05.02.1986
Neðri deild: 46. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 2370 í B-deild Alþingistíðinda. (1985)
205. mál, Seðlabanki Íslands
Kjartan Jóhannsson:
Herra forseti. Áður en ég vík að efnisatriðum þessa frv. langar mig til að varpa nokkru ljósi á efnisþátt sem varðar þessi mál en er ekki í frv.
Við skulum hugsa okkur að fimm menn leggi fram 100 þús. kr. hver, alls upp á hálfa millj. kr. og fái í staðinn í vasann skuldabréf upp á sömu upphæð, þ.e. hver um sig upp á 100 þús. kr. Af þessu myndast sjóður. Einum aðilanum er falið að ávaxta sjóðinn. Hann kaupir skuldabréf á almennum markaði fyrir hluta af þessari fjárhæð, kaupir þau með afföllum, þ.e. á gengi undir nafnverði. Þeim mun vafasamari sem bréfin eru, þeim mun meiri verða afföllin. Síðan setjast menn niður og reikna út hver ávöxtunarprósentan hafi verið eða verði miðað við þessi afföll og gera það eins og tíðkast. Við getum t.d. hugsað okkur að bréfin hafi verið verðtryggð, þau sem keypt voru, með 6% vöxtum, en þegar afföllin voru tekin með í dæmið, þá fá menn það að reiknuð ávöxtun sé upp á 20%.
Þeir sem að þessu standa ákveða að nota einungis helminginn af upphaflega fénu, hinni upphaflegu hálfu millj., til skuldabréfakaupa en hinum helmingnum er varið í auglýsingar til að segja frá því hvaða ávöxtun geti nú verið í boði, þ.e. þau 20% sem menn hafa reiknað út miðað við afföllin. Jafnframt eru gefin út fleiri skuldabréf á sjóðinn og auglýst að menn geti fengið þessi bréf til kaups og komist inn í dýrðina.
Úr því að sjóðurinn hefur náð svona mikilli ávöxtun er hann auðvitað orðinn verðmætari en hann var þegar hann var stofnaður. Sjötti aðilinn, sem kemur inn til að kaupa bréf á eftir stofnendunum fimm, fær því ekki að koma inn á sömu kjörum og hinir upphaflegu. Hann og aðrir þeir sem koma á eftir verða að kaupa nýju bréfin á yfirgengi.
Ef fólki líst vel á kjörin og kaupir bréfin streyma peningarnir inn þegar fleiri af hinum almennu bréfum þessa sjóðs eru keypt. Reiknuð ávöxtun er auglýst, en það er auðvitað ekkert greitt út. Vel að merkja, sjóðurinn greiðir enga vexti á þá peninga sem koma inn, greiðir enga vexti á þau bréf sem hann er að gefa út. Eina ráðið fyrir þann sem hefur keypt bréf af sjóðnum, til að fá raunverulega vexti útgreidda er að selja bréfið sitt. Bréfseigandinn á það samkvæmt því undir því hvernig bréfið selst hvaða ávöxtun hann fær í rauninni, hvað svo sem hefur verið auglýst á sínum tíma.
Þegar menn standa að stofnun sjóðs af þessu tagi hljóta menn að gera ráð fyrir því að einhverjir muni kaupa þessi bréf á sjóðinn. Menn sjá að það er of mikil óvissa ef ekki fengist nein tilvísun um það hvert bréfseigandi eigi að snúa sér til að fá þessi bréf keypt af sér og til þess að fá þannig hina raunverulegu vexti.
Auðveldasta ráðið er að sjá við þessu með því að tilgreina á bréfinu að sjóðurinn sé sjálfur reiðubúinn til að kaupa bréfin með vissum skilyrðum. Skuldabréf, sem þannig eru gefin út, mundu þá tilgreina að sjóðurinn væri tilbúinn til að kaupa bréfin með ákveðnum fyrirvara. Það má t.d. orða það svo að hann geri það með sex daga fyrirvara. En vel að merkja, það getur verið svolítið vafasamt. Til öryggis er því kannske rétt að sjóðsstjórnin eða hinir upphaflegu stofnendur hafi eitthvert meira svigrúm.
Dæmi um það hvernig menn geta farið að er að ætla mönnum að tilkynna sölu sína til sjóðsins á sjóðsbréfunum með ákveðnum fyrirvara og sjóðurinn sé skuldbundinn til að kaupa bréfin að þeim tíma liðnum, segjum að 90 dögum liðnum. Engu að síður gæti staðið illa á þá. Það væri kannske öruggara að hafa einhvern fyrirvara, þannig að sjóðsstjórnin gæti ætlað sér lengri tíma. Engu að síður gætu menn auglýst að í rauninni væru bréfin keypt með sex daga fyrirvara, hitt væri einungis varnagli.
Hvað hefur þá gerst? Jú, gefin hafa verið út bréf með ávísun á sjóð sem hefur notað peninga sína til að kaupa skuldabréf úti í bæ. Á grundvelli þess reiknar hann út einhverja ávöxtun sem hann telur að sé á bréfunum miðað við þau afföll sem þá eru í gildi, en sjóðurinn greiðir enga vexti.
Leiðin til þess að menn geti einhvern tíma fengið þessa ávöxtun, sem út er reiknuð, er sú að menn geti selt þau bréf sem þeir hafa keypt. Aðalkaupandi bréfanna er sjóðurinn sjálfur. Sjóðurinn áskilur sér rétt til að kaupa þau ekki nema með ákveðnum skilyrðum og með ákveðnum fyrirvara.
Hvers vegna rifja ég þetta upp? Vegna þess að það er eitthvað af þessu tagi sem er að gerast í okkar þjóðfélagi. Þetta getur allt saman gengið vel um hríð en kannske ekki lengi vegna þess að sjóðir eins og þessi byggja á því að innstreymi sé ætíð meira en útstreymi á peningum. En það er ekki gefið að svo verði ætíð og ævinlega.
