10.02.1986
Sameinað þing: 43. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 2413 í B-deild Alþingistíðinda. (2010)

Rannsókn kjörbréfs

Frsm. (Haraldur Ólafsson):

Herra forseti. Kjörbréfanefnd hefur kynnt sér gögn þessi og leggur til að kjörbréf Guðrúnar J. Halldórsdóttur verði samþykkt.

Það hefur komið fram að 1. og 2. varamaður Samtaka um kvennalista í Reykjavík hafa ekki talið sér fært að taka sæti þannig að til kasta 3. varamanns hefur komið.