06.02.1986
Sameinað þing: 42. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 2400 í B-deild Alþingistíðinda. (2002)

204. mál, bifreiðamál ríkisins

Forseti (Þorv. Garðar Kristjánsson):

Það skal tekið fram í tilefni af orðum hv. 10. landsk. þm. að forseti mun taka til athugunar hugmyndir, sem þm. setti fram, um að umræður færu fram um störf og kjör alþm. Forseti mun ræða þessi mál við formenn þingflokkanna.