11.02.1986
Sameinað þing: 45. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 2481 í B-deild Alþingistíðinda. (2076)
188. mál, frysting kjarnorkuvopna
Utanrrh. (Matthías Á. Mathiesen):
Herra forseti. Í sambandi við þá till. sem hér er til umræðu leyfi ég mér að vísa að verulegu leyti og öllu til þeirrar ræðu sem ég flutti áðan við umræður um till. á þskj. 223 og til þeirra raka sem ég þar bar fram. Ég vil þó leyfa mér að víkja að tveimur atriðum sem fram komu í ræðu hv. 3. landsk. þm. þar sem vikið var að hlutverki utanrrh. og því valdi sem hann hefði til ákvarðanatöku um atkvæðagreiðslu eins og í þessu máli á s.l. hausti.
Hæstv. þáverandi utanrrh. gerði grein fyrir því í utandagskrárumræðunum 5. desember um leið og hann las upp ályktun Alþingis frá 1985 og benti á að afstaða hans til atkvæðagreiðslunnar á þingi Sameinuðu þjóðanna væri fullkomlega í samræmi við þá ályktun sem Alþingi hafði gert. Hv. þm. orðaði það svo að það hefði verið skilyrði fyrrverandi utanrrh. Það er skýrt tekið fram í ályktun Alþingis með hvaða hætti Alþingi styður það sem hér er um að ræða. Það eru þau skilyrði sem ályktun Alþingis fjallar um sem gera verður kröfu til að séu fyrir hendi til þess að hægt sé að styðja slíka tillögu sem reynt hefur verið að gera og það hefur verið reynt að fá fram breytingar á tillögu Svíþjóðar og Mexíkó í samræmi við ályktun Alþingis, en það ekki tekist því miður.
Hv. þm. vék að orðum sem ég sagði, þ.e. að það hefðu verið innanlandsstjórnmál í Noregi sem réðu afstöðu Norðmanna. Ég var einmitt að undirstrika að það voru sérstakar aðstæður að kosningum loknum sem urðu þess valdandi hvernig Norðmenn greiddu atkvæði, en grg. sem fylgdi sýndi að það var ekki breyting á þeim skoðunum sem þeir höfðu á tillögunni á allsherjarþinginu 1984. Það voru sömu skoðanir sem þeir höfðu 1985, en af þessum sérstöku ástæðum töldu þeir þó rétt að greiða atkvæði með tillögunni.