04.02.1986
Sameinað þing: 41. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 2310 í B-deild Alþingistíðinda. (1948)
111. mál, raforkuverð til álversins í Straumsvík
Hjörleifur Guttormsson:
Herra forseti. Ég þakka hæstv. iðnrh. fyrir þá skýrslu sem hann hefur hér kynnt og útbýtt var fyrir nokkru í hv. Sþ. Með tilliti til þess að mál þetta var til meðferðar á sínum tíma, staðfesting samninga um 3. viðauka rafmagnssamnings við Alusuisse vegna álversins í Straumsvík, er annar maður gegndi starfi iðnrh., þ.e. hv. núv. menntmrh., þætti mér æskilegt ef hæstv. menntmrh. gæti einnig verið viðstaddur þessa umræðu þar sem ég hlýt að víkja nokkuð að því sem haldið var fram af honum og öðrum talsmönnum þessa máls fyrir tveimur árum eða svo. Það er komið á annað ár síðan samningar voru gerðir. Herra forseti. Ef hæstv. menntmrh. er í húsinu þætti mér gott að hann yrði látinn vita um þessa ósk mína. (Forseti: Það verða gerðar ráðstafanir til að kynna hæstv. menntmrh. óskir hv. ræðumanns.)
Þær upplýsingar sem hér koma fram frá hæstv. iðnrh. eru vissulega fróðlegar þegar litið er til þess sem haldið var fram af talsmönnum ríkisstj., ráðherra, samningamönnum, í sambandi við samningana um 3. viðauka vegna álversins í Straumsvík í nóvembermánuði 1984, en þá voru þeir til umræðu hér á þingi. Það er ljóst að þær forsendur sem þar voru lagðar til grundvallar við gerð rafmagnssamnings Landsvirkjunar og Alusuisse hafa engan veginn staðist. Röksemdir talsmanna þessa samnings við Alusuisse hafa í rauninni hrunið eða brostið, a.m.k. að verulegu leyti, og reynst markleysa margt af því sem þá var haldið fram. Þar komu við sögu hæstv. þáv. iðnrh. Sverrir Hermannsson og auk hans hér á þingi hv. 2. þm. Reykn. Gunnar G. Schram sem sæti átti í samninganefndinni og enn á sæti að því ég best veit í viðræðunefnd um stóriðju á vegum ríkisstj., fyrir svo utan aðra samningamenn sem eru utan þings og forstjóra Landsvirkjunar. Þau svör sem hæstv. iðnrh. hefur reitt hér fram um þróun raforkuverðsins á þeim tíma sem liðinn er og líkurnar varðandi yfirstandandi ár að mati Landsvirkjunar leiða m.a. eftirfarandi í ljós:
Í fyrsta lagi að raforkuverðið til ÍSALs var í lágmarki miðað við samning allt árið 1985, þ.e. 12,5 mill á kwst. í stað 13,8 mill á kwst. sem spáð var þegar rafmagnssamningurinn var til umræðu hér á Alþingi og gert var ráð fyrir í rekstraráætlunum Landsvirkjunar í ársbyrjun 1985 fyrir það ár. Tekjutap Landsvirkjunar á síðasta ári, 1985, vegna þessarar misvísunar, sem þarna kemur fram, hefur orðið mismunandi eftir því hvort miðað er við raunkaup á raforku á árinu eða þá afhendingarskyldu sem á Landsvirkjun hvílir. Landsvirkjun er skuldbundin til að vera reiðubúin að afhenda álverinu í Straumsvík 1360 gwst. á ári, en það keypti á síðasta ári aðeins 1232 gwst. Ef miðað er við full orkukaup, sem Landsvirkjun þarf að gera ráð fyrir að geta staðið undir, er hér um að ræða mismun sem nemur nærri 1,8 millj. bandaríkjadala eða 73,3 millj. ísl. kr. reiknað á vegið meðalgengi dollara á síðasta ári. Sé hins vegar miðað við orkukaupin eins og þau urðu í reynd vegna skerðingar á framleiðslu ÍSALs þá er þessi upphæð nokkru lægri eða 1,6 millj. bandaríkjadala eða 66,5 millj. ísl. kr. Þetta er árið 1985.
