11.02.1986
Sameinað þing: 45. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 2477 í B-deild Alþingistíðinda. (2072)
187. mál, frysting kjarnorkuvopna
Flm. (Páll Pétursson):
Herra forseti. Ég vil byrja á að þakka hæstv. utanrrh. fyrir hans innlegg, en ég verð þó að lýsa því að ég varð fyrir talsverðum vonbrigðum því ég sá ekki fyrir að hann gæti lagst gegn samþykkt þeirrar tillögu sem hér er til umræðu.
Mér fannst reyndar hluti af ræðu hæstv. utanrrh. nokkuð utan brautar og ekki beinlínis vera umræða á grundvelli þeirrar tillögu sem hér er á dagskrá. Hann er fremur að svara öðrum tillögum sem síðar eru á dagskránni um svipað efni.
Ályktun Alþingis frá 23. maí 1985 er grundvöllur að afstöðu Íslendinga til afvopnunarmála og við eigum að standa á þeim grundvelli. Ég er ekki að biðja um neitt annað, en ég bið um að það sé staðið við ályktunina frá 23. maí. Við erum ekki að biðja um það með þessari tillögu að Ísland greiði texta tillögu Svíþjóðar og Mexíkó óbreyttum atkvæði. Við erum að biðja um að samræmd verði afstaða Svía, Norðmanna, Dana og Finna og okkar Íslendinga.
Hæstv. utanrrh. fór mörgum orðum um afstöðu Norðmanna. Ég læt þær söguskýringar liggja á milli hluta.
Ég er ekki sammála skoðun hæstv. utanrrh. að ekki sé ástæða til að samþykkja þessa tillögu. Ég tel að það sé rétt og nauðsynlegt að samþykkja tillöguna og rétt og nauðsynlegt að Ísland standi fyrir sameiginlegum tillöguflutningi Norðurlanda. Það er rétt að vonir hafa vaknað um breytt andrúmsloft og það er rétt að Norðurlönd leggi sitt lóð á þá vogarskál að þrýsta Gorbatsjoff og Reagan til samninga. Samþykkt þeirrar till. sem hér um ræðir er rökrétt framhald af ályktun Alþingis frá 23. maí. Ég mun leggja áherslu á að Alþingi álykti í vor í rökréttu framhaldi af ályktuninni frá í fyrravor. Þar með kæmust við í stöðu til þess að fá samþykkta á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna næsta haust tillögu sem við gætum verið ánægðir með. Ég legg áherslu á að menn reyni að varðveita einingu um þessi viðkvæmu og mikilvægu mál. Við tillögumenn þykjumst hafa lagt okkur í framkróka um að varðveita þá einingu og ég vona að aðrir verði ekki til þess að spilla henni.