04.02.1986
Sameinað þing: 41. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 2331 í B-deild Alþingistíðinda. (1962)
Leiga á flugvél Landhelgisgæslunnar
Skúli Alexandersson:
Herra forseti. Ég þakka svör ráðherra þó að þau hafi komið mér að mörgu leyti á óvart. Einnig þakka ég þær undirtektir og þann stuðning við það málefni sem ég hef hér hafið umræðu um frá hv. þm.
Það er í sjálfu sér ekki miklu að bæta við það sem hv. þm. hafa bent á í sambandi við nauðsyn þess að þetta björgunartæki sé til staðar hvenær sem er og við breytilegar aðstæður. En í sambandi við upplýsingar ráðherra um hvernig leigu væri háttað og að ráðherra benti á að hér væri ekki nema um 50 flugtíma að ræða tel ég að þegar þeim tíma er bætt við sem nauðsynlegur er til að breyta flugvélinni úr björgunarvél, gæsluvél, leitarvél í farþegavél, þá sé kominn svipaður tími og flugtími flugvéla Flugleiða er, eins og ráðherra upplýsti áðan. Það tekur sjálfsagt tvo til þrjá tíma eftir hvert flug ef á að breyta vélinni í það hlutverk sem hún á að sinna í hvert skipti þannig að notkunartími Flugleiða á þessari vél verður sjálfsagt a.m.k. tvöfaldur ef ekki jafnvel þrefaldur miðað við þann flugtíma sem hér er lagt til að verði gengið út frá.
Hinn þátturinn er að það sé nauðsynlegt að leigja þetta björgunartæki til að afla annars björgunartækis í hendur Landhelgisgæslunnar. Það gengur vitaskuld ekki upp að þannig sé gengið frá fjármálum gæslunnar að hún geti ekki á eðlilegan máta, og þar tala ég um eðlilegan máta, að hún hafi ekki fjárveitingar til að endurnýja tækjakost sinn á annan máta en með því að leigja önnur björgunartæki gæslunnar og hafa af þeim tekjur. Ég er alveg viss um að enginn af þeim þm. sem stóðu að því að fjármagn fékkst í gæsluna til að kaupa þessa vél hefur látið sér detta í hug að í nokkurt skipti yrði þessi vél leigð til að hafa af henni tekjur til rekstrar Landhelgisgæslunnar. Það er af og frá.
Ég undirstrika að það kemur vitaskuld ekkert í staðinn, eins og hv. þm. Karvel Pálmason sagði, fyrir þetta tæki um leið og það er tekið úr höndum Landhelgisgæslunnar. Síst af öllu er hægt að búast við því að það sé hægt að grípa til þessa tækis fyrirvaralítið.
Í frétt í Dagblaðinu 1. febrúar er sagt, með leyfi forseta:
„Flugleiðir stefna að því að hefja áætlunarflug milli Færeyja og Skotlands í vor með Fokker-vélum. Farin verður ein ferð í viku á þriðjudögum frá maí til september. Að sögn Sæmundar Guðvinssonar blaðafulltrúa Flugleiða byggist þetta á því að Flugleiðir fái Fokker-flugvél Landhelgisgæslunnar leigða nokkra daga í viku í sumar. Drög að leigusamningi liggja þegar fyrir. Skotlandsflugið verður í framhaldi af flugi Flugleiða milli Reykjavíkur og Voga í Færeyjum. Flugvélin heldur áfram frá Færeyjum til Glasgow og sömu leið til baka. „Það er mikill áhugi, bæði í Færeyjum og Skotlandi, á þessu flugi“, sagði Sæmundur.“
Ég er ansi hræddur um að það sé víða á Íslandi lítill áhugi fyrir þessu flugi, ekki síst þegar í ljós kemur að það er verið að leigja þetta björgunartæki okkar, ekki til innanlandsflugs heldur jafnvel til flugs milli annarra landa. Ég veit að landsbyggðin lítur til þessa tækis sem björgunartækis. Við megum ekki láta þetta ske. Ég vænti þess að hæstv. ráðh. og forstjóri Landhelgisgæslunnar íhugi hvort ekki væri um það að ræða að falla frá þessum samningi, a.m.k. ef til er ætlast að þessi flugvél verði langtímum saman erlendis en ekki á íslenskri grund þannig að möguleikarnir til að kalla hana til björgunarstarfa verði enn þá minni en þó væri ef vélin væri leigð til innanlandsflugs.