Þar við bætist að á þessu sama ári hefur orðið rýrnun á raungildi þeirra tekna sem þarna koma inn til Landsvirkjunar fyrir raforkusölu til álversins vegna þess að lágmarksgjaldið sem greitt var þetta ár er óverðtryggt, er algerlega óverðtryggt, og hefur rýrnað samkvæmt upplýsingum hæstv. ráðh. í skýrslu hans hér um hvorki meira né minna en 10% á síðasta ári. Þessi upphæð svarar til 1,7 millj. bandaríkjadala miðað við full orkukaup ÍSALs frá Landsvirkjun eða um 70 millj. ísl. kr., rétt rúmum 70 millj. ísl. kr. sem verðgildið hefur rýrnað. Og samtals, ef þetta er talið saman, er rýrnunin á þessu miðað við spá og hins vegar það sem út kemur u.þ.b. 140 millj. ísl. kr. á þessu eina ári vegna þess hvernig spárnar brugðust og vegna þess að lágmarksgjaldið er ekki verðtryggt.
Ef litið er til þess sem spáð er á þessu ári samkvæmt skýrslu ráðherra þá gerir Landsvirkjun ráð fyrir því að raforkuverðið verði nánast í botni þetta ár. Þeir eru nokkuð nákvæmir í sínum útreikningum og telja að það verði 0,05 mill á kwst. yfir lágmarkinu að meðaltali yfir árið eða 12,55 mill á kwst. Í þeim gögnum sem lögð voru fram sem fylgiskjöl með 3. viðauka, þegar hann var lagður hér fram í nóvember 1984 af ríkisstjórninni, var spáð að raforkuverðið yrði á árinu 1986 ekki 12,55 mill, heldur 14,8 mill eða þar um bil, sem lesa má út úr töflum sem voru fylgiskjöl með nefndu frv. ríkisstjórnarinnar.
Þessar horfur varðandi næsta ár svara til þess að tekjutap Landsvirkjunar umfram það sem áætlað hafði verið þegar samningurinn var lagður hér fyrir Alþingi nemi rösklega 3,1 millj. bandaríkjadala miðað við fulla kaupskyldu, 1360 gwst. á ári, en það svarar til 140,8 millj. ísl. kr. ef miðað er við meðalgengið 45 kr. fyrir bandaríkjadal. Vissulega er það óvissu háð hver gengisþróun verður en við þennan útreikning hef ég miðað við að þarna yrði um að ræða lækkun á krónu gagnvart dollar sem þessu nemur. Skal ég út af fyrir sig ekki dæma um það, svo mikilli óvissu sem sú þróun er háð. Sé miðað hins vegar við minni kaupskyldu sem í rauninni er ekki eðlilegt í samanburði sem þessum, t.d. 1250 gwst., þá er þarna um að ræða 130 millj. kr. minni tekjur en gert var ráð fyrir þegar samningurinn var lagður fyrir Alþingi.
Þannig liggur það ljóst fyrir að miðað við þessi tvö ár sem við teljum okkur sjá nokkurn veginn hvert stefnir í sambandi við þennan samning og reynsluna af honum, þá munar varðandi raforkukaupin ein og fulla kaupskyldu - eða fulla orkuafhendingu Landsvirkjunar til ÍSALs, sem Landsvirkjun er jú skuldbundin til að geta mætt - þá munar 214 millj. kr. á þessum tveimur árum. Sé miðað við skert kaup eins og ég gat um er talan nokkru lægri eða 196 millj. ísl. kr. Þetta liggur sem sagt nálægt 200 millj. og rösklega það miðað við þær forsendur sem ég hef hér gengið út frá. Þar við bætist síðan þessi rýrnun á rauntekjum, á raunvirði þess sem greitt er, 70 millj. á síðasta ári, og ef það verður álíka á því næsta þá er þarna um mjög háar upphæðir að ræða, hátt í 300 millj. miðað við rýrnun á síðasta ári. Ef svipað gerist á þessu ári þá er komin þarna upphæð sem nemur um 350 millj. kr. sem tekjur Landsvirkjunar af viðskiptum við ISAL eru minni en gert var ráð fyrir þegar samningurinn var lagður fyrir og vegna þess að talsmenn samningsins reyndu jú að halda því fram að þessi raforkusala væri í rauninni verðtryggð. En við, andstæðingar samningsins í stjórnarandstöðu, bentum á það - að sjálfsögðu með gildum rökum þar sem það lá fyrir í samningi - að ramminn sjálfur, sem verðið gat hreyfst innan, var óverðtryggður. Væri raforkuverðið í lágmarki þá var ekki um neina verðtryggingu að ræða. Það er það sem hefur gerst og spáð er einnig af iðnrn. eða Landsvirkjun sem er hér borin fyrir þessum spám fyrir árið í ár. Þetta segir vissulega sína sögu.
