04.02.1986
Sameinað þing: 41. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 2325 í B-deild Alþingistíðinda. (1953)
Leiga á flugvél Landhelgisgæslunnar
Skúli Alexandersson:
Herra forseti. Í pósthólf hv. alþm. var í gær lögð ályktun sem gerð var á stjórnarfundi Farmanna- og fiskimannasambands Íslands 30. jan. s.l. Þar segir m.a., með leyfi forseta:
„Stjórn Farmanna- og fiskimannasambands Íslands vill vekja athygli alþm. á þeirri hættu og því öryggisleysi sem kynni að skapast ef tæki Landhelgisgæslu Íslands yrðu leigð eða lánuð til annarra starfa en þeim er ætlað skv. lögum nr. 25/1967, um Landhelgisgæslu Íslands. Er vísað nánar til l. gr. um markmið laganna, liði a, b, c, d og g. Reynslan fyrr og nú hefur sýnt svo að ekki þarf að tilgreina stund eða stað að tækjabúnaður Landhelgisgæslunnar er sá eini er sjómenn og landsbyggðarfólk geta átt tilkall til þegar vá ber að höndum.
Stjórn Farmanna- og fiskimannasambands Íslands leggur á það sérstaka áherslu að flugvélar Landhelgisgæslunnar verði ávallt undir stjórn starfsmanna gæslunnar og tiltækar með mjög stuttum fyrirvara þegar á þarf að halda.“
Tilefni þessarar samþykktar eru m.a. þær sögusagnir sem eru á kreiki og blaðafréttir um að í ráði sé eða jafnvel þegar ákveðið að leigja TF-SYN, Fokkerflugvél Landhelgisgæslunnar, og að leigusamningur verði jafnvel gerður til eins árs.
Í máli þessu sem öðrum er best að hafa sem minnst um óstaðfestar sögusagnir. Ég fór þess því á leit við hæstv. forseta að fá að spyrja hæstv. dómsmrh. hér utan dagskrár á Alþingi um stöðu þessara mála. Ég vil því beina eftirfarandi spurningu til hæstv. dómsmrh.:
Stendur til eða hefur þegar verið gengið frá leigu á Fokker-flugvél Landhelgisgæslunnar, TF-SYN? Ef svo er, hver er leigutakinn og til hve langs tíma er leigan og ef leiga er fyrirhuguð eða þegar frágengin hvaða ástæður urðu þess valdandi að vélin er leigð? Er það af fjárhagsástæðum eða telja stjórnendur Landhelgisgæslunnar að verkefnum gæslunnar verði sinnt þrátt fyrir það að Fokker-vélin verði ekki til staðar?
Ég vænti þess að fá svör við þessum spurningum og um leið fá hv. alþm. og alþjóð upplýsingar um hvort svo er komið að Landhelgisgæslan sé ofskipuð tækjakosti til að sinna sínu hlutverki.
Ég vil, herra forseti, taka undir það, sem segir í samþykkt stjórnar farmannasambandsins, og gera að mínum, að reynslan fyrr og nú hafi sýnt svo ekki þurfi að tilgreina stund og stað að tækjabúnaður Landhelgisgæslunnar er sá eini sem sjómenn og landsbyggðarfólk og almenningur allur getur átt tilkall til þegar vá ber að höndum. Um þetta þurfum við ekki að taka dæmi. Þau eru svo nærtæk, m.a.s. hér í hv. sölum Alþingis.
Ég tel að mjög veigamikil atriði sem ég get ekki áttað mig á þurfi að vera til staðar og verða þess valdandi að tækjakostur Landhelgisgæslunnar verði skertur. Hitt er nærtækara að það þurfi að auka tækjakost gæslunnar og styrkja rekstur hennar svo að hún sé enn betur búin til að sinna hlutverki sínu en nú er.