11.02.1986
Sameinað þing: 45. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 2459 í B-deild Alþingistíðinda. (2058)
Verðlagning á olíuvörum
Kjartan Jóhannsson:
Herra forseti. Ég þakka tillitssemina. Páll Pétursson sagði að ég hefði klúðrað samningnum við Breta. Ég undirbjó samninginn við Breta. Það var hv. þáv. þm. og ráðherra Tómas Árnason, flokksbróðir Páls Péturssonar, sem gekk frá samningnum og klúðraði honum.