um mánaða skeið vegna þess, að mér er tjáð, að hæstv. samgrh. hafi dregið það mjög að skipa fulltrúa sinn og formann sjóðsstjórnar. Þetta hefur valdið óánægju og vandræðum hjá ýmsum aðilum sem starfa að ferðamálum sem ekki hafa getað fengið nein svör hjá þessari stofnun um afgreiðslu sinna mála. Um það er mér kunnugt og þess vegna, þegar þing kom hér saman að nýju og enn hafði hæstv. ráðherra ekki skipað þennan nefnda formann, lagði ég fram eftirfarandi spurningar, með leyfi herra forseta:

Í fyrsta lagi: „Hvers vegna hefur ráðherra ekki skipað formann stjórnar Ferðamálasjóðs eins og honum ber skv. lögum nr. 79/1985, um skipulag ferðamála?"

Ég spurði í öðru lagi hvort þess sé að vænta að samgrh. muni skipa hann á næstunni, enn fremur, í þriðja lagi, hversu margar umsóknir bíði nú afgreiðslu hjá Ferðamálasjóði og hvort afgreiðsla þeirra hafi tafist.

Ég tel það í sjálfu sér auðséð mál að hún hefur gert það, og jafnvel þó að þær hefðu ekki allar verið afgreiddar hafa engin svör fengist um væntanleg afdrif þeirra umsókna sem beðið hafa afgreiðslu hjá sjóðnum um mánaða skeið. Allir sem eitthvað þekkja til ferðamannaþjónustu vita að það kemur sér mjög illa fyrir þá sem standa í þeim atvinnurekstri að geta ekki skipulagt sína vertíð marga mánuði fram í tímann, m.a. með tilliti til auglýsinga og útgáfu kynningarbæklinga.