11.02.1986
Sameinað þing: 45. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 2489 í B-deild Alþingistíðinda. (2082)
189. mál, afstaða Íslands til stöðvunar kjarnorkuvígbúnaðar
Flm. (Hjörleifur Guttormsson):
Herra forseti. Ég hef ekki miklu við að bæta eftir ræðu hæstv. utanrrh. áðan, þakka honum fyrir að láta skoðanir sínar í ljós í þessari umræðu og ég vænti þess að við hann megi takast gott samstarf þótt skoðanir séu skiptar í ýmsum efnum að því er þessi mál varðar.
Ég vil að endingu, þar sem ég hygg að umræða þessi sé senn á enda og máli þessu verði vísað til nefndar, ítreka að við hljótum hér á Alþingi Íslendinga, að því vil ég a.m.k. stuðla, að taka afstöðu til svo brýnna og stefnumarkandi mála, eins og spurningarinnar um frystingu kjarnavopna sem lágmarksaðgerð, á þinginu sjálfu og á alþjóðavettvangi þannig að ótvírætt sé. Ég mun beita mér fyrir því, ef hliðstæðar tillögur koma fram á vettvangi Sameinuðu þjóðanna næsta haust og svo fremi að ég sitji þá á þingi, að tekin verði afstaða til þeirra hér áður en málin koma til afgreiðslu og atkvæða á vettvangi Sameinuðu þjóðanna þannig að ekki fari eins og gerðist í desember s.l. að Ísland standi þar eitt uppi Norðurlanda með sérstöðu í máli þar sem að margra mati, og ég heyrði það einnig á máli hv. þm. Páls Péturssonar, voru bornar við ástæður og efni í ályktunartillögu Alþingis sem hann taldi ekki réttar. Við slíkar aðstæður ber Alþingi að skýra afstöðu sína og móta stefnu fyrir Íslands hönd eða a.m.k. að gera kröfu til réttra stjórnvalda um að stefnumótun þingsins sé fylgt eftir.