06.02.1986
Sameinað þing: 42. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 2385 í B-deild Alþingistíðinda. (1989)
19. mál, málefni myndlistamanna
Heilbr.- og trmrh. (Ragnhildur Helgadóttir):
Herra forseti. Það er rétt, sem 1. flm. þessarar till., hv. 3. þm. Reykv., segir, að umræða fór fram um þetta mál þegar langt var liðið á síðasta þing.
Tildrög þessa máls eru í stuttu máli þau að ályktanir sem myndlistarþing hafði gert voru fluttar inn á Alþingi í formi þáltill. Alþb. Það kann að valda misskilningi því að því fer svo víðs fjarri að hér sé um að ræða sérstaklega mál Alþb. Hér er drepið á svo fjölmörg atriði sem sumpart eru fram undan, sumpart eru komin í framkvæmd og sumpart eru í vinnslu. Ég hygg að það hafi komið mjög rækilega í ljós þegar umræðan fór fram á þingi á s.l. vori að hér er um mál að ræða sem er ekki flokksmál neins einstaks heldur er sem betur fer, ég veit ekki betur, um að ræða sameiginlegt áhugámál þm. Ég held að það hljóti að vera svo að þessi listgrein, sem nýtur svo almenns áhuga í landinu og almenns stuðnings eins og á margan hátt má sjá í lífi almennings, eigi sér rúm í huga hvers einasta þm.
Hitt er annað mál að margt má betur gera og væri unnt að gera til að tengja listina betur ýmsum þáttum í hversdagslífi okkar og afkomu landsmanna. Ég vil þess vegna geta t.d. um eitt atriði sem ég tel að ríkisstj. ekki síst hafi sýnt mikinn áhuga. Það er vaxandi fræðsla í listiðnaði, listhönnun og slíkum greinum til að sameina listina og ýmiss konar hagnýta vinnu landsmanna í þeim tilgangi að listin njóti sín enn þá betur og setji meiri menningarsvip á það sem landsmenn framleiða. Þess vegna hafa verið á döfinni áætlanir um listiðnaðardeildir eða listhönnunardeildir í myndlistarskólum. Bæði hefur það mál verið í athugun að því er varðar Myndlistarskólann á Akureyri og eins varðandi Myndlista- og handíðaskóla Íslands.
Það má segja að nú sé það alls ekki mitt hlutverk sérstaklega að fjalla um einstök atriði þessa máls, en ég tel ástæðu til að benda á að ég veit að margir mikilvægir þættir þess sem um er fjallað í þessari till. eru í vinnslu í menntmrn. M.a. má nefna hið mikilvæga starf sem nefndin undir forustu Halldórs Blöndals hefur unnið. Í tíð forvera míns var byrjað á úttekt á þýðingu listanna í efnahagsmálum landsmanna og úr þeirri skýrslu vann svo Sveinn Einarsson, fyrrverandi þjóðleikhússtjóri, sem hafði verkefni með höndum í menntmrn. Hann vann úr þeirri skýrslu grg. sem fyrir liggur í því ráðuneyti. Ýmis atriði þessa máls eru því í fullum gangi.
Ég minni á að einn þm. Sjálfstfl., hv. núverandi 2. þm. Reykn., flutti á sínum tíma till. um aðild að Flórens-sáttmála og frv. í því sambandi. Þetta var samþykkt og þessu hefur ríkisstj. komið áfram á ýmsan veg.
Hv. þm. vék að Listasafni Sigurjóns Ólafssonar. Mér er óhætt að segja að um það hafi verið tekin ákvörðun og gerð skipulagsskrá þannig að því hafi þegar verið markaður fastur sess og á hvern veg það nýtur stuðnings opinberra aðila. Það tel ég vera mjög mikilvægan þátt í okkar listalífi. Það atriði liggur fyrir.
Enn fremur skal geta þess að studdar eru norrænar vinnustofur fyrir myndlistarmenn. Því máli hefur einnig verið sinnt og a.m.k. ein slík er komin upp. Hún er reyndar gefin af einkaaðilum. En það er stofnun sem vitanlega er á ýmsan veg til fyrirmyndar í þessu og sjálfsagt fyrir Íslendinga að taka þátt í þessu samstarfi.
Herra forseti. Hér er um mjög áhugavert mál að ræða, enda spannar það öll aðalatriði sem fram undan eru á sviði myndlistarinnar. Það var niðurstaða myndlistarþingsins þar sem fulltrúar allra greina myndlistar og fulltrúar opinberra aðila áttu sæti. Menn voru sammála um þau atriði sem þarna lágu fyrir.
Mér er óhætt að segja það fyrir hönd eftirmanns míns, sem nú hefur fjarvistarleyfi, að hann er áreiðanlega ekki minni áhugamaður um þessi efni en forverar hans. Ég þykist vita að hann hefði viljað eiga þess kost að ræða þetta mál. Til slíks gefst væntanlega tækifæri síðar á þinginu. Hæstv. forseti tekur þá afstöðu til þess hvort hann vill fresta umræðunni vegna fjarveru hæstv. ráðh. Það verður auðvitað í úrskurðarvaldi hæstv. forseta. En ég vildi draga þessi atriði fram.