28.10.1985
Neðri deild: 10. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 258 í B-deild Alþingistíðinda. (199)
54. mál, sveitarstjórnarlög
Hjörleifur Guttormsson:
Herra forseti. Ég vil þakka hæstv. félmrh. fyrir þau svör sem hann veitti við mínum fyrirspurnum hér. Að mínu mati voru þau ærið loðin svo ekki sé meira sagt. Það kom þó fram ákveðið frá hæstv. ráðh. að sem lokamarkmið teldi hann að stjórnsýslustig í, landinu ættu aðeins að vera tvö. Og óskamarkmið að hans mati, ef ég hef skilið hæstv. ráðh. rétt, sveitarfélög og ríki. En vegna þess hversu illa og seint hefur gengið um sameiningu sveitarfélaga taldi ráðherrann að eftir sem áður þyrfti um sinn að vera þarna ákveðið millistig og það eru þessar héraðsnefndir sem hann gerir hér tillögu um í sínu frv.
Það kom jafnframt fram að trú hæstv. félmrh. á að hér hefðu menn hitt naglann á höfuðið með ákvæðum IX. kafla þessa frv. er ekki ýkja sterk eins og heyra mátti á hans máli. Ég skil það vel því það kemur hér fram hjá mönnum við þessa umræðu að lítilla undirtekta sé að vænta við þetta frá hinum stjórnarflokknum, ef marka má þá tvo talsmenn Sjálfstfl. sem talað hafa hér við umræðuna.
Ég vil aðeins segja það hér til viðbótar mínu máli áður og áréttingar að ég tel að það horfi ekki þannig um sameiningu sveitarfélaga, né heldur frjálst samstarf þeirra, þótt góðra gjalda sé vert, að þar náist sú viðspyrna sem nauðsynleg er fyrir landsbyggðina alveg sérstaklega til þess að taka við ýmsum þeim þáttum sem ríkið nú hefur með höndum, nýjum verkefnum, né heldur til þess að taka á eigin málum af meira afli en nú er innan hinna tiltölulega smáu sveitarfélaga, þótt um samstarf sé að ræða í einstökum atriðum.
Hæstv. ráðh. taldi að sú samvinna sem þróast hefði væri vísir að því, það sterkur vísir, að lítið vanti á að menn stígi stór skref í átt til sameiningar. Það kom fram í hans máli. Ég gæti sagt: Betur að satt væri. Ég tel fjölmargt mæla með því að sveitarfélögin skipi sér í stærri og öflugri heildir en ég hef ekki sömu trú og hæstv. félmrh. á því að þetta sé í burðarliðnum, að þarna sé stórfelld breyting í burðarliðnum. Þess vegna m.a., og jafnvel þó að til slíkrar sameiningar kæmi í allríkum mæli, tel ég þörf á nýju stjórnsýslustigi í formi héraða eða fylkja - hvað menn vilja kalla slíkt og hvar menn vilja draga mörkin hef ég skilið eftir opið þó ég hafi skýrt mín sjónarmið í því efni, hversu stórar heildir ég gæti hugsað mér að hið þriðja stjórnsýslustig byggðist á, - og ég held að það sé alveg nauðsynlegt að menn stígi ákvarðandi skref í þessum efnum fyrr en seinna.
Byggðaþróunin í landinu er með þeim hætti að krafturinn er að þverra í sveitarfélögum og heilu landshlutunum. Vissulega vegna stjórnarstefnunnar og afleiðinga hennar ekki síst, en líka, litið til lengri tíma, vegna þeirrar þróunar sem orðið hefur í sambandi við stjórnsýslu í landinu og þá miklu miðstýringu sem við búum við í okkar stjórnkerfi og þann flótta fólks utan af landsbyggðinni, sem að nokkru stafar af samsöfnun valds og verkefna hér í Reykjavík.
Ég tel að þriðja stjórnsýslustigið sé tæki til þess að snúa þessari þróun við og ég sé ekki að við eigum völ á öðru tæki sem vænlegra sé til þess eins og nú háttar og mæli þó eindregið með því að sveitarfélögin leiti leiða til sameiningar og aukins samstarfs, eins og vissulega eru leiðir til, bæði án lagasetningar og innan ramma þess frv. sem hér er til umræðu. Þetta vildi ég árétta aðeins frekar, herra forseti.