11.02.1986
Sameinað þing: 45. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 2490 í B-deild Alþingistíðinda. (2084)

210. mál, kostnaður vegna getnaðarvarna

Flm. (Kristín Halldórsdóttir):

Herra forseti. Ásamt hv. þm. Guðrúnu Agnarsdóttur og Sigríði Dúnu Kristmundsdóttur leyfi ég mér að bera fram till. til þál. um þátttöku sjúkrasamlaga í kostnaði vegna getnaðarvarna. Till. er á þskj. 438 og hljóðar svo, með leyfi forseta:

„Alþingi ályktar að fela heilbrrh. að hrinda nú þegar í framkvæmd ákvæði 5. gr. laga nr. 25/1975 þess efnis að sjúkrasamlög greiði sinn hluta af kostnaði við getnaðarvarnir.“

Ég vil taka það fram þegar í upphafi máls míns að till. þessi er aðeins einn liður í átaki sem við þingkonur Kvennalistans leggjum til að gert sé til þess að efla fræðslu um kynlíf og barneignir og stuðla að aukinni notkun getnaðarvarna. Þessi aðgerð er eitt af því sem við teljum vænlegt til árangurs til að fækka ótímabærum þungunum sem oft enda með fóstureyðingu. Um aðrar aðgerðir til úrbóta vísast til till. okkar á þskj. 439 sem mælt verður fyrir síðar.

Þegar lögin um ráðgjöf og fræðslu varðandi kynlíf og barneignir og um fóstureyðingar og ófrjósemisaðgerðir voru sett árið 1975 var mjög réttilega, að okkar mati, lögð áhersla á fyrirbyggjandi aðgerðir. Framkvæmdir hafa hins vegar ekki fylgt í kjölfar lagasetningarinnar svo að viðunandi sé. Í lögum nr. 25/1975 segir m.a. svo í 5. gr., með leyfi forseta:

„Unnið skal að því að auðvelda almenningi útvegun getnaðarvarna m.a. með því að sjúkrasamlag taki þátt í kostnaðinum.“

Er skemmst frá því að segja að þessu ákvæði hefur aldrei verið framfylgt og svör heilbrigðisyfirvalda við ítrekuðum fyrirspurnum undanfarin ár gefa ekki tilefni til bjartsýni. Því er hér gripið til þess ráðs að fá Alþingi til að árétta þann vilja sinn sem bundinn var í lagagrein þegar fyrir 11 árum.

Í september 1985 gaf landlæknisembættið út skýrslu sem Guðrún Sigríður Vilhjálmsdóttir tók saman um fóstureyðingar árin 1976-1983 og helstu breytingar sem orðið hafa í kjölfar laga nr. 25/1975. Þar er margvíslegar upplýsingar að finna, m.a. um notkun getnaðarvarna. Er greinilegt að því yngri sem konurnar eru þeim mun minni er notkun getnaðarvarna. Er það í sjálfu sér skiljanlegt, ekki síst með tilliti til allt of lítillar fræðslu í þessum efnum.

Ætla má að fyrirhöfnin og kostnaðurinn við útvegun getnaðarvarna vaxi mörgum í augum, ekki síst ungu og reynslulitlu fólki. Mikilvægt er því að fækka hindrunum eftir föngum og hvetja beinlínis til notkunar getnaðarvarna m.a. með því að draga úr kostnaðinum. Það mætti t.d. gera með því að hafa sjálfsala með verjum á almannafæri og hugsanlega mætti greiða slíkar verjur niður. Sú getnaðarvörn, sem sjúkrasamlög helst geta þó greitt niður, eins og þessi þáltill. gerir ráð fyrir, er að sjálfsögðu pillan svonefnda sem er mikið notuð getnaðarvörn.

Því miður liggja ekki fyrir óyggjandi upplýsingar um heildarnotkun getnaðarvarna hér á landi. Nýjustu heimildir er að hafa í tímaritinu Heilbrigðismál, sem Krabbameinsfélag Íslands gefur út, 2. tbl. 30. árg. frá 1982. Þar segir m.a. svo í grein eftir Jónas Ragnarsson, annan af ritstjórum blaðsins, með leyfi forseta:

„Það var fyrst árið 1971 sem farið var að spyrja um notkun getnaðarvarna hjá þeim konum sem komu í hópskoðun vegna leitar að leghálskrabbameini. Þá reyndust 36% kvenna á aldrinum 20-44 ára nota pilluna og 11% lykkjuna. Síðan hefur notkun lykkjunnar aukist mjög mikið, eða í 34% árið 1981, og notkun pillunnar minnkað verulega, eða í 21%, og hefur reyndar verið óbreytt síðustu 3 ár, vegið meðaltal hvert ár. Heildarnotkun þessara tveggja algengustu getnaðarvarna kvenna hefur því aukist á einum áratug úr 47% í 55%.

Sé litið á notkun þessara getnaðarvarna eftir aldursflokkum árið 1981, þá sést að yngstu konurnar nota pilluna mest, 34% á aldrinum 20-24 ára, en síðan dregur jafnt og þétt úr notkuninni og er 7% kvenna 40-44 ára. Hins vegar er lykkjan vinsælust á aldrinum 30-34 ára, 44%. Samanlögð notkun þessara tveggja getnaðarvarna er mest á aldrinum 25-34 ára, 61%. Auknar vinsældir lykkjunnar síðasta áratug á kostnað pillunnar hafa dreifst nokkuð jafnt á alla aldursflokka.“

Síðar segir svo í sömu grein: „Miðað við heildarfjölda kvenna á aldrinum 20-44 ára má áætla að meira en 8000 íslenskar konur á þessum aldri noti pilluna. Við það má svo bæta pillusölu til þeirra sem eru undir tvítugsaldri og 45 ára eða eldri. Heildarnotkun getnaðarvarnapilla er því nokkuð á þriðju milljón stykkja á ári hérlendis.“

Þegar við grennsluðumst fyrir um kostnað vegna getnaðarvarna kom í ljós að hann er ákaflega mismunandi. Sem dæmi má nefna að hægt er að fá lykkjuna fyrir 500 kr. á Heilsuverndarstöðinni í Reykjavík en það mun hins vegar kosta um 1500 kr. að fá lykkjuna hjá sérfræðingi á venjulegri.stofu. Rétt er svo að hafa í huga að konum, sem ekki hafa eignast barn, er síður ráðlagt að nota lykkjuna.

Það segir sig því sjálft að það er hin víðfræga pilla sem er helsta getnaðarvörn ungra stúlkna. Hún er yfirleitt afgreidd í þriggja mánaða skömmtum sem eru misdýrir eftir tegundum, en sem dæmi má taka mjög algenga tegund sem kostar 442 kr. skammturinn. Nú greiðir neytandi 310 kr. fyrir samlagsskylt erlent lyf út úr lyfjabúð. Hér er því um 132 kr. mismun að ræða og þykir vafalaust mörgum ekki há upphæð. Höfum við enda fengið nokkur viðbrögð við því síðan þessi till. kom fram. En skólastúlku eða lágtekjumanneskju með allt niður í 97 kr. í tímakaup munar sannarlega um hverja krónu. Þetta er heldur ekki eini kostnaðurinn því að heimsókn til læknis og útvegun lyfsins í hvert skipti kostar sitt auk þess sem reglubundið eftirlit er í öllum tilvikum nauðsynlegt.

Hér hefur fyrst og fremst verið fjallað um getnaðarvarnir fyrir konur þótt ekki sé síður nauðsynlegt að hvetja til aukinnar notkunar getnaðarvarna fyrir karla. Ég nefndi áðan þá leið að hafa sjálfsala með slíkum verjum á almannafæri en fullyrða má að torvelt aðgengi að þessum hlutum hafi hindrað marga, sérstaklega unga pilta, í útvegun þeirra. Margt fleira mætti gera í þessum efnum sem ég kem nánar inn á í framsögu fyrir till. okkar Kvennalistakvenna á þskj. 439.

Skv. fyrrgreindri skýrslu landlæknisembættisins um fóstureyðingar árin 1976-1983 höfðu engar getnaðarvarnir verið notaðar í um 70% tilvika þegar þungun varð. Tíðni fóstureyðinga var tiltölulega há meðal kvenna 25 ára og yngri, enn fremur meðal áður giftra kvenna, þ.e. fráskildra eða ekkna, svo og meðal einstæðra mæðra sem reyndar eru einnig að stórum hluta áður giftar. En þetta eru einmitt þær sem ætla má að hafi síst efni á og aðstæður til að nota getnaðarvarnir eins og pilluna að staðaldri.

Ótímabær þungun er alltaf áfall, ekki síst kornungum stúlkum, og neyta verður allra ráða til að koma í veg fyrir slík tilvik, m.a. með því að auðvelda notkun getnaðarvarna. Það er markmiðið með þessari tillögu okkar þingkvenna Kvennalistans. Með tilliti til félagslegrar stöðu kvenna, sem að stórum hluta skipa láglaunahópa þjóðfélagsins, hlýtur að teljast sanngirnismál að kostnaður vegna getnaðarvarna sé að hluta greiddur úr sameiginlegum sjóði eins og raunar Alþingi kvað á um með setningu laga nr. 25/1975. Að þessari till. samþykktri yrði vart undan vikist að framkvæma ákvæði 5. gr. laganna um þátttöku sjúkrasamlaga í kostnaði vegna getnaðarvarna.

Herra forseti. Að lokinni umræðu um till. okkar legg ég til að henni verði vísað til hv. félmn.

Umr. (atkvgr.) frestað.