En athugum horfurnar áframhaldandi á þessu fimm ára tímabili sem samningurinn er óhreyfanlegur, því að haldið er fram af talsmönnum hans og inni eru ákvæði sem að forminu til gera kleift að taka upp samninginn til endurskoðunar miðað við tilteknar breytingar. Mjög veik endurskoðunarákvæði svo ekki sé meira sagt. Ég lít því aðeins til þess sem reitt var fram í þskj. með þessu frv. sem varð að lögum 30. nóv. 1984. Þá var sem sagt spáin fyrir 1985 13,8 mill á kwst., fyrir 1986 14,8 mill á kwst., fyrir 1987 16 mill á kwst., fyrir 1988 18 mill á kwst. og fyrir 1989 18,5 mill á kwst. eða hámark þess sem samningurinn gerði ráð fyrir.
Ég skal ekki fara að spá fram í tímann varðandi þessi þrjú ár sem taka við á þessu fimm ára tímabili að þessu loknu, en get bent á það að í spádómum sem reiddir voru fram í sambandi við 4. viðauka, sem var til umræðu hér í desembermánuði s.l. í þinginu, þá er af einu spáfyrirtækinu, sem samningamenn okkar byggðu á og miðuðu við, engan veginn gert ráð fyrir svona stöðugri þróun upp á við í álverði, t.d. gert ráð fyrir því að álverð lækki um 17% milli áranna 1987 og 1988. Og enn er engin sú hreyfing á álverði sem getur vakið vonir um að þarna verði sú breyting á varðandi t.d. næsta ár sem spámenn ríkisstj. og talsmenn samningsins frá 1984 gerðu sér vonir um og leyfðu sér að halda fram máli sínu til stuðnings þegar þetta mál var hér til meðferðar í þinginu.
Það er sérstaklega fróðlegt að virða fyrir sér umræðurnar á Alþingi um þetta mál með tilliti til raforkusamningsins hér á þinginu í nóvember 1984. Því var m.a. haldið fram af talsmönnum samningsins, hæstv. ráðh. og hv. samningamanni, 2. þm. Reykn., Gunnari G. Schram, að rafmagnssamningurinn fæli í sér 15 mill sem grunnverð. Þeirri tölu var mjög hampað hér til stuðnings þessum rafmagnssamningi. Við bentum á það andstæðingar þessa samnings að hér væri um firrur einar að ræða. Þessa tölu 15 mill sem grunnverð væri hvergi að finna inni í þessum samningi. Það liggur nú fyrir að það er býsna langt a.m.k. í þetta grunnverð á fyrsta ári þessa samnings og fyrirsjáanlega á öðru ári hans þannig að það nægði varla að reka sig upp í rammann 18,5 á árunum sem þar komu á eftir til þess að ná því út sem meðalverði ef það var það sem menn voru að reyna að halda fram blekkjandi sem einhvers konar grunnverði í þessum rafmagnssamningi.
Ég vil leyfa mér, herra forseti, án þess að fara í langar tilvitnanir í þessar umræður í nóvember, aðeins vitna hér í stuttar glefsur úr löngum ræðum manna um þetta efni, 3. viðaukann og frv. til staðfestingar honum og vitna hér fyrst í örstuttan kafla úr máli mínu við 2. umr. þessa máls í hv. Nd. 28. nóv. 1984 varðandi rafmagns samninginn. En þar sagði ég:
„Að mati Landsvirkjunar, sem byggir á spám ráðgjafa um líklega þróun álverðs, er gert ráð fyrir að samningurinn geti gefið meðalverðið 13,7 mill á kwst. á næstu fimm árum á verðlagi ársins 1984. Allt tal um 15 mill sem eitthvert grunnverð í þessum samningi er gersamlega út í hött.
