05.02.1986
Neðri deild: 46. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 2362 í B-deild Alþingistíðinda. (1981)

196. mál, Stjórnarráð Íslands

Hjörleifur Guttormsson:

Herra forseti. Ég þakka hæstv. forsrh. fyrir hans ábendingar hér og svör við mínum fsp. Sumt hefur skýrst við hans mál. Ég vil aðeins gera athugasemd varðandi fjárhagslegt sjálfstæði ráðuneyta. Ég fæ ekki lesið það út úr texta frv. sem hæstv. ráðh. er að tíunda hér að felist í því. Það er það sem ég geri athugasemd við að þessu leyti. Hins vegar hef ég alls ekki á móti þeim hugmyndum sem hæstv. forsrh. viðraði um aukið svigrúm fagráðuneyta til að ráðstafa því fjármagni sem skv. fjárlögum fellur undir viðkomandi ráðuneyti.

Herra forseti. Að lokum, því að ég er hér aðeins að gera örstutta athugasemd, vildi ég minnast á faglegar kröfur til starfsmanna stjórnarráðsins sem ég vék að. Ég teldi mjög eðlilegt að að því væri vikið í frv. sem þessu, hvort sem það er í texta þess eða grg. Ég held að ein ástæðan fyrir því að stjórnarráðinu hefur haldist misjafnlega á starfsfólki og allt of illa í rauninni, sé sú að ekki hafa verið gerðar skilgreindar samræmdar kröfur til starfsmanna, misjafnar eftir einstökum ráðuneytum. Launakjör þyrftu líka að vera með þeim hætti að stjórnarráðinu héldist á sínum starfsmönnum og það fengi staðist samkeppni við aðra sem sækja í þá krafta sem þangað ráðast.

Allra síðast í mínu máli varðandi dreifingu stjórnsýslunnar tel ég að það séu ekki fjarlægðirnar sem eigi að koma í veg fyrir að dreifa stjórnsýslunni. Ég tel að fjarskiptatæknin geri það kleift. Það ætti einmitt að vinna að því við meðferð þessa máls að létta á verkefnum stórra ráðuneyta eins og menntmrn. með því að færa þá þætti, sem verkefnalega heyra til einstakra svæða á landinu, út í landshlutana og leysa þau mál þar undir samræmdri stjórn ráðuneytis sem ég er ekki að gera tillögu um að flytjist sem slíkt burt frá Reykjavík.