10.02.1986
Efri deild: 46. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 2417 í B-deild Alþingistíðinda. (2015)

106. mál, greiðsluskilmálar húsnæðislána

Helgi Seljan:

Virðulegi forseti. Ég skal ekki hafa um þetta langt mál. Flm. hefur nú fengið æðimargar spurningar frá hv. 5. þm. Vesturl. um það hversu hann hyggist framkvæma það frv. sem hér liggur fyrir. Vissulega er gott að fræðast og fá upplýsingar um það og það fáum við örugglega á eftir hjá hv. flm.

Mér er miklu meiri forvitni á að vita um hvað þeir sem mestu ráða um þessi mál, flokksbræður hv. 5. þm. Vesturl., eru að hugsa í þessum málum og hvernig þeir ætla sér að framkvæma það sem þeir gáfu sem fegurst loforð um fyrir síðustu kosningar og skulu ekki rifjuð upp hér, en eitthvað minnir mig 80% lán til allra vera þar efst á baugi, 80% lán til langs tíma með góðum kjörum. Eitthvað hljómaði þetta kunnuglega á framboðsfundunum. (DA: Það var ekki í lögum.) Það var ekki í lögum, nei, enda hafa sumir þessir menn ekki einu sinni framfylgt lögum þó þau væru til í þessu landi yfir ýmislegt, hvað þá loforðum. Ég tek undir það með hv. 5. þm. Vesturl. að það er svo sem ekki við því að búast.

Ég skal ekki fara í neina efnislega umræðu um húsnæðismálin almennt þó á því væri vissulega full þörf. Við vitum það og erum sjálfsagt öll sammála um það, sem hér erum inni, að hér er hreyft því máli, hvort sem við deilum um form þess eða hvernig það skuli framkvæmast, sem heitast brennur á flestum.

Ég skal játa að ýmislegt hefur verið gert af hálfu Húsnæðisstofnunar ríkisins undir forustu hæstv. félmrh. til að létta greiðslubyrði af lánum Húsnæðisstofnunar og hlaupa undir bagga, síðast með hinum svokölluðu greiðsluerfiðleikalánum eða hvað þau heita nú, einhverju óþjálu nafni sem ég man ekki nákvæmlega hvað er. Vissulega er þetta allt til hjálpar og aðstoðar, en í mörgum tilfellum dugir það engan veginn til, eins og hv. flm. kom inn á, og ýmis átök í þessu efni hafa verið fálmkennd og ekki verið fylgt nógu vel eftir heldur þannig að menn hafa eftir þessa aðstoð að miklu leyti setið eftir í sömu vonlausu skuldasúpunni að undanteknum kannske 100 eða 150 þús. kr. sem hefur verð skuldbreytt til lengri tíma. Það segir lítið miðað við hvernig lánamálum þessa fólks er komið í dag.

Það er svo rétt að taka fram þegar við ræðum húsnæðismál almennt, þó það verði ekki gert hér nú að neinu marki, að vissulega hafa menn reist sér þar hurðarás um öxl í mörgum tilfellum. Við Íslendingar byggjum býsna stórt. Þó ég sé ekki að segja að menn eigi ekki að vera djarfir og stórhuga hefur mér þótt sem sú kynslóð sem nú er að byggja og hefur verið að byggja á undanförnum árum og jafnvel áratugum hafi byggt býsna vel yfir sig hvað stærð og rými snertir. Þetta segi ég vegna þess að mér þykir stökkið svo gífurlegt frá þeim ótrúlega þröngu húsakynnum sem menn bjuggu við áður, og mátti kannske miðla mun, eða það að fara út í þau félagsheimili, sem ég kalla svo, sem margir byggja í dag.

En kannske er það ekki það fólk, sem félagsheimilin byggir, sem við erum að tala um nú. Ég hygg að flest af því fólki sem byggir stærst og veglegast hafi nokkurn veginn allt sitt á hreinu og sigli sléttan sjó.

En hv. flm. kom alveg sérstaklega inn á lánastofnanirnar, bankana þá alveg sér í lagi. Ég veit að það hafa komið fram yfirlýsingar frá stjórnvöldum um að þess yrði leitað við bankana að lán þar yrðu lengd. Ég fullyrði hins vegar hér að því hefur ekki verið fylgt eftir, alls ekki á þann máta sem nauðsynlegt var, og tregða í bankakerfinu hefur óneitanlega verið allt of mikil til þess annars vegar að veita mönnum fullnægjandi aðstoð, aðstoð sem dygði. Niðurskurðarstefnan þar hefur verið svo gífurlega mikið allsráðandi að ef maður hefur beðið um t.d. 200 þús. og þurft 200 þús. og getað bjargast með það með skikkanlegum samningum hefur hann fengið 100 þús. sem hefur þá engan veginn nægt og maðurinn hefur kannske staðið verr eftir en áður. Þetta þekkjum við mýmörg dæmi um og svo hins vegar það að lánin séu til allt of skamms tíma.

Vitanlega er það rétt hjá hv. flm. að engin lánastofnun er bættari með því að gera fólk vísvitandi, ég segi vísvitandi, með þessum hætti að vanskilafólki þar sem það lendir í meiri og minni erfiðleikum með þá örðugu greiðslubyrði og þær hröðu greiðslur sem af þessum lánum eru. Ég geri mér hins vegar vonir um það nú að í framhaldi af þeim samningum sem nú standa yfir á vinnumarkaðnum og ríkisstj. er að vissu leyti aðili að, en er auðvitað fyrst og fremst milli vinnuveitenda og verkalýðsfélaganna og launþegasamtakanna, kunni að koma verulegar úrbætur. Ég fagna því að í þeim samningum er nú lögð mikil áhersla á verulegt átak í húsnæðismálum sem er vitanlega komin til af mikilli þörf og mikilli neyð fjölmargra þeirra sem í þessum launþegasamtökum eru. Þar af leiðandi er það eðlilegt og sjálfsagt og ekki þakkarvert að launþegasamtökin skuli reisa þetta merki jafnrækilega og þau gera núna og bera vonandi gæfu til að gera meira en reisa það, fylgja því eftir þannig að úrbætur verði að veruleika.

Það má vissulega vænta margra góðra hluta úr þeim viðræðum sem nú fara fram og ég geri mér vonir um að menn nái þar landi á þann hátt að launafólk megi í einhverju rétta verulega sinn hlut. En mín lokaorð skulu þau að mikilvægast af þessu öllu er kannske það ef varanleg lausn, m.a. í gegnum lífeyrissjóðakerfið okkar, mætti finnast út úr samningum nú með aðstoð ríkisvaldsins á húsnæðismálum þess fólks sem í mestum vanda er í dag.