11.02.1986
Sameinað þing: 45. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 2469 í B-deild Alþingistíðinda. (2067)

124. mál, bann við framleiðslu hergagna

Flm. (Guðrún Agnarsdóttir):

Herra forseti. Ég þakka stuðningsorð við þessa till. Ég vildi segja nokkur orð í tilefni af máli hæstv. utanrrh. Ég vil byrja á því að taka það fram að það eru alveg ákveðnar hugmyndir sem gefa tilefni til þess að þessi till. er flutt. Það er vegna viðtala í ríkisfjölmiðli, í útvarpi, bæði við samráðherra hæstv. utanrrh., hæstv. félmrh., og formann starfshóps sem unnið hafði skýrslu á vegum félmrn. Þau ummæli, sem þar voru viðhöfð, gáfu tilefni til flutnings till.

Hæstv. utanrrh. talaði um að mörkin væru nákvæm á milli þess hvort væri verið að framleiða hátæknibúnað fyrir vígbúnað og hergögn eða til nytsamlegra hluta. Vandamálið er að mínu viti einmitt ekki að mörkin eru nákvæm. Vandamálið er fyrst og fremst það að mörkin eru mjög óljós og grá. Fjársveltir vísindamenn geta beygt sig og teygt talsvert langt með því að svæfa siðferðisvitund sína til þess að ná sér í fé til að vinna að vísindum sínum ef þeir fá ekki það öðruvísi. Og reyndin hefur orðið sú, eins og hv. 5. þm. Austurl. var að vitna til áðan, að vísindamenn víða um veröld hafa látið hafa sig út í það að sækja fé í draumórakenndar og stórhættulegar áætlanir um stjörnustríð fyrst og fremst til þess að útvega sér fjármagn til að starfa.

Ég tel því mjög hættulegt ef ekki vaknar umræða um þessi mál að slíkar athugasemdir falli óáreittar sem komu fram í því viðtali sem ég áður gat um. Það er alveg ljóst að t.d. kjarnorkueldflaug er í raun einskis nýt, má segja, ef henni fylgir ekki burðarvagn og skotpallur. En það má hefja viðræður við siðferðiskennd sína og segja: Ég er ekki að smíða vopn, ég er bara að smíða vagn eða pall. Það er ekki vopn sem ég er að smíða. En eldflaugin er gagnslaus, það er ekki hægt að skjóta henni, hún kemst ekki á áfangastað nema hún hafi burðarvagn og skotpall. Mörkin eru mjög óljós og grá. En ég held að umræðan um þessi mörk sé mjög þörf og reyndar nauðsynleg í kjölfar þeirra orða sem féllu í áðurnefndu viðtali.