Hugsum okkur að upp komi einhver órói í efnahagslífinu sem valdi því að fólk vill hafa peninga lausa milli handanna, m.ö.o. að það vilji selja bréf af því tagi sem ég var hér að gera að umræðuefni. Þetta gæti t.d. gerst vegna þess að tollar á bílum lækki tímabundið eða vegna þess að af einhverjum ástæðum telji menn nauðsynlegt að hafa fé á milli handanna. Þá hlaupa menn til og vilja selja bréfin sín. En það vill enginn kaupa. Sjóðurinn sjálfur getur áskilið sér frest á frest ofan ef þannig er frá gengið í skilmálum þeim á bréfunum sem hann hefur selt. Bréfin hljóta þá að lækka í verði ef enginn vill kaupa.
Sjóðirnir geta lent í greiðsluvandræðum. Hvernig eiga sjóðirnir að bregðast við því? Þeir hljóta að reyna að selja skuldabréfin sem þeir hafa keypt fyrir þessa fjármuni. Ef það verður mikið framboð af slíkum bréfum mundu þau væntanlega falla mjög í verði. Ef margir vilja selja sjóðsbréfin verður að selja skuldabréfin sem sjóðirnir eiga. Þá falla skuldabréfin í verði, þá falla sjóðsbréfin í verði. Hin reiknaða ávöxtun, sem mönnum hafði verið boðuð, verður þá að engu því að markaðurinn tekur auðvitað ekki við miklu magni í einu nema þá að bréfin séu seld með miklum afföllum og þá eru þau fallin í verði og hin reiknaða ávöxtun líka að engu orðin.
Í blöðum hafa að undanförnu birst auglýsingar frá ýmsum aðilum, t.d.„Kjarabréf, 26,8% ársávöxtun“. Þetta er ekki útgreidd ávöxtun, þetta er útreiknuð ávöxtun sem getur aldrei orðið að raunveruleika nema bréfin séu seld. Hversu margir af þeim, sem hafa keypt svona bréf, hafa gert sér ljóst að svo sé? Hversu margir hafa gert sér ljóst á hversu veikum grunni þetta er byggt? Er öruggt að menn geti selt bréfin sín?
Hvaða skilmála setja menn í svona bréf, kjarabréf t.d.? Jú, það stendur að sjóðurinn sé skuldbundinn til að innleysa kjarabréfið á því sölugengi sem gildir sex dögum fyrir innlausn að frádreginni innlausnarþóknun, en hún skal hæst vera 3%. Sölugengi kjarabréfsins skal reikna daglega eftir ákveðnum reglum sem sjóðsstjórnin sjálf hefur sett sér um markaðsvirði bréfanna og kostnað við að reka sjóðinn.
Síðan segir: „Krafa um innlausn skal vera skrifleg á sérstöku eyðublaði er stjórnin lætur útbúa. Krafa um innlausn skal berast eigi síðar en fyrir 10. maí árið 2005, sem er endanlegur gjalddagi þessara bréfa. En innlausn skal fara fram eigi síðar en 90 dögum frá þeim degi er innlausnarkrafa barst sjóðnum, eða næsta virkan dag þar á eftir.“
Eftir að krafan hefur verið lögð fram eru þess vegna ekki sex dagar sem líða þangað til sjóðurinn kaupir, heldur á innlausnin að fara fram eigi síðar en 90 dögum eftir að krafan barst. En við er bætt: „Stjórn sjóðsins er heimilt að fresta innlausn umfram þessa 90 daga telji hún ástæðu til þess, sbr. þó ákvæði um endanlegan gjalddaga.“
Telji stjórn sjóðsins að það sé ekki gott að kaupa þessi bréf af þeim einstaklingum sem hafa keypt þau getur hún skv. þessu frestað því allt til ársins 2005. Kemur það mjög skýrt fram í auglýsingum um þetta ávöxtunarform að ekki sé víst að menn fái að njóta ávaxtanna og ávöxtunarinnar fyrr en árið 2005?
Ef eitthvað af því tagi gerist sem ég var að rekja hér áðan, að það yrði „rush“, eins og stundum er sagt, á svona sjóð, margir vildu losa fé, þá er enginn ábyrgur. Það stendur ekkert á bak við, sjóðurinn á ekkert nema þau verðbréf sem mundu falla sífelldlega í verði um leið og hreyfing kæmist á hlutina.
Sumir vilja sjálfsagt að svona sjóðir, svona form sé fyrir hendi í þjóðfélaginu. Sumir vilja það ekki. En hvort sem menn vilja það af einlægni eða ekki held ég að allir hljóti að sameinast um það að það sé lágmarksskilyrði að þeim, sem eiga viðskipti við sjóði af þessu tagi, séu gerð greinargóð skil á því hvað sé um að ræða.
Ég er sannfærður um að mjög litlum hluta þeirra, sem hafa farið í að kaupa svona bréf, hvort sem þau heita kjarabréf, kostabréf eða einingabréf, er ljóst hverja feiknaáhættu þeir eru að taka og að sú ávöxtun, sem auglýst er, er einungis til á pappírnum og eina leiðin til að fá einhverja ávöxtun útgreidda er að selja bréfin og eini skuldbundni kaupandinn er sjóðurinn sjálfur sem áskilur sér rétt til að fresta kaupunum allt til ársins 2005.
