11.02.1986
Efri deild: 47. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 2504 í B-deild Alþingistíðinda. (2098)

248. mál, póstlög

Eiður Guðnason:

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðh. fyrir hans svör. Ég á ekki sæti í þeirri nefnd sem fær þetta mál til umfjöllunar. Ég vil því mælast til þess að deildarmenn fái að sjá ákvæðin, sem voru felld niður úr frv. eins og nefndin skilaði því, þannig að hv. þm. í þessari deild hafi þá tækifæri til að flytja þessa tillögu ef nefndin kýs ekki að gera það. Ég er þeirrar skoðunar að á ýmsan hátt megi auka og bæta þá þjónustu sem póstgírókerfið veitir og ég held að það geti kannske að sumu leyti verið hagkvæmara að það sé gert á þeim vettvangi heldur en að bankakerfið sé sjálfgefið ódýrari og betri kostur.

Það er auðvitað rétt, sem hæstv. ráðherra segir, að hér þykja vera býsna margir bankar, en þá verða menn líka að hafa það í huga að bankar í dag gegna allt öðrum hlutverkum en bankar gegndu fyrir 15-20 árum. Pósthús gegna líka allt öðrum hlutverkum nú en pósthús gerðu fyrir 10 árum, að ekki sé tekinn skemmri tími. (Samgrh.: Þetta vill oft gleymast.) Já, það er rétt. Þetta gleymist þegar menn eru að tala um þessa aukningu. Þetta eru alls ekki sömu stofnanirnar, sem verið er að tala um í dag, og talað var um fyrir 10-12 árum. Það er auðvitað hárrétt, sem kom fram líka hjá hæstv. ráðherra, að þó svo að hér sé að forminu til einokun Pósts og síma á svona flutningum vita það allir, sem hafa einhver skipti við landsbyggðina, að þessi einokun er ekkert í framkvæmd. Ef menn þurfa að koma bréfi áleiðis í fljótheitum fara þeir með það á flugfélagið eða BSÍ og fara fram hjá póstinum og þetta er látið átölulaust þannig að hv. þm. Bandalags jafnaðarmanna, 8. landsk. þm. Kolbrúnu Jónsdóttur, er held ég ekki alveg ljóst hvernig þetta kerfi er í rauninni. Og það er líka rétt að margs konar dreifing á höfuðborgarsvæðinu á sér stað fyrir tilstilli annarra aðila en póstsins. Ýmis félög hafa af því nokkrar tekjur til sinnar starfsemi að dreifa ýmiss konar efni í hús fyrir aðila og þetta er allt látið óátalið af póstþjónustunni, enda þótt strangt tekið, séu lögin túlkuð til hins ýtrasta, sé þetta kannske ekki löglegt. En ég held að fyrirkomulagið varðandi þetta sé í góðu lagi.