Varðandi þróun álverðs er til þess að vísa að þar er miðað við ferns konar viðmiðun og samninganefndin hafði fyrir sér spádóma þriggja sérfræðiaðila um þessi efni og bar mikið á milli. Og því má og bæta við að t.d. Chase Econometrics breytti stórlega spásögn sinni um þróun álverðs frá því í febrúar til ágústmánaðar á þessu ári, 1984. Þannig lækkaði það verð, sem þeir sáu fyrir á árinu 1984 og höfðu miðað við, úr að mig minnir 76 sentum á pund niður í tæp 60 eða 59 komma eitthvað sent. Þannig að menn sjá hversu gífurlega þarna munar og færðu einnig til lækkunar líklega verðþróun á ári 1985 og 1986.“
„Á heildina litið er rafmagnssamningurinn algerlega ófullnægjandi fyrir Landsvirkjun," sagði ég við þessa umræðu sem niðurstöðu úr mati á þessum samningi. En það var annað hljóð í hæstv. iðnrh. um þetta efni. Hann sagði, þegar hann mælti fyrir þessu máli í Ed. Alþingis 8. nóvember 1984, eftirfarandi í upphafi síns máls um rafmagnssamninginn, með leyfi forseta:
„Um rafmagnssamninginn vil ég segja að útlistun á honum og umsögn um hann er að finna í fskj. frá forstjóra og aðstoðarforstjóra Landsvirkjunar. Á þessi atriði vil ég drepa:" Og það er aðeins a-liður sem ég vitna hér til úr máli hæstv. ráðh.:
„Orkuverð verður í framtíðinni breytilegt þannig að grunnverð verður 15 mill á kwst. Verðið breytist í samræmi við vísitölu álverðs, þó þannig að orkuverðið verður aldrei undir 12,5 mill á kwst. og ekki yfir 18,5 mill á kwst. Vísitalan er reiknuð út frá hreyfingum fjögurra álverða, sem nákvæmlega eru skilgreind í rafmagnssamningnum.“
Hæstv. ráðh. sagði við 3. umr. um þetta efni:
„En nú höfum við samið um grunnverðið 15 mill og standa vonir til þess að ná upp undir 18,5.“
Þetta sagði hæstv. þáv. iðnrh., nú menntmrh., í útvarpsumræðum, í útvarpi til alþjóðar. Og hann sagði í Ed. þingsins við 1. umr. um þetta efni: „Við eigum nú og eins og sérfræðingar segja, sem eru jafnvel enn betur að sér í þessum málum en hv. 11. þm. Reykv.," - sem hæstv. ráðh. var að svara með þessum orðum - „að séu líkur á að muni verða yfir 17 mill að meðaltali á samningstímabilinu.“ Að raforkuverðið verði yfir 17 mill að meðaltali á samningstímabilinu. Ég held að hæstv. núv. menntmrh. hljóti að verða svolítið hugsi þegar hann horfir til baka og lætur sér líða um hug þau orð sem hann mælti í Ed. í nóvember, og reyndar Nd., í umræðum um þetta mál á þeim tíma.
Ætli hv. 2. þm. Reykn. sé ekki í þingsal? Ég hélt að hann ætlaði að vera viðstaddur þessa umræðu, hann var hér við upphaf hennar. Það væri vel til fundið, virðulegi forseti, að gera honum aðvart. Mér þætti eðlilegt að þm. ómakaði sig til að vera hér viðstaddur umræðu um þetta mál, svo skylt sem honum er það. Ég vænti þess að hv. þm. komi von bráðar í þingsal. Á meðan ég hinkra hér við eftir hv. 2. þm. Reykn. vil ég nefna það að verðið á áli nú um þessar mundir, eða um miðjan janúar, var rétt um 1200 dollarar á tonn eða 54,5 sent á pund. En það þarf að hækka um nálægt 4 sent til viðbótar til þess að raforkuverð lyftist yfir botninn 12,5 mill á kwst., 58 sent fyrir pund á kwst. gefa 12,59 mill samkvæmt upplýsingum sem ég hef fengið þar um, þannig að það skortir nokkuð á það að þessi botn raforkuverðsins lyftist miðað við samninginn.
