11.02.1986
Sameinað þing: 45. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 2497 í B-deild Alþingistíðinda. (2088)
235. mál, loðdýrarækt
Egill Jónsson:
Herra forseti. Ég skal ekki tefja þessa umræðu sem hefur raunar verið ágæt. Ég vil hins vegar taka undir það sem hér hefur komið fram um þakklæti til flm. fyrir að flytja þetta mál á Alþingi.
Það liggur ljóst fyrir að nokkuð ákveðnar aðgerðir í skipulagsmálum í hefðbundnum búgreinum eiga sér nú stað. Unnið er eftir nokkuð föstum áformum við að draga úr framleiðslu í hefðbundnum búgreinum. Raunar hefur hún átt sér stað í sambandi við sauðfjárræktina þannig að þar má ekki meira að gera. Miðað við hin svokölluðu kvótaár, árin 1976, 1977 og 1978, hefur samdráttur í sauðfjárrækt núna numið yfir 17%. Mjólkurframleiðslan er hins vegar ekki farin að dragast saman að marki frá því sem þá var. Þess vegna heyrast kannske þungar og háværar raddir þessa síðustu daga þar sem menn verða vitni að því að í þessum efnum standa menn í sömu sporum og þeir gerðu fyrir 1980 þrátt fyrir að alltaf væri verið með boðskap um samdrátt og stjórn.
Það er ekki síst af þessari ástæðu að mikil þörf er á að hyggja að öðrum verkefnum í sveitum landsins. Þar er loðdýraræktin nærtækasta dæmið. Sjálfur hef ég orðið vitni að því að loðdýrarækt hefur tekist vel, sums staðar jafnvel mjög vel. Ég tek undir það, sem hv. 2. þm. Austurl. Helgi Seljan sagði áðan, að í raun og veru er undravert að bera saman frjósemistölur sem lýsa árangri bænda hér á landi miðað við það sem er annars staðar þar sem þessi búskapur er stundaður, en þar kemur í ljós að íslenskir bændur standa alveg jafnfætis því sem best gerist í þeim efnum.
Mikilvægi þessarar till. byggist fyrst og fremst á því að gert verði átak til að valda þann árangur og það starf sem hér hefur farið fram. Þá er áreiðanlega tvennt langsamlega mikilvægast. Það er aukin fræðsla og það er bætt skipulag í sambandi við fóðurstöðvarnar og aukið fjármagn til þeirra, m.a. vegna þess að það er ekki hægt að fullnýta þær nema á lengri tíma vegna þess að framleiðslan er að sjálfsögðu í lágmarki meðan greinin vex ekki meira.
Í þeim efnum vil ég leggja sérstaka áherslu á, og þá ekki síst vegna ummæla síðasta ræðumanns þar sem hann var að tala um byggingu á frystigeymslum, að þar verða menn sérstaklega að huga að öllum þeim miklu og stóru frystigeymslum sem til eru í landinu. Það er hreint óráð að fara að byggja frystigeymslur við loðdýrabúin hvort sem það er sameiginlega eða eitt út af fyrir sig. Við höfum gífurlega miklar frystigeymslur. Ég hef séð þess merki að þetta hefur verið tvinnað saman prýðilega vel. Ég nefni t.d. norður í Vopnafirði og ég nefni það sem núna er verið að vinna að á Höfn í Hornafirði. Þarna þarf held ég mjög óvíða að koma til ný fjárfesting. Þetta eru varnaðarorð.
En að öðru leyti endurtek ég þakklæti mitt til flm. og raunar get ég tekið undir flest af því sem hefur komið fram í þessari umræðu.