16.10.1985
Sameinað þing: 3. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 16 í B-deild Alþingistíðinda. (21)

Tilkynning frá forsætisráðherra um breytingar á ríkisstjórninni

Jón Baldvin Hannibalsson:

Herra forseti. Tilkynning sú sem hæstv. forsrh. flutti Alþingi hér áðan var formsatriði. Í raun og veru er álitamál hvort það sé sæmandi að hæstv. forsrh., sem mér skilst að sé formaður í allt öðrum flokki, sé að tilkynna um niðurstöður af innanflokkserjum og deilum í þeim flokki sem Sjálfstfl. eða öllu heldur Morgunblaðið kennir nú við ormagarðinn.

Í raun og veru er líka álitamál hvað Alþingi kemur þetta við. Alþingi kemur ekki til með að fjalla um þessar breytingar. Þær eru orðinn hlutur. Og Alþingi er reyndar einhver seinasti aðilinn í þjóðfélaginu sem heyrir af þeim. Við erum löngu búnir að lesa um þetta í blöðunum svo sem eins og við erum búnir að lesa í blöðunum um aukafjárveitingar hæstv. fjmrh. og hafa spurnir af því að fjárveitingavaldið sé einhvers staðar annars staðar en hjá Alþingi. Megum við kannske eiga von á því að hv. 3. þm. Reykv. leggi það í vana sinn að tilkynna niðurstöður mæðranefndar um innanflokkserjur Alþb. hér á hv. þingi eða hv. þm. Guðmundur Einarsson tilkynni að af læknisfræðilegum ástæðum hafi landsnefnd Bandalags jafnaðarmanna ákveðið að koma ekki saman framar? Kannske er samlíkingin ekki alveg augljós.

Það hefur verið sagt að hér sé verið að fitja upp á nýjungum í íslenskum stjórnmálum, þ.e. fara að dæmi t.d. breskra íhaldsmanna með því að stokka upp í ríkisstjórn á miðju tímaskeiði. Sú kenning stenst nú ekki skoðun. Breskur forsætisráðherra á það til að staðfesta og sýna vald sitt með því að stokka upp í ríkisstjórn og þá fyrst og fremst með því að vísa út úr ríkisstjórn þeim mönnum sem taldir eru af reynslu að hafi reynst óhæfir. Ég spyr hæstv. talsmenn Sjálfstfl.: Er það dómur þeirra að hæstv. utanrrh. sé sá sem telst hafa sinnt sínum störfum með þeim hætti að hann reynist vera óhæfur vegna þess að hann er sá sem vísað er út?

Breskur forsætisráðherra á það til jafnframt að hækka í tign eða verðlauna, þoka framar í mannvirðingaröð þeim mönnum sem hann telur að hafi af reynslu staðið sig vel. Hefur það verið gert? Eiga þessi stólakaup eða á þessi stólahringekja nokkuð skylt við slíka viðleitni? Er þetta einhver stjórnunaraðgerð sem er í því fólgin að styrkja stöðu stjórnarinnar? Er það líklegt að þeir ráðherrar sem koma núna óundirbúnir að nýjum verkefnum, væntanlega nýlega búnir að setja sig inn í þau sem þeir kvöddu, séu betur til þess fallnir að leysa þau? Ég læt í ljós efasemdir um það.

Hafi verið nauðsynlegt að losna við óhæfa ráðherra, af hverju er þeim þá ekki vísað út skv. frægu bresku fordæmi? Brast forustu flokksins kannske kjark? Þegar breskur forsætisráðherra grípur til svona aðgerða hikar hann ekki við slíkt. Það sem formaður Sjálfstfl. hefur gert er hins vegar að vísa út úr ríkisstjórn þeim manni sem var kannske helst trúandi til að sýna honum heilindi í starfi með þeim afleiðingum að Morgunblaðið lýsir nú ástandinu í Sjálfstfl. sem ormagarði.

Að vísu eru þetta allt saman einkamál Sjálfstfl. og vafamál hvort ég á nokkuð að vera að fjalla um þau frekar. Og gildir þá einu um talsmenn annarra flokka.

Það sem gerst hefur er það að á pólitískan farsa, sem staðið hefur yfir með hallærislegum tilþrifum í tvö ár, hefur loksins verið bundinn endi, en sá sem leysti málið var ekki formaður Sjálfstfl. heldur forveri hans Geir Hallgrímsson. Það er búið að gera atrennu eftir atrennu að því að koma formanni Sjálfstfl. inn í ríkisstjórn, en það hefur alltaf strandað á því að gamla þunga ráðherragengið hefur sagt eins og hundurinn, kötturinn og svínið í dæmisögunni úr skólabókarlærdómi okkar sumra, en þau sögðu alltaf: Ekki ég, ekki ég, ekki ég. Það hefur enginn ágreiningur verið um það að auðvitað ætti formaður Sjálfstfl. að taka sæti í ríkisstjórninni. Það var Geir Hallgrímsson sem leysti málið.

