04.02.1986
Sameinað þing: 41. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 2309 í B-deild Alþingistíðinda. (1947)
111. mál, raforkuverð til álversins í Straumsvík
Iðnrh. (Albert Guðmundsson):
Herra forseti. Á þskj. 122 liggur fyrir beiðni frá tíu þm. Alþb. um skýrslu frá iðnrh. um raforkuverð til álversins í Straumsvík. Skýrsla mín og svar er á þskj. 434 og er svohljóðandi:
ÍSAL greiddi 12,5 mill á kwst. fyrir raforku frá Landsvirkjun allt árið 1985, en það er hið samningsbundna lágmarksverð.
Þegar samið var um 3. viðaukann við rafmagnssamning Landsvirkjunar og Íslenska álfélagsins hf. á árinu 1984 var gerð spá um raforkuverð til ÍSALs í samræmi við fyrirliggjandi álverðsspár frá tveimur aðilum, Chase Econometrics of Research Statistics í Bandaríkjunum og James King í Bretlandi. Varð niðurstaðan sú að gera mætti ráð fyrir að meðalverðið til ÍSALs 1985 yrði 13,5 mill hver kwst.
Varðandi lækkunina á raungildi raforkuverðsins á árinu 1985 vegna lækkunar bandaríkjadollars gagnvart öðrum gjaldmiðlum og vegna alþjóðlegrar verðbólgu leitaði ráðuneytið til Seðlabankans og er svar bankans birt í sérstakri töflu með þessari skýrslu.
Sé miðað við tímabilið nóvember til október hefur bandaríkjadollar lækkað sem hér segir: Vegið meðalgengi um 6,5%, gagnvart SDR 5,9%.
Á sama tíma hefur framleiðslukostnaður í OECD-löndum hækkað um 3,6%. Sé miðað við þessar forsendur er heildarlækkun á verðgildi dollarans vegna gengisbreytinga og verðbólgu rétt um 10% á tímabilinu.
Þá er spurt um horfur á raforkuverði 1986. Landsvirkjun endurskoðar áætlanir um orkuverð til ÍSALs í samræmi við nýjustu spár um álverð eftir því sem þær berast fyrirtækinu. Miðað við nýjustu spár sem Landsvirkjun hefur nú undir höndum um þróun álverðs er meðalverðið til ÍSALs varlega áætlað 12,55 mill pr. klst. á árinu 1986. Ráðuneytið hefur sjálft ekki lagt mat á þessar spár.
Ég sé ekki ástæðu til að lesa þessar töflur upp, en hér fylgir tafla um vegið meðalgengi bandaríkjadollars miðað við nóvember 1984, þá reiknað sem 100, og gengi bandaríkjadollars gagnvart SDR á sama tíma reiknað á sama hátt og framfærslukostnaður í OECD-löndum reiknaður á sama hátt.
Ég sé ekki ástæðu til að hafa þetta svar lengra nema sérstakt tilefni gefist til.