Hafa einhverjir keypt bréf af þessu tagi? Í Morgunblaðinu 21. nóv. 1985 er gerð grein fyrir útbreiðslu bréfa af þessu tagi, einingaskuldabréfa eða kjarabréfa, sem útgefin eru af Verðbréfasjóðnum hf. annars vegar og hins vegar á vegum Hávöxtunarfélagsins sem er rekið í tengslum við Kaupþing. Gerð er grein fyrir því hversu til hafi tekist. Samkvæmt Morgunblaðinu þennan 21. dag nóvembermánaðar 1985 hafa 1250 einstaklingar keypt einingahlutabréf Hávöxtunarfélagsins fyrir um 50 millj. kr. Ég tel ekki ólíklegt að álíka vel hafi til tekist með kjarabréf Fjárfestingarfélagsins sem hafa verið ekki síður, jafnvel enn þá betur auglýst. Það má því vel vera að um 2000, kannske fleiri en 2000 einstaklingar hafi keypt þessi bréf að upphæð 100-200 millj. kr.
Ég held að þeir aðilar hafi ekki upp til hópa gert sér grein fyrir hvernig þetta mál er í pott búið eða að þeir hafi lesið skilyrðin á bréfunum sínum nægilega glögglega, hafi gert sér það ljóst að sú prósenta, sem auglýst er, er einungis útreiknuð prósenta á vegum sjóðsstjórnarinnar sjálfrar, að þeir hafi gert sér ljóst að áhættan, sem þeir eru að taka, sé svo mikil sem raun ber vitni.
Hitt er ljóst að það er mjög auðvelt að stofna svona sjóð. Hér hefur ekkert lögbrot verið framið því að lög um þetta eru nánast engin. Spilaklúbbur getur tekið sig saman, 100 þús. kr. á mann, stofnað svona sjóð. Og það sem meira er, sjötti til hundraðasti eða sjötti til tólfhundraðasti og fimmtugasti maðurinn, sem koma inn í sjóðinn, hafa ekkert með hann að gera. Það eru hinir upphaflegu stofnendur sem ráða öllu. Hinir eru að eiga viðskipti við hina upphaflega stofnendur. Hinir eigendur bréfanna eiga ekkert nema bara þetta bréf í höndunum. Þeir hafa engan íhlutunarrétt um stjórn þessa sjóðs, þeir eru ekki hluthafar í sjóðnum eða neitt slíkt. Spilaklúbburinn, þessir fimm menn, hefur vald á öllum þessum fjármunum og þeir ráða einn mann til að fara með þetta eða kannske einhverja skrifstofu.
Það er athyglisvert í þessu sambandi að þessi starfsemi, einingabréfasölurnar, hefur risið upp í tengslum við verðbréfasölu af öðru tagi. Það eru kannske þeir, sem eru með verðbréfasöluna að öðru leyti, sem eru forsvarsmenn þessara einingasjóða eða hvað menn vilja kalla þá, þessara kjarasjóða. Það hlýtur að vera ákaflega hagkvæmt fyrir þá að búa til eftirspurn eftir skuldabréfunum sem þeir eru að selja með því að auglýsa í blöðunum að ef menn kaupi einingabréf geti menn fengið 25-30% ávöxtun og peningarnir, sem koma inn fyrir einingabréfin, fara svo til þess að kaupa skuldabréf af verðbréfasala sem er einn og sami aðili eða kannske er hér um móður- og dótturfyrirtæki að ræða.
Ég sagði áðan að vafalaust væru skiptar skoðanir um það hvort bjóða ætti upp á ávöxtunarform af þessu tagi. Það er staðreynd í okkar þjóðfélagi að við höfum þetta núna og þarna eru verulegir fjármunir. Það er líka staðreynd að það eru engin lög sem fjalla um þetta. Ekki heldur lögin, sem hæstv. ráðh. var að tala um hér áðan, um verðbréfamiðlun, taka að neinu leyti að mínum dómi á þessu atriði.
En er það ekki lágmark, ef menn vilja hafa þetta, að um það gildi einhverjar reglur og einhver lög og upplýsingaskylda um það í hvað menn eru að fara ef þeir kaupa svona bréf? Er það eðlilegt að svona bréf séu seld með þeim skilmálum að enginn sé skuldbundinn til að kaupa þau, ekki útgefendurnir, ekki félagið. ekki neitt, fyrr en í síðasta lagi árið 2005, eins og dæmið er um sem ég rakti áðan?
Ég veit ekki hvort hv. þm. er ljóst að ríkið er aðili að svona sjóði. Ríkið er aðili að svona sjóði þar eð Framkvæmdasjóður stendur að slíku í gegnum Fjárfestingarfélagið.
Ríkið stendur þannig óbeint að þeim skilmálum, sem ég gat um áðan, um 90 daga frestinn plús hinn óendanlega frest á því að kaupa svona bréf af þeim sem hafa keypt. Það sem meira er, ríkið hefur lagt það á sig að bjóða þessi bréf til kaups í öllum pósthúsum landsins. Öll pósthús landsins eru orðin verðbréfasalar fyrir þessa sjóði. Ef auglýsingarnar frá þeim eru glöggt lesnar kemur í ljós að bréfin eiga að vera til sölu á öllum pósthúsum landsins.
Ég rek þetta af því að ég tel og hef talið um nokkra hríð að ákvæði um ávöxtunarfyrirtæki, eins og ég hef nefnt fyrirtæki af þessu tagi, skorti gjörsamlega í íslenska löggjöf. Ég gæti auðvitað rakið það fyrir mönnum hér í lengra máli hvernig megi spila á svona fyrirtæki, hvenær eigi að kaupa bréf og hvenær eigi að selja bréf og hver sé aðstaða mannsins eða þeirra aðila, sem eru bæði verðbréfasalar og forvaltarar sjóðs af þessu tagi, til að maka krókinn. En ég ætla að sleppa því. Mér finnst þetta vera nógu ljóst, sem ég hef þegar rakið, til þess að allir eigi að sjá að um svona atriði eigi að fjalla í löggjöf.