Ég ætlaði að vitna aðeins til fáeinna orða hv. 2. þm. Reykn. varðandi raforkuverðið og það eru ummæli hans í Nd. Alþingis 28. nóvember 1984, með leyfi forseta:
„Þá kem ég enn að öðrum þætti þessa máls. Við höfum hér bil, orkuverðið hleypur á 12,5 til 18,5 mill. Ég held að það hafi komið mjög glögglega í ljós í samningaviðræðunum við Alusuisse að um tvær leiðir var að fara. Annaðhvort að hafa slíkt bil í verðmynduninni eða semja um eitt ákveðið verð með einhvers konar verðtryggingu. Það lá ljóst fyrir að sú tala hefði verið við neðri mörkin, nálægt 12,5. Það hefði verið mjög ólíklegt ef öllu hærri tala en 12,5-13 mill hefði út úr því fengist. Sá kostur var þess vegna tekinn að hafa bil hvað verðið snertir allt upp í 18,5 mill og verðtryggja það með tengslum við álverð.“
Og í framhaldi af þessu segir þm.:
„Almennt séð og til að gera langa sögu stutta er það niðurstaða Landsvirkjunar í ljósi þessara sérfræðiálita, að álverðið geti sveiflast milli 54 senta og 93 senta á pundið á tímabilinu 1985-1989. En það meðalverð sem orkuverð til ÍSALs miðast við samkvæmt nýjum samningum sveiflast að líkindum minna. Áætlunin í samræmi við spár ofannefndra sérfræðinga er þá sú, að mati Landsvirkjunar, að álverð muni sveiflast um 76 sent á pundið," - núna er það 54,5 sent - og verður þá orkuverð á þessu tímabili 15 mill á verðlagi ársins 1984, þegar gjaldeyrismarkaðir hafa náð því jafnvægi sem spáð er. Verði sú tala, burtséð frá allra næstu mánuðum, að teljast langlíklegust sem langtímameðalverð á áli að mati Landsvirkjunar og þeirra ráðgjafarfyrirtækja sem hér eiga hlut að máli.“
Stuttu síðar segir þm.: „Það er sem sagt gert ráð fyrir því að verðið verði almennt á tímabilinu um 15 mill.“ Læt ég þetta nægja sem tilvitnun í mál manna um þessi efni og væri þó af mörgu að taka úr umræðunni hér á Alþingi um álsamninginn sem þá lá fyrir í nóvember 1984.
Við sjáum af þessu hversu víðs fjarri veruleikanum talsmenn þessa samnings hafa verið og hversu rangar forsendur voru lagðar hér fyrir Alþingi í þessum efnum og ekkert hlustað á aðvörunarorð okkar stjórnarandstæðinga um það að hér væri farið offari í sambandi við líklega verðþróun á áli. Fyrir nú utan allar talnablekkingarnar sem virtust vera nauðsynlegar í sambandi við þennan slæma málstað sem þarna var talað fyrir, hvort sem það var nú til þess að blekkja alþjóð eða þingbræður viðkomandi hv. þm. og hæstv. ráðh. til þess að tryggja þessum samningi brautargengi og meirihlutafylgi hér á Alþingi.
Ég vil undir lok máls míns um þetta efni, virðulegi forseti, vekja alveg sérstaka athygli á því hvernig þarna var haldið á máli, enn einu sinni, í sambandi við samningsgerð við Alusuisse. Eins og gerðist í lok síðasta árs þegar v. viðauki, sem lögfestur var í desember s.l. og varðaði einkum skattkerfi gagnvart ÍSAL, lá hér fyrir til umræðu, þá var það - eins og síðar og eins og fyrr - að talsmenn ríkisstjórnarinnar, þeirra flokka sem nú sitja í ríkisstjórn og hafa lagt fyrir marga af þeim viðaukum við upphaflegan álsamning sem orðið hafa að lögum, 1975 og síðan í tvígang í tíð þessarar ríkisstj., reyna að styðja n,ál með þeim hætti að að skömmum tíma liðnum liggur það fyrir að um staðlausa stafi hefur verið að ræða. Að reynslan og staðhæfingarnar stangast á í mjög veigamiklum atriðum. Þessum ágætu mönnum og samningamönnum ríkistjórna á þessu tímabili virðist gersamlega fyrirmunað að læra nokkuð af reynslunni, að gæta sín ögn í sambandi við svo afdrifaríka samninga sem þarna er um að ræða við þetta stóra fyrirtæki og þá miklu hagsmuni sem þar er að ræða. Þeir koma hér æ ofan í æ inn á Alþingi með málflutning sem er hruninn í ljósi reynslunnar skömmu síðar.
Ég ætla ekki hér að fara að rekja reynsluna af upphaflega álsamningnum, af 3. viðauka, af 2. viðauka við álsamninginn 1975. Það liggur allt saman fyrir. Þar var ekki breytt hlutaskiptunum við Alusuisse í nokkru. Þegar litið var yfir það tímabil sjö árum síðar þá var niðurstaðan sú að þeir höfðu hagnast verulega á breytingunni á heildina litið. Það er þegar að koma í ljós í sambandi við þennan 3. viðauka og það verður fróðlegt að líta til baka varðandi 4. viðauka og skatttekjurnar af álverinu og þann 4. viðauka sem lögfestur var hér í desember s.l. af stuðningsliði ríkisstj. hér á Alþingi. Það væri vissulega efni í sérstaka úttekt, sem mér sýnist að sé síst vanþörf á að gera, hver reynsla hefur orðið af þessum endurteknu samningum við Alusuisse og hvernig forsendur og rökstuðningur íslenskra samningamanna hefur að skömmum tíma liðnum verið dæmdur í ljósi reynslunnar, hefur hrunið í veigamiklum atriðum í ljósi fenginnar reynslu.