Herra forseti. Það er einn þáttur þessa máls sem varðar hv. Alþingi Íslendinga. Hann er þessi: Pólitíkin í málinu er sú að þessi aðgerð er vantraust á hæstv. fyrrv. fjmrh., núv. iðnrh., samþykkt af þingflokki og miðstjórn Sjálfstfl. á frægum Stykkishólms­ fundi. Það var samþykkt vantraust á fjmrh. Og það er guðsþakkarvert. Þar með tóku þeir ómakið af okkur í stjórnarandstöðunni. En það er eitt sem vantar. Það vantar að arftaki fyrrv. fjmrh. standi hér upp og flytji sína vantraustsræðu. Hann þarf að gera þingheimi grein fyrir því hvað fyrirrennari hans hefur til saka unnið, nákvæmlega hvers vegna hann er talinn hafa brugðist í starfi, hvað það er sem aflaga fór, hvað það er sem breyta þarf. Nú gerist það sennilega í fyrsta sinn í þingsögunni að hér er lagt fram fjárlagafrv. eftir engan, sem enginn mælir fyrir - eða hver haldið þið að mæli fyrir þessu fjárlagafrv.? Nýr fjmrh. sem hefur lýst því yfir að þetta fjárlagafrv. sé ónýtt, það eigi að rífa það. það þurfi að semja nýtt? Ætlar hann að mæla fyrir ónýtu fjárlagafrv.? Vill ekki formaður Sjálfstfl. og núv. fjmrh. líka sýna þinginu þá virðingu að flytja sína stefnuræðu, að gera grein fyrir því hvað það er í forsendum þessa ónýta fjárlagafrv. sem er úrelt og þarf að breyta, að gera grein fyrir því hvaða forsendur þjóðhagsáætlunar eru úreltar og þurfi að breyta? Það kemur fram í niðurstöðum þjóðhagsáætlunar að frá grundvallarforsendum hennar er vikið að því er varðar t.d. áform um að greiða erlendar skuldir hraðar eða eyða viðskiptahalla hraðar sem út af fyrir sig er markmið sem þarft er að ræða.

Reyndar má spyrja: Er ekki tímabært að formaður Sjálfstfl., hæstv. fjmrh., flytji hér sína stefnuræðu áður en hæstv. forsrh. flytur stefnuræðu á úreltum forsendum annað kvöld, á forsendum úrelts fjárlagafrv., vitlausrar þjóðhagsáætlunar og breyttra áforma um greiðslu erlendra skulda og viðskiptahalla? Hver er stefna hins nýja fjmrh.? Tekur hann kannske undir þá bullandi gagnrýni á gjaldþrot efnahagsstefnu þessarar ríkisstj. sem okkur er flutt af talsmönnum Vinnuveitendasambandsins, fyrrv. vinnuveitendum hæstv. fjmrh.? Hver er afstaða formannsins til verðbólguspár sem birt hefur verið af hálfu Félags ísl. iðnrekenda? M.ö.o.: áður en Alþingi fjallar frekar um þessi mál er nauðsynlegt, og það nú í þessari umræðu, að hæstv. fjmrh. og formaður Sjálfstfl. geri grein fyrir þeim gerbreyttu viðhorfum að því er varðar fjárlagagerð. hvorki meira né minna en tekjuöflun og skattastefnu ríkisins sem og þjóðhagsáætlunar, áður en hæstv. forsrh. getur flutt stefnuræðu sem á að teljast túlkandi fyrir ríkisstj. í heild.

Það er víða tæpt á því í þjóðhagsáætlun að forsendur hennar séu allar ógildar og þar með að ræða forsrh., sem lögð hefur verið á borð þm., sé í raun og veru markleysa. M.ö.o. er kjarni málsins þessi: Það er útbreidd skoðun í þjóðfélaginu, og það virðist reyndar vera skoðun allflestra atvinnurekenda í þessu landi, að gengi Nordalssláttu, gengi hinnar vesælu íslensku krónu, sé kolfallið.

Í einu stuðningsblaða ríkisstj. í dag birtist leiðari undir fyrirsögninni „Gengið er fallið - orðinn hlutur.“ Það birtist á forsíðu frétt um að öfugt við meðaltölur Þjóðhagsstofnunar sé frystingin rekin með 8,7%, tapi. Það er bullandi hallarekstur í sjávarútvegi. Sjávarútvegurinn hefur mátt una því að selja á nærri því óbreyttu dollaragengi í upphafi árs afurðir sínar á sama tíma og innlendur kostnaður hefur hækkað um 30%. Allir vita um skuldastöðu sjávarútvegsins. Allir vita hvernig honum var sökkt í skuldir í sjávarútvegsráðherratíð núv. hæstv. forsrh. Allir í þessari atvinnugrein vita að gengið er fallið, það er orðinn hlutur, og ef menn vita það vita þeir um leið að hvert einasta orð sem sagt er í þjóðhagsáætlun um áform þessarar ríkisstj., um verðbólguspá, um greiðslu erlendra skulda, um viðskiptahalla o.s.frv., er markleysa, veruleikaflótti. Það sem núv. hæstv. fjmrh. þarf þess vegna að skýra er það: Hvert er mat hans á þessum málum? Hvernig ætlar hann að bregðast við yfirvofandi rekstrarstöðvun í sjávarútvegi? Hvernig ætlar hann að forða bullandi atvinnuleysi sem af því mundi leiða? Hvernig ætlar hann að smíða fjárlagafrv., sem á að vera betra og raunsærra en fyrirrennara hans, ef hann ekki horfist í augu við þessar staðreyndir? Hvaða mark er takandi á þjóðhagsspá sem lokar augunum fyrir þessum staðreyndum? Hver eru úrræði hins nýja fjmrh.? Um það er spurt vegna þess að það er það eina sem er nýtt við þá breytingu sem hér hefur farið fram.

Hverjar eru skoðanir hæstv, fjmrh., hins nýja? Ég hef heyrt hæstv. fjmrh. tala oft um að hann hafi trú á hagvexti, að hann telji nauðsyn á auknum hagvexti. Það er út af fyrir sig góðra gjalda vert. En hvaða úrræðum ætlar hæstv. ráðh. að beita til þess að stuðla að auknum hagvexti? Það veit ég ekki.

Hæstv. ráðh. talar mikið um nauðsyn þjóðarsáttar meðal þessarar skuldugu þjóðar, um sérstakt átak til þess að byrja að greiða niður skuldir og binda endi á sívaxandi skuldasöfnun og viðskiptahalla. Við erum sammála honum um markmiðin. En áður en við getum tekið afstöðu til hans úrræða verðum við að vita meira um það: Hvernig hyggst hæstv. ráðh. móta nýja stefnu aðra en þá gjaldþrotastefnu sem gamla ríkisstjórnin hefur fylgt og sætir sívaxandi gagnrýni og gagnrýni langt inn í raðir þeirra sjálfstæðismanna og reyndar endaði með vantrausti á hæstv. fyrrv. fjmrh.?

Hefur hæstv. fjmrh. nokkuð að segja um núverandi eigna- og tekjuskiptingu í landinu? Hefur hann nokkuð að segja um upplýsingar gærdagsins um skattsvik íslenskra fyrirtækja? Hefur hann nokkuð um það að segja að aðeins 23% af lögfræðistofum þessa lands reyndust við könnun hafa bókhaldið sitt í lagi? Og fyrst svo er um hið græna tréð hvernig halda menn þá að hitt sé? Hefur hann nokkuð að segja um þær staðreyndir sem við blasa um misréttið í tekjuskatti? Hefur hann nokkrar athugasemdir að gera við þær niðurstöður af skyndikönnun ráðgjafarþjónustu Húsnæðismálastofnunar þegar sjálfstæðir atvinnurekendur reynast telja fram tekjur sem eru miklu minni en einstæðar mæður í þeirra þjónustu hafa? Hefur hæstv. fjmrh. nokkuð að segja um þetta lamaða og rangláta tekjuöflunarkerfi ríkisins að því er varðar bæði tekjuskatt og söluskatt? Hefur hann uppi nokkur áform um breytingar á söluskattskerfinu? Hver er afstaða hæstv. fjmrh. til áforma um stighækkandi eignarskattsauka? Og ég spyr að gefnu tilefni. Ég boða það að í næstu viku munum við flytja frv. til I. um slík mál. Og ég minni á að hæstv. forsrh. fyrir hönd Framsfl., hv. þm. Páll Pétursson, formaður þingflokks Framsfl., samband ungra framsóknarmanna, samtök framsóknarkvenna hafa gert einróma ályktanir um stuðning við slíkt mál. Nú spyr ég: Hver er afstaða hins nýja fjmrh. til þess? Telur hann rétt að þau 100 fyrirtæki, stærstu fyrirtæki í landinu, sem eiga meira en helminginn af öllum skuldlausum eignum lögaðila í þessu landi, geti kannske lagt meira til eftir að hafa eignast þessar eignir mestan part í skjóli óðaverðbólgu, neikvæðra vaxta og þessa hripleka skattakerfis á umliðnum árum? Þetta eru spurningarnar sem hæstv. ráðh. þarf að svara áður en við segjum meira um það hvort þessi breyting táknar nokkuð og hefur einhverja pólitíska merkingu.