Þegar bankamálanefnd var að störfum gerði ég það ítrekað að umræðuefni í nefndinni að nauðsyn bæri til að koma einhverju taki á þessi ávöxtunarfyrirtæki sem þá voru að rísa upp. Menn voru ekki til þess reiðubúnir þá en ég hef getið þess í séráliti, sem er prentað með í frv. til laga sem hér er til umræðu, að til eru þau fyrirtæki á Íslandi sem taka við fé frá almenningi til ávöxtunar. Þar segir: „Með þeim þarf að hafa eftirlit og upplýsa almenning um líklega áhættu af viðskiptum við slík fyrirtæki. Setja á ótvíræð ákvæði um þetta efni í þann kafla laganna sem fjallar um bankaeftirlit.“
Þetta má heita stuttaraleg afgreiðsla af minni hálfu um það leyti sem bankamálanefnd var að ljúka störfum. En eftir að hafa skoðað þetta frekar hef ég enn frekar sannfærst um nauðsyn þess að á þessu máli verði tekið. Hafi ég ekki gert nægilega góða grein fyrir þessum sjónarmiðum fyrr tel ég að af því, sem ég hef nú rakið, eigi að vera ljóst hverja nauðsyn ber til þess að taka á þessum málum.
Ég er fullviss um að stór hluti þeirra, sem hafa haft viðskipti við þessa aðila, hefur ekki hugmynd um hvað hann er að gera eða hvaða áhættu hann er að taka. En eins og menn vita skortir ekki auglýsingarnar um það hversu girnilegt þetta sé.
Ég skal nú, herra forseti, víkja að öðrum atriðum í þessu frv. Ég er að sjálfsögðu reiðubúinn til að ræða þetta efni frekar ef menn hafa á því áhuga en ég skal láta hér staðar numið um það að sinni. En vegna þess hversu mér þykir alvarlegt að allt skorti um þetta efni hef ég gert það að umræðuefni fyrst.
Hæstv. ráðh. mælti hér fyrir frv. til laga um Seðlabanka Íslands. Hann sagði að æskilegra hefði verið að það hefði getað fylgt frv. um viðskiptabanka á s.l. ári. Þá vaknar spurningin: Hvers vegna fylgdi það ekki frv. um viðskiptabanka á s.l. ári og hvað hefur gerst í millitíðinni? Það fylgdi ekki frv. um viðskiptabanka á s.l. ári af því að menn höfðu ekki náð samkomulagi um ýmis atriði sem voru í hinu upphaflega frumvarpsformi. Það sem gerst hefur í millitíðinni er það að mjög mörgum greinum frv. hefur verið bylt mjög verulega og breytt þannig að þau sérálit, sem hér fylgja með og varða hið upprunalega frv. eins og það kom frá bankamálanefnd, verða kannske svolítið ankannaleg. Það er langur kafli í mínu séráliti um afurðalánakerfið og bindingu innlána sem hefur tekið algjörum breytingum, bæði í framkvæmd og í þessu frv. frá því frv. sem bankamálanefnd sendi frá sér.
Það er hér hrós um ákveðin atriði í séráliti Lúðvíks Jósepssonar. Þeim atriðum flestum er búið að breyta, þannig að það sem Lúðvík fagnaði í sínu séráliti, þótt hann hefði ýmislegt á hornum sér varðandi önnur atriði, er honum væntanlega ekkert fagnaðarefni lengur vegna þess að ákvæðunum hefur gjörsamlega verið snúið við.
Í þessum greinum má taka nokkur atriði. Það er t.d. fagnaðarefni hjá Lúðvík Jósepssyni að verið sé að þrengja verksvið bankans. Hæstv. ráðh. lagði líka á það nokkra áherslu að það væri verið að gera með þessu frv. En það eru hér ný ákvæði bæði í 6. gr. og 11. gr. þessa frv. sem opna það sem lokað er í öðrum greinum, undantekningarákvæði varðandi viðskipti Seðlabankans við aðra aðila en ríkið og viðskiptabankana, peningastofnanir í þrengsta skilningi. Það var meining nefndarmanna - um það voru þeir þó allir sammála hvaðan úr flokki sem þeir voru, hvort sem þeir eru nú fjmrh. eða ekki - að eðlilegt væri að Seðlabankinn væri fyrst og fremst banki bankanna og ríkissjóðs í þröngum skilningi.
Í 6. gr. er nú tekið fram að þegar sérstaklega standi á - það er viðbót sem hefur átt sér stað í sumar - megi gera þetta að engu, þ.e. Seðlabanki geti þá ákveðið í reglugerð að taka við innlánum frá öðrum peningastofnunum en þeim sem þrengingin náði til og skilmerkilega er tekið fram áður.
Það var líka tekið fram í frv. nefndarinnar að það væru einungis innlán ríkissjóðs en ekki ríkisstofnana sem ættu að geymast í Seðlabankanum, ríkissjóður „próper“ svo að segja. Þessu hefur nú verið breytt. Í 11. gr. hefur verið bætt inn í að ekki skuli þar einungis geymast innlán ríkissjóðs heldur þeirra ríkisstofnana einnig sem eru á fjárlögum. Ánægja Lúðvíks Jósepssonar yfir frv. trúi ég að sé að því er þetta atriði varðar að engu orðin því að það sem átti að þrengja hefur nú verið gefinn möguleiki á að útvíkka eftir því sem mönnum þykir henta hverju sinni.
Í frv. eins og það kom frá bankamálanefnd var afurðalánakerfið í fullu fjöri. Bindingin átti að geta farið upp í 28 + 5%, eða 33% við venjulegar aðstæður. Þetta er nú með allt öðrum hætti í frv. eins og það er núna, m.a. vegna þess sem gerst hefur, þ.e. að menn hafa valið þá leið að afurðalánakerfið færi yfir á erlendan lánamarkað, og af öðrum ástæðum.
Eitt af því sem Lúðvík Jósepsson fagnaði í sambandi við þetta frv. var að hann taldi að bein samsvörun ætti að vera milli þessara 28% og afurðalánakerfisins. Sú beina samsvörun er ekki fyrir hendi lengur í þessu frv.
Um bindinguna verður það eitt sagt að í frv. eins og það er núna er ekkert þak á henni. Seðlabankinn getur ákveðið þá bindingu sem honum dettur í hug. Alþingi hefur ekkert með það að gera. Það er ekkert þak sett á það hver hæsta binding í innlánsfé geti verið, eins og verið hefur í lögum, eins og var í frv. bankamálanefndar og eins og var í séráliti mínu, þó að mitt sérálit gerði ráð fyrir 15% hámarki en ekki 33%, eins og meiri hluti nefndarinnar. Það skýrist m.a. af því að ég vildi gera uppstokkun á afurðalánakerfinu þannig að Seðlabankinn útvegaði lán í ákveðnu hlutfalli miðað við það hver þörfin væri hjá mismunandi lánastofnunum miðað við þarfir atvinnuveganna í viðskiptum við hina ýmsu banka. En um það þarf ekki að fjölyrða frekar því menn hafa þar fundið aðra leið.
Eitt af því sem núverandi formaður Sjálfstfl. og núverandi fjmrh. fagnaði mjög þegar hann starfaði í nefndinni var það vaxtafrelsi sem átti að innleiða. Hæstv. ráðh. lét þess getið hér að eitthvað hefði verið hnikað til í þessum efnum vegna þess að Seðlabankanum er gefið vald til þess að afnema vaxtafrelsið ef honum sýnist þess þurfa.
Ekki veit ég hvort hæstv. fjmrh., núverandi formaður Sjálfstfl., er jafnánægður með að vaxtafrelsið skuli þessum takmörkunum háð skv. frv. og hann var ánægður yfir því að vaxtafrelsið skyldi komast inn í frv.
Um þetta atriði gerði ég athugasemdir nokkrar þegar nefndin gekk frá sínu áliti. Ég benti á að það skorti grg. um hvernig vaxtamunur inn- og útlána skyldi skilgreindur og hvernig ætti að beita því stjórntæki. Ég var hins vegar í grundvallaratriðum sammála því að vaxtastigið í landinu ætti að ákveða með því að viðskiptavextir Seðlabankans við aðra banka væru ákveðnir af honum eða bankamálaráðherra og ég taldi reyndar að bankinn ætti að ákveða það, mundu ákveða vaxtastigið. Ég var líka sammála því að nauðsynlegt væri að veita aðhald með því að munur á innláns- og útlánsvöxtum væri hafður undir smásjánni og aðhald veitt í þeim efnum af Seðlabanka þó að það væri aldrei hægt að fá nánari skýringar á því hvernig framkvæmdinni skyldi hagað.
Það var líka eindregin skoðun hæstv. núverandi fjmrh. Þorsteins Pálssonar, sem var formaður nefndarinnar á seinni hluta starfs hennar, að Seðlabankinn ætti einungis að veita ríkissjóði lán til skamms tíma og slík lán ættu að greiðast upp við lok hvers fjárhagsárs og með slíkum lánum skyldi telja alla ríkisvíxla, skuldabréf og önnur verðbréf sem eru útgefin af ríkissjóði og Seðlabankinn kaupir á verðbréfamarkaði eða af peningastofnunum.
Hvað hefur gerst? Í fyrsta lagi hefur nú verið lengdur tíminn til uppgjörsins um þrjá mánuði frá lokum fjárhagsárs. Látum það nú kannske vera. En að öðru leyti hefur innihaldi þessarar setningar verið gjörsamlega snúið við. Í staðinn fyrir að ríkisvíxlar, skuldabréf og önnur verðbréf skuli teljast með lánum Seðlabankans skulu þau skv. frv., eins og það liggur fyrir núna, ekki teljast með. Það er kannske smávægileg breyting að bæta inn í bara einu orði, orðinu „ekki“ í seinustu málsgr. 11. gr. En þetta er eitt af því sem hefur breyst frá því að bankamálanefnd hafði þetta til umfjöllunar og sem aðrir nefndarmenn létu undan þrýstingi og áliti Þorsteins Pálssonar þáverandi nefndarformanns um hvernig skilgreint skyldi og hvernig með skyldi fara.
Það var reyndar líka í frv. eins og bankamálanefnd gekk frá því að það skyldi ótvírætt að bankastjórar væru ekki í öðrum störfum. Ég má kannske vekja athygli á því að skv. ákvæði til bráðabirgða í þessu frv., eins og það liggur nú fyrir, er ekki gert ráð fyrir að það ákvæði taki gildi gagnvart þeim sem núna eru við störf bankastjóra í Seðlabankanum. Svolítið fráhvarf hlýtur það að teljast frá því sem bankamálanefndin taldi á sínum tíma.
Þetta eru nokkur þau atriði sem hafa breyst frá því að frv. fór frá bankamálanefnd. Þau eru reyndar fleiri. Ég veit ekki hvort ástæða er til að ég reki þau öllu nánar á þessu stigi. Það er nýtt ákvæði hér um reglur um lágmark eða meðaltal lauss fjár. Ég held að það ákvæði sé til bóta. En annað, sem ég hef talið upp, er ég ekki sannfærður um að sé til jafnmikilla bóta.
Það var líka og ekki síst álit nefndarinnar að bankaeftirlitið ætti að fá aukið sjálfstæði frá því sem áður hefði verið. Um þetta sagði Lúðvík Jósepsson í sínu séráliti að hann teldi það til bóta, sem þar hefði náðst, þó að hans skoðun væri reyndar sú að bankaeftirlitið ætti að vera algerlega sérstök stofnun. En í frv. nefndarinnar var tekið fram að hér væri um sjálfstæða stofnun að ræða þó að til málamiðlunar létu menn það frá sér fara þannig að hún heyrði engu að síður til Seðlabankanum.
Nú er þetta breytt. Nú er bankaeftirlitið orðið alger undirsáti í Seðlabankanum og undir þeim sem þar fara með völd að öðru leyti. Ekki trúi ég að Lúðvík Jósepsson fagni ákvæði laganna jafninnilega núna og hann gerði þegar þetta var sett fram og ekki skal ég segja um aðra nefndarmenn. En svo mikið er víst að mikið var þetta rætt.
Í séráliti mínu benti ég á ýmis atriði sem ég taldi að vantaði í þetta frv. og ég skal nú gera það eilítið að umtalsefni. Ég hef áður minnst á eftirlit með ávöxtunarfyrirtækjum. Ég tel að ég hafi gert því nægilega glögg skil. Annað atriði var svokölluð trygging innlána, að stofnaður yrði tryggingarsjóður til að verja menn áhættu af því að bankar færu á hausinn. Í því máli vannst þó nokkur sigur í fyrra, þ.e. tekið var inn í viðskiptabankalöggjöfina, sem samþykkt var í fyrra, ákvæði um þetta efni í 51. gr. laganna þess efnis að stofnað skyldi til tryggingarsjóðs viðskiptabanka sem væri sjálfstæð stofnun og jafnframt að yfirstjórnin væri í höndum viðskrh. og hann skyldi setja nánari ákvæði um sjóðinn í reglugerð.
Ég vil nú spyrja hæstv. viðskrh. hvort við getum ekki fengið að heyra ákvæði þessarar reglugerðar vegna þess að hún hefur væntanlega ekki verið gefin út síðar en 1. febr. s.l. Um það eru skýr lagaákvæði að sjóðnum skuli sett reglugerð eigi síðar en 1. febr. 1986. Ég vil óska eftir því við hæstv. viðskrh. að hann greini okkur frá efnisatriðum þessarar reglugerðar. En markmið þessa sjóðs var að tryggja full skil á innlánsfé þegar viðskiptabanki er í greiðsluþroti. Sjóðurinn á að tryggja eigendum innlánsfjár sem skjótasta endurgreiðslu innlána þegar bú viðskiptabanka er tekið til skipta.
Ég verð að segja að ég er mjög ánægður með það að Alþingi skyldi samþykkja þetta ákvæði á s.l. ári, ég tala nú ekki um í ljósi þess sem síðar hefur gerst hjá Útvegsbanka Íslands. Hvernig hefði farið hér hjá okkur ef það hefði verið einkabanki en ekki ríkisbanki sem lenti í því feni sem Útvegsbankinn var í? Þá hefðu inneignir sparifjáreigenda getað tapast vegna þess að engin trygging var á bak við, ef það hefði verið hlutafélagabanki, ekki ríkisbanki, sem hefði farið jafnhrikalega að ráði sínu og Útvegsbankinn. Það hefur því sannast síðan að þessa ákvæðis var fyllilega þörf.
Þriðja atriðið, sem ég nefndi í séráliti mínu, var ákvæði um kreditkort, að það skorti ákvæði í lögum um kreditkort og ég teldi eðlilegt og nauðsynlegt að setja það inn í seðlabankalögin. Ég vil taka það fram að ég er ekki á móti kreditkortum. En ég hef talið lengi, eins og reyndar fleiri þm., að um þetta atriði ættu að vera til lagaákvæði og eftirlit með starfsemi fyrirtækja af þessu tagi væri nauðsynlegt og styddist við lagaákvæði. Það hefur oft verið talað um að flytja frv. til slíkra laga en enn þá vantar þau.
Fjórða atriðið var um vaxtamál og um það hef ég þegar fjallað þó nokkuð.
Fimmta atriðið var um almannaaðhald. Ég minni á að Alþingi hafði nýlega sett lög um upplýsingaskyldu bankanna varðandi risnu og bílakost og því um líkt. Þau ákvæði voru inni í lögum bæði um ríkisbankana og Seðlabankann. Í fyrra var með nýju viðskiptabankalögunum upplýsingaskylda bankanna um þetta atriði felld út úr lögum. Nú er meiningin að gera það sama að því er varðar Seðlabankann.
Ég benti líka á það í séráliti mínu að ég teldi nauðsynlegt - og rétt að það komi fram hér alveg eins og í umræðunum um viðskiptabankana - að ráðherra gæti haft heimild til tímabundinnar stöðvunar á stofnsetningu útibúa. Ekki það að ég fylgi ekki þeirri almennu reglu sem hér er sett fram um að það sé ekki neitt reglugerðarákvæði um þetta, heldur hitt að ég taldi nauðsynlegt að ef eitthvað sérstakt kæmi upp á gæti viðskrh. stöðvað stofnsetningu allra útibúa þannig að eitt yrði yfir alla að ganga í þeim efnum um ákveðinn tíma, t.d. eitt ár.
Um gjaldeyrisviðskiptin er það að segja að ég lagði áherslu á að skilið yrði á milli heimildar til þess að stunda einfalda sölu á gjaldeyri til almennings og stofnsetningar kostnaðarsamra gjaldeyrisdeilda. Þetta vil ég endurtaka nú og það vísast til sérálits og þeirrar umræðu sem fór hér fram í fyrra varðandi viðskiptabankana.
Ég benti líka á það í þessu séráliti mínu að ég teldi nauðsynlegt að setja sérstök lög um peningamálastjórn og benti sérstaklega á Noreg sem fordæmi í þeim efnum.
Tveimur atriðum gerði ég sérstök skil í séráliti mínu og ég tel ástæðu til að ítreka þau nokkuð hér. Það var um valdsvið og ábyrgð bankans. Vísast þá til þeirrar 4. gr. sem ráðherra gerði hér sérstaklega að umtalsefni, um það að í öllu starfi sínu skuli Seðlabankinn hafa náið samráð við ríkisstjórnina og gera henni grein fyrir skoðunum sínum varðandi stefnu í efnahagsmálum og framkvæmd hennar. En sé um verulegan ágreining við ríkisstjórnina að ræða er stjórn Seðlabanka rétt að lýsa honum opinberlega og skýra skoðanir sínar. Engu að síður skuli hún telja það sitt hlutverk að framfylgja stefnu ríkisstjórnarinnar frekar en sinni eigin. Þetta er gamalt ákvæði og hefur í engu verið breytt.
Vegna þessa ákvæðis, eins og það er orðað, hafa orðið margvíslegir árekstrar milli Seðlabankans og ríkisstjórna. Eða kannske væri ekki rétt einu sinni að nefna það árekstra, heldur að ríkisstjórnin og Seðlabankinn hafi afsakað sig hvort með öðru. Það hefur ekki verið óalgengt á undanförnum árum að ráðherrar, jafnvel forsrh., hafi sagt: Seðlabankinn ræður þessu, á sama tíma og Seðlabankinn var að bíða eftir ákvörðun ríkisstjórnar.
Að mínu áliti á að breyta þessu. Það á að breyta því með þeim hætti að ríkisstjórnin á að lýsa markmiðum sínum í peningamálastjórn fyrir Seðlabankanum og með opinberum hætti, en síðan að láta Seðlabankann um að beita þeim tækjum og ráðum á þessum sviðum sem hann telur nauðsynleg til að ná þessum markmiðum. Ríkisstjórnin getur svo hvenær sem er endurskoðað markmið sín, hún hefur rétt og skyldur til þess hvenær sem hún telur það nauðsynlegt. En ef þessi háttur yrði upp tekinn fengist langtum gleggri verkefnaskipting og skýrari valdskil en núna tíðkast og frv. gerir ráð fyrir.
Ég taldi að vísu ekki nauðsynlegt að breyta 4. gr. ef ákvæði hennar yrðu áréttuð annaðhvort með viðbótarmálsgrein í 4. gr. eða með nýrri sérstakri grein um það að ríkisstjórnin skuli í ársbyrjun og eigi sjaldnar en ársfjórðungslega birta Seðlabankanum stefnu sína og markmið í peninga- og efnahagsmálum, þar á meðal um peningamagn í umferð, raunvaxtastig, markmið í sambandi við viðskiptajöfnuð og hugmyndir um útlána- og innlánaþróun í samræmi við það. Og síðan: „Hlutverk Seðlabankans er að framfylgja þessum markmiðum með þeim tækjum og ráðum sem hann hefur til umráða.“
Mín skoðun er sú að ef þetta væri gert mundum við losna við það og hættuna af því, sem við höfum oft orðið að upplifa að undanförnu, að hér væri ráðleysi vegna þess að ríkisstjórn og Seðlabanki væru að kenna hvor öðrum um.
Í mínu séráliti er fjallað þó nokkuð um stjórntæki Seðlabankans. Það á að vera hlutverk Seðlabankans m.a. að sjá til þess að peningamagn í umferð og framboð á lánsfé sé hæfilegt miðað við sem stöðugast verðlag og hagkvæma nýtingu á framleiðslugetu atvinnuveganna. Hann verður vitaskuld í þessu sambandi að hyggja að fjárhagslegu öryggi þjóðarinnar út á við og að tryggja frjáls viðskipti við útlönd.
Hann hefur ekki mörg tæki undir höndunum til að sinna þessum markmiðum. Mér telst svo til að þau séu fimm auk gengisins. Það er í fyrsta lagi bindingin sem við höfum eilítið gert að umræðuefni bæði í dag og fyrr. Í öðru lagi eru það vaxtaákvarðanir, annaðhvort með beinum eða óbeinum hætti. Í þriðja lagi eru það verðbréfaviðskipti. Í fjórða lagi er takmörkun á erlendum lántökum og í fimmta lagi er svo að reyna að beita fortölum, eins og við höfum haft dæmin um, þar sem leitast er við að semja við viðskiptabankana um útlánastefnu.
Bindingin, eins og við höfum framkvæmt hana, hefur verið fyrst og fremst til þess að standa undir afurðalánunum. Hún hefur þess vegna ekki verið stjórntæki. Hún hefur bara verið fyrirgreiðsluform, eitt form af fyrirgreiðslu til að veita peningum ákveðinn hring í þjóðfélaginu, frá bönkunum til Seðlabankans og frá Seðlabankanum aftur til bankanna í öðrum hlutföllum en þetta var tekið af bönkunum í upphafi. Sem stjórntæki hefur bindingin þess vegna ekki verið virk. Vaxtaákvarðanirnar vitum við hvernig til hefur tekist með. Við bjuggum löngum við neikvæða raunvexti og ekki eru allir mjög sáttir við vaxtastefnuna eins og hún er núna.
Þriðja stjórntækið, verðbréfaviðskipti, hefur í rauninni ekki verið til, ekki á vegum Seðlabankans. Takmörkun á erlendum lántökum er fjórða stjórntækið. Hvað um það? Það hefur verið í höndum Alþingis, að heita hefur átt. Ég held að menn geti verið sammála um að ekki hafi tekist neitt sérlega vel til í þeim efnum, jafnvel að hafa það stjórntæki hjá Alþingi.
Fimmta stjórntækið er fortölurnar. Um það þekkjum við sögurnar og sjáum að það hefur nánast tekist hörmulega oftast nær.
Ég taldi og tel nauðsynlegt að þessi stjórntæki gætu verið virk að einhverju leyti. Með því að taka afurðalánakerfið út, eins og ég gerði tillögur um og nú hefur reyndar verið gert, átti bindingin að geta verið stjórntæki, en þá þurfti bindingin heldur ekki að vera upp úr öllu valdi, enda eru engin dæmi um það í nágrannalöndum okkar.
Vaxtatækinu taldi ég að unnt væri að beita með því að vaxtastig í landinu væri ákveðið í gegnum vexti Seðlabankans á viðskiptum sínum, eins og ég hef þegar gert grein fyrir.
En ekkert af þessu hefur í rauninni fengið neina sérstaka umfjöllun og kannske er sárast að ekki skuli hafa verið tekið á þeirri valdstreitu sem er milli Seðlabankans og ríkisstjórnarinnar eins og þessum málum er nú háttað.
Þegar flett er í gegnum þetta frv., eins og það liggur nú fyrir, slær það mann að aftur og aftur enda greinarnar á því að Seðlabankinn setji nánari reglur um þetta atriði: „Seðlabankinn setur nánari reglur um viðskipti sín samkvæmt þessari grein.“ „Seðlabankinn setur nánari reglur um grundvöll og framkvæmd.“ Grein eftir grein endar með þessum hætti.
Ég veit ekki hvort mönnum þykir þetta góð stjórnarstefna, góð lagasmíð. Sjálfsagt á bankamálanefndin þátt í þessum greinum mörgum hverjum. En ég held, hvort sem skoðun mín hefur verið sú þegar ég var í bankamálanefndinni eða ekki, að það sé eðlilegt að ráðherra hafi heldur meiri afskipti og ábyrgð í þessum málum. Það sé því hans að segja til um eða staðfesta flestar þær reglur sem Seðlabankinn setur sér í þessum efnum.
Eitt er það atriði sem ég held að sé nauðsynlegt að fjalla eilítið um vegna sérstaklega þeirrar umræðu sem í gangi hefur verið. Það er um útlán viðskiptabankanna til einstakra aðila. Í kaflanum um bankaeftirlit í þessu frv. er í 16. gr. sagt að bankaeftirlitið eigi að fylgjast með að útlán og aðrar skuldbindingar viðskiptaaðila við innlánsstofnun séu í samræmi við þá áhættu, sem í viðskiptunum felst, með hliðsjón af greiðslutryggingum, fjárhagslegum styrkleika innlánsstofnunar og eigin fé stofnunarinnar. Þarna er vísað m.a. til eigin fjár. Síðan segir:
„Sama gildir um heildarskuldbindingar fleiri en eins viðskiptaaðila sem eru svo fjárhagslega tengdir að með tilliti til útlánaáhættu verður að skoða sameiginlega skuldbindingar þeirra við innlánsstofnun.“
Ég held að rétt sé að það komi fram hér að í bankamálanefndinni var mikið rætt um hvort ekki væri ástæðá til að setja ákveðin mörk um það að viðskiptabanki mætti ekki lána nema tiltekna prósentutölu af eigin fé sínu til eins aðila. Menn stöldruðu kannske við prósentutölu eins og 35-40%. Hvers vegna varð ekki úr þessu? Vegna þess að menn uppgötvuðu að eins og bankakerfið er hjá okkur mundu a.m.k. 15-20 stærstu fyrirtækin í landinu, sem væru í viðskiptum við bankana, lenda ofan við þessi mörk og ættu í rauninni hvergi heima í viðskiptum ef þessi mörk væru sett. Stór hluti af skuldbindingum þeirra færi fram úr þessum mörkum.
Þetta var í rauninni staðfest í gær í svari viðskrh. við fsp. frá Jóhönnu Sigurðardóttur um það hversu stór hundraðshluti af eigin fé væri í útlánum til stærstu aðila. Þarna voru 14 fyrirtæki tilgreind sem voru með yfir 34% af eigin fé þessara banka. Framkvæmdin á ákvæði af þessu tagi er því ekki einföld og nefndin hreinlega treysti sér ekki til að taka á þessu atriði, svo að ég segi hlutina alveg nákvæmlega eins og þeir eru.
Skýringin er vitaskuld sú að bankakerfið hjá okkur er allt of veikt. Bankarnir eru svo litlir. Þeir geta ekki mætt þörfum fyrirtækjanna fyrir utan það að stundum vanda þeir sig ekki, eins og Útvegsbankinn gerði ekki í sambandi við eitt ákveðið fyrirtæki.
Þá kem ég að síðasta atriðinu, herra forseti, í þessari umfjöllun minni núna, nefnilega því að bankamálanefndinni var sett fyrir að skapa stærri og virkari heildir í bankakerfinu einmitt til að mæta þörfum fyrirtækjanna og atvinnulífsins. Í því máli brást bankamálanefndin gersamlega. Hún gerði ekkert í því.
Við Lúðvík Jósepsson lögðum til að Búnaðarbankinn og Útvegsbankinn yrðu sameinaðir með lögum og Alþingi tæki afstöðu til málsins. Meiri hluti nefndarinnar vísaði málinu frá sér til viðskrh. með sérstöku bréfi og óskaði eftir að hann skoðaði málið. Hann skipaði aðra nefnd sem skilaði svo áliti hér á dögunum þegar Hafskips- og Útvegsbankamálið var í sem mestu uppnámi.
Þetta verkefni eigum við óleyst, að skapa sterkari og virkari heildir. Það verkefni verður að leysa. Nú er tækifæri til þess. En kannske lægi næst fyrir að spyrja þá hæstv. viðskrh.: Hvað er að gerast í þeim efnum? Hvað er að gerast í málefnum Útvegsbankans? Hvað er að gerast í því að sameina Útvegsbankann t.d. Búnaðarbankanum eða koma betra skikki á skipulag bankamálanna í landinu að þessu leyti?
Umr. frestað.