Ég er að draga þetta hér fram, og sá ástæðu til þess að óska eftir skýrslu frá hæstv. iðnrh., til þess að reyna að opna augu manna, hvar í flokki sem þeir eru, í sambandi við þessi efni. Því enn eru íslenskir samningamenn og sumpart þeir sömu og áttu hlut að þessum málum að leitast við að semja við erlenda aðila og undirbúa samninga við erlenda aðila um stór hagsmunaatriði sem varða Ísland. Það er fyllsta ástæða til þess að vara þessa aðila við og spyrja þá: Ætla þeir enn og aftur að láta leika á sig, láta erlenda samningamenn vefja sér um fingur sér? Ég veit að það virðist vera býsna þykk höfuðskelin á þeim sem þarna hafa staðið í samningum, en ég el þó þá von í brjósti að mönnum sé ekki með öllu fyrirmunað að læra eitthvað af reynslunni og gæta sín í ljósi hennar, einnig í sambandi við þennan samning sem hér er verið að meta í ljósi þeirra upplýsinga sem hæstv. iðnrh. hefur komið fram með.
Ég vil aðeins nefna, herra forseti, áður en ég lýk máli mínu að hér í þinginu kom nýlega fram skriflegt svar við fsp. frá hv. 5. þm. Reykn. varðandi einn þátt í starfsemi álversins í Straumsvík. Í þessu skriflega svari hæstv. iðnrh. á þskj. 233 koma vissulega fram fróðlegar tölur í sambandi við þróun þeirra mála innan álversins. Það er oft verið að vitna til þess að það sé fleira en tekjur af raforkusölu og fleira en skatttekjur sem við höfum upp úr þessum viðskiptum. En þegar litið er á þróun launatekna, reiknað í dollurum, á undanförnum árum, t.d. á starfstíma þessarar ríkisstj., þá er það ekkert falleg mynd sem blasir þar við. Ég nefni hér aðeins að miðað við árin 1982 annars vegar og 1984 hins vegar, þ.e. á síðasta starfsári fyrri ríkisstjórnar og síðasta ári sem upplýsingar eru fyrir um þetta, því ég hef ekki tölur og þær liggja ekki fyrir í þessu svari varðandi árið 1985, þá hafa launagreiðslur álversins í Straumsvík til starfsmanna sinna lækkað um 6 millj. bandaríkjadala á milli þessara ára. Hvert var nú hagræðið af raforkusölunni sem svo mjög var básúnað og reiknað hér upp í milljörðum? Hver var hagurinn? Við skulum láta tölu ársins 1985 tala. Það var 7,4 millj. dala frá samningnum eins og málin stóðu, 6,5 mill á kwst. áður en 3. viðauki var gerður. Breytingin nemur 7,4 millj. dala. Alusuisse hefur sparað álíka upphæð í launagreiðslum, það munar þarna 1,4 millj. dala í tölum, sem þeir hafa sparað í lækkuðum launagreiðslum. Vissulega kemur hér til hækkun á gengi bandaríkjadals á þessu tímabili en það kemur líka fram í þessu stórfelld lækkun á launum starfsmanna í Straumsvík eins og gagnvart öðrum íslenskum launþegum vegna beinna aðgerða núv. ríkisstj.
Ef við lítum svo til skattanna og þeirra breytinga, sem þar voru gerðar bæði 1984 með 3. viðauka og aftur í desember 1985 með 4. viðauka, stefnir sýnilega í það að hér er ekki skipt bara á sléttu, eins og Alusuisse gætir sín yfirleitt á í viðskiptum við íslenska samningamenn, heldur er hætt við að það komi til með að halla á heildarhagsmuni Íslands þegar þessi mál eru gerð upp. Svo hraklega hefur verið á þessum málum haldið.
Margt fleira má lesa út úr þessu svari sem ég vitnaði hér til frá hæstv. iðnrh. vegna fsp. hv. þm. Geirs Gunnarssonar, en ég ætla ekki að orðlengja þetta frekar. Tölur tala hér sínu máli og reynslan hefur þegar kveðið upp allóvæginn dóm yfir þeim samningamönnum sem stóðu að baki því frv. sem lögfest var 30. nóv. 1984 og enn voru að í sambandi við 4. viðauka sem lögfestur var í desember s.l.