06.02.1986
Sameinað þing: 42. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 2399 í B-deild Alþingistíðinda. (2000)
204. mál, bifreiðamál ríkisins
Valdimar Indriðason:
Herra forseti. Hv. flm. beindi því til mín hvort ég gæti upplýst hvernig þessi mál stæðu í bankaráði Útvegsbankans og skal ég leitast við að svara því. Þau voru tekin fyrir til afgreiðslu nú í febrúarmánuði. Eins og kom fram hjá þm. var þar farið eftir þeirri reglugerð sem bankamálaráðherra sendi bönkunum til að hafa til hliðsjónar í þessum málum. Niðurstaðan í Útvegsbankanum var sú að þar er það valkostur hvort bankastjórarnir vilja hafa bíl sem er í eigu bankans eða þá eiga hann sjálfir með þeirri reglu sem um var getið, en þar er sett þak á, þessi farkostur má ekki fara yfir 1 millj., bæði afskriftareglan og þeir bílar sem bankastjórum væru skaffaðir til afnota færu ekki yfir þá upphæð. (Gripið fram í.) Þetta er ekki afstaða fulltrúa Alþfl. í nýkjörnu bankaráði Útvegsbankans vegna þess að hann var búinn að taka aðra afstöðu í Landsbankanum, sem bankaráðsmaður þar, fyrir áramót og afgreiða málin þar á dálítið annan veg sem mér er þó ekki nákvæmlega kunnugt um. Hann gat ekki breytt þeirri ákvörðun sinni og er með sams konar bókun í bankaráði Útvegsbankans.