11.02.1986
Sameinað þing: 45. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 2458 í B-deild Alþingistíðinda. (2055)

Verðlagning á olíuvörum

Páll Pétursson:

Herra forseti. Ég held að það sé óþarfi að tala um svartnætti í sambandi við þær kenningar sem við hæstv. viðskrh. höfum haft á lofti. Ég held að það sé miklu réttara að kenna þær við raunsæi. Ég bið menn að minnast orða minna þegar olían hækkar aftur. Heldur virkilega hv. 3. þm. Reykn. Kjartan Jóhannsson að olíuverð haldi áfram að lækka í það óendanlega eða heldur hann kannske að það stöðvist og komist á jafnvægi niðri í öldudalnum? Ég held að það sé óraunhæf bjartsýni að ímynda sér það.

Það eru ákveðnir kostir við núverandi fyrirkomulag og ákveðnir gallar á núverandi olíuverslunarfyrirkomulagi. Við höldum uppi þreföldu dreifingarkerfi og það er mjög dýrt og sumt af fjárfestingu olíufélaganna sér maður ekki að sé nauðsynlegt. En það eru áberandi kostir við núverandi kerfi líka og þeim megum við ekki gleyma. Það er t.d. sama verð um land allt og olíuviðskiptin við Sovétríkin hafa reynst okkur vel og reynst okkur tiltölulega hagstæð.

Það var rétt hjá hv. þm. Kjartani Jóhannssyni að minna á það sem hann gerði í olíumálum þegar hann var viðskrh. Hann lét Morgunblaðið æsa sig upp í að gera ákaflega óviturlegan samning við Breta og við töpuðum á því milljónatugum.