11.02.1986
Efri deild: 47. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 2503 í B-deild Alþingistíðinda. (2096)
248. mál, póstlög
Skúli Alexandersson:
Virðulegi forseti. Ég ítreka fsp. sem hv. 5. landsk. þm. flutti í sambandi við það sem kemur hér fram í athugasemdunum um stöðu póstgíróstofunnar og þau nýmæli sem ráðherra hafði lagt til að væru tekin inn í frv., hvort og af hverju þau standa ekki áfram.
Að öðru leyti fagna ég því að þetta frv. er fram komið. Ég tel að þetta mál þurfi að skoða allvel og rækilega í nefnd. Það eru það margþættar spurningar sem menn velta fyrir sér í sambandi við póstþjónustuna, bæði hve hún er misjöfn gagnvart vissum hlutum landsbyggðar og aðra þætti sem þm. hafa ábyggilega áhuga á að skoða.
Það er vissulega kominn tími til að þessi lög verði endurskoðuð. Um póstþjónustuna gilda lög frá 1940, 46 ára gömul lög. Ég lýsi því þess vegna yfir að ég fagna því að þetta frv. er hér komið fram. Ég legg áherslu á að þeir þættir sem hv. þm. Kolbrún Jónsdóttir nefndi áðan, um vissan einkarétt póstþjónustunnar, og aðrir sem eru til umræðu manna á meðal og varða þann einkarétt sem póstþjónustan hefur á vissum sviðum verði skoðaðir vel og rækilega í nefnd.
Hv. formaður samgn. er ekki staddur í salnum, en ég treysti því að þetta frv., eins og önnur þau frv. sem hann hefur fengið til umfjöllunar, verði vel skoðað af nefndinni.