11.02.1986
Sameinað þing: 44. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 2444 í B-deild Alþingistíðinda. (2030)

217. mál, stefnumörkun í menningarmálum

Fyrirspyrjandi (Helgi Seljan):

Herra forseti. Ég mæli fá orð fyrir fsp. um stefnumörkun í menningarmálum sem ég flyt ásamt hv. 10. landsk. þm. Guðrúnu Helgadóttur og er svohljóðandi til hæstv. menntmrh.:

„Hyggst menntmrh. beita sér fyrir vinnu að ákveðinni stefnumörkun í menningarmálum í samráði við helstu áhugaaðila um menningarstefnu?"

Tilefni þessarar fsp. er af tvennum toga. Annars vegar fluttum við fyrirspyrjendur fyrir nokkrum árum till. til þál. um stefnumörkun í menningarmálum þar sem sagði svo, með leyfi hæstv. forseta:

„Alþingi ályktar að fela ríkisstj. að beita sér fyrir gerð almennrar stefnumörkunar í menningarmálum í því skyni að jafnt atvinnu- sem áhugamennska í þessum efnum hafi við ákveðnari viðmiðun að styðjast frá hálfu ríkisvaldsins, ekki síst varðandi einstök menningarleg átök, viss forgangsverkefni sem út undan hafa orðið og aukna tryggingu fyrir eðlilegum skipulegum fjárhagsstuðningi við alhliða menningarstarfsemi. Í því efni þarf að kanna sem best allar mögulegar leiðir, beinar sem óbeinar, til aðstoðar áhugafélögum á hinum ýmsu sviðum listsköpunar. Sömuleiðis hvernig best megi auka stuðning hins opinbera við íslenska menningarstarfsemi með beinum fjárframlögum, niðurfellingu ýmissa tolla og skatta og með öðrum örvandi áhrifum.“

Af hálfu okkar flm. þá var lögð rík áhersla á að hér ætti ekki að vera um opinbera forsjá að ræða, enn síður valdboð að ofan um menningarstefnu.

Grg. okkar var að meginhluta unnin af ágætu kunnáttufólki, Nirði P. Njarðvík rithöfundi, sem þá var í forsvari sinna samtaka, og Helgu Hjörvar, þáverandi framkvæmdastjóra Bandalags ísl. leikfélaga, núverandi skólastjóra Leiklistarskólans.

Um þetta mál urðu nokkrar umræður með og móti, en það fékk þó ekki þær undirtektir sem við höfðum vænst.

Hitt tilefnið var ádrepa Sigurðar A. Magnússonar rithöfundar á síðasta degi liðins árs við afhendingu styrks til hans úr Rithöfundasjóði Ríkisútvarpsins, ádrepa sem eftir var tekið og, hvort sem menn eru sammála eður ei, ádrepa um stefnuleysi í menningarmálum almennt. Þessi ádrepa ýtti einnig við tillögumönnum. Sjálfsagt þykir því að spyrja hæstv. menntmrh. hvort hann hyggist beita sér fyrir vinnu að ákveðinni stefnumörkun í þessum